Þjóðviljinn - 23.12.1964, Page 74

Þjóðviljinn - 23.12.1964, Page 74
SUPPFELAGIÐ í REYKJAVÍK H.F. Simar: 10-12-3 (5 línur). Símnefni: Slippen. VERZLUNIN: Skipavörur — Byg^ingavörur — Verkfæri o.fl. TIMBURSALAN: Trjáviður til skipa og Kúsa. MÁLNINGARVERKSMIÐJAN: Hempelsmálning til skipa og húsa. Vitretexmálning (PVA), innan og utanhúss. VÉLAHOSIÐ: Fullkomnar vélar fyrir alls konar trésmíði. m I REYKJAVÍK H.F. SKIPSTJÓRAR - ÚTGERÐARMENN SPARIÐ GJALDEYRI! Látið innlendar . skipasmíða- stöðvar smíða fiskibáta yðar. Berið saman út- lend tilboð og tilboð frá oss, um verð og af- greiðslutíma. Getum smiðað inni í húsi allar stærðir og gerðir af bátum úr eik BÁTALÓN H.F. og furu, fra litlum opnum bátum upp í 150 rúmlesta þilfarsskip. Hafnarfirði — sími 50520. I ROSTINNI 74 — i ÓLABLAÐ Framhald af bla. 73. þarna.“ Af þvi, sem ég hafði lesið um þessa röst, hafði ég enga rétta hugmynd getað gert mér um hana. Lýsing Jónasar Ramus, sem líklega er ýtar- legust, kemst hvergi nærri þvi' að lýsa mikilfenglei'k og ægi- valdi þessa náttúrufyrirbæria,' sem er svo einstætt og lygi- legt, að áhorfandinn trúir varla augum sínum. Ég veit ekki frá hvaða stað þessi rit- höfundur hefur horft á röst- ina, né i hvaða veðri, en það hefur hvorki getað verið frá tindinum á Hælsegg, né 1 stormi. Samt eru kaflar í frá- sögn hans, sem vert er að geta um, þó að lýsingin í heild nái skammt og sé næsta bragðdauf. „Milli Lófóts og Moskeyjar", segir hann, „er hafdýpið frá 36 til 40 faðmar, en hinu- megin, í átt til Vereyjar, grynnkar svo mikið, að varla er fært skipum og geta þau strandað þar í logni. Með flóði verður ákaflega harður straumur á sundinu milli landa og eyjar, en með útstreymi fellur sjórinn með þvílíkum ofsa og gný, að það er ein3 og þegar hæst lætur í flúðum og heyrist langar leiðir, og iðugígarnir verða svo stórir °g djúpir, að hvert skip, sem nálgast þá, hlýtur að sogast til botns og brotna þar í spón, en þegar aftur hægist um og sjórinn verður sléttur, flýtur brakið uppi. En aldrei kyrr- ist þarna nema á mótum flóða og fjöru, og þegar logn er að auki, og aldrei lengur en fjórðung stundar, síðan ferað ólga aftur. Þegar stórstreymt er og stormur að auki, er háskalegt að koma nær röst- inni en í einnar norskrar mílu fjarlægð. Bátar og skip hafa sogazt inn í hana ef þau gættu ekki að sér. Það kem- ur líka oft fyrir, að hvalir lenda I röstinni og ýlfri þeirra og gelti og árangurslausum tilraunum til að losa sig úr þessum fangbrögðum verður ekki með orðum lýst. Einu sinni ætlaði björn að synda frá Lófót til Moskeyjar, en röstin tók hann og dró hann niður, en hann öskraði ógur- lega svo að heyrðist í land. Stórir stofnar af furu og greni sem lenda í röstinni, koma aftur upp svo tættir að utan, sem væru þeir vaxnir hárum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.