Þjóðviljinn - 24.12.1967, Qupperneq 35

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Qupperneq 35
skemmdar, og farmurinn hafdi ekki haggazt mildð í lestinni. Veðrið var nú fiarið að lægja, svo að okkur bauð ekki lengur ótta af storminum, en þó þótti okkur litlu betra að eiga von á því að lygndi til fulls, því þá mátti búast við að undir- alda drekkti þessu stjórnlausa skipi. En af því varð þó ekki. I fimm daga og fimm nætur (og allan þennan tíma höfðum við ekki annað til matar en sykur, sem okkur tókst með miklum erfiðismunum að ná úr lúkarnum) barst skipsflakið fyrir hvössum stormi, sem raun- ar var ekki sambærilegur við hvirfilbylinn, en þó miklu hvassari en nokkurt veður, sem ég hafði vitað fyrr. Fyrstu fjóra dagana sigldum við i suðaust- ur og suður, og við hljótum að hafa farið nærri ströndum Nýja Hollands. Á fimmta degi lcólnaði snögglega í veðri þó að vindáttin hefði snúizt meira til not'ðurs. Sólin kom upp í óviðfelldum gulleitum bjarma, og hækkaði ekki nema um fá- einar gráður — hún stafaði frá sér daufu skini. Ekki sást ský- skaf á lofti, og stöðugt hvessti meir og meir, og gekk á með rokum. Um hádegisbil varð okkur litið á sólina aftur, en nú bar hún ekki birtu svo heitið gæti, heldur daufa skímu, eins og geislar hennar væru freðnir. Um leið og hún gekk undir myrkvaðist hún í miðju, eins og einhver hulin máttarvöld hefðu slökkt á henni. Og sáust ekki nema jaðrarnir, með daufum silfur- lit, er hún sökk. Við biðum árangurslaust eft- ir sjötta deginum — sá dagur er ekki runninn upp fyrir mér — og hann rennur alldrei upp fyrir Svíanum. Því eftir þetta birti ekki umhverfis okkur. Það var svo dimmt að við hefðum ekki getað greintnokk- urn hlut í tuttugu feta fjarlægð. Yfir okkur var komin sú nótt, sem aldrei birti af neinni skímu, jafnvel ekki þeim maurildis- bjarma, sem skinið hafði á hafinu um miðbik jarðar. Við tókum líika eftir, að þó að ofs- ann í storminum lægði ekki hið minnsta, varð hvergi greindur neinn vottur af sjáv- arfroðu, svo sem þó hafði ver- ið áður. Myrkrið var hræðilegt, við vorum staddir á úthafi sortans, og Svíinn varð stöð- ugt hræddari og hræddari, en sjálfur var ég stöðugt sem steini lostinn af undrun. Við reynd- um ekki neitt til að stýraskip- inu, því okkur virtist það mundi vera gagnslaust, en reyrðutn okkur sem fastast við siglu- tréð og lágum svo þar semvið vorum komnir og störðum hug- stola út á hafið. Við vissum ógerla hvað tímanum leið, né heldur vissum við hverrar hjálpar væri að vænta. Samt þóttumst við vita, að enginn lifandi maður hefði siglt jafn iangt til suðurs sem við, en á því furðaði okkur mest að við skyldum ekki verða varir við ís. Við máttum búast við dauða okkar á hverri stundu, —fjall- háar öldur riðu að jafnt og þétt. Aldrei hefði ég getað í- myndað mér slíka stórsjói, og það var varla einleikið að við skyidum ekki færast í kaf. Fé- lagi minn minnti mig á það hve léttur farmurinn væri, og hve gott skipið, en samt þótti mér sem það myndi vera bor- in von að við næðum nokkurn- tíma landi, og reyndi að búa mig undir dauðann, sem mér þótti vera vís að litlum tíma liðnum, því ofsi sjávarins varð háskalegri með hverri stund- inni sem leið. Ýmist supum við hveljur á öldukambi í svip- aðri hæð og súlukóngurinn, sem þar var á flugi, eða viðsvipt- umst með ofsahraða niður i djúpan öidudal, þar sem vind- urinn náði ekki til og ekkert hljóð truflaði svefn nykursins í djúpinu. Við vorum einmitt staddir niði'i í einum slíkum dal þeg- ar ég heyrði félaga minn reka upp angistaróp. „Sjáðu“, hróp- aði hann í eyra mér. ,,Guð minn almáttugur, líttu á“. Um leið sá ég hvar drungalegum rauðleitum bjarma brá á þenn- an víða öldudal, og glóði um allt þilfarið. Mér varð jafn- skjótt litið upp og þá þótti mér sem blóðið frysi í æðum mér. Á öldufaldi hátt uppi yfir lægðinni sem við vorum stadd- ir í, birtist afarstórt skip, lík- lega fjögur þúsund lesta. En þó aldan, sem bar það, væri hundrað sinnum stærri en skip- ið sjálft, sýndist mér það mundi vera miklu stærra en nokkurt af skipum Austur-Indiandslín- unnar. Kinnungarnir voru dimmgráir, og hvergi sást á þeim nein af hinum venjulegu skreytingum. Einföld röð af fallbyssum úr eir gapti við opnum rennunum og ljósin frá ótal lömpum, sem sveifluðust í reiðanum, spegluðust af gljá- fægðum kjöftunum. En það sem mest hræddi mig og vakti mér mesta furðu, var það, að skipið hafði uppi öll segl í því- likum tryllingi hafsins og því- líku ofboðslegu fárvirðri. Þeg- ar við komum auga á það, sá ekki á annað en kinnungana, þar sem það reis upp af djúp- um öldudal og vofði á toppn- um. Hærra sté það eins og það væri að gefa okkur til kynna tign sína og mátt, skalf síðan, riðaði — og stakkst niður t.il okkar. Ég skildi ekki hvað kom að mér, en mér varð undarlega rótt innanbrjósts. Ég hörfaði eins langt og ég komst og beið óttalaus þess sem verða vildi. Skip okkar var nú dauðadæmt, það stakk stafni niður og var að sökkva. Ferlíkið hitti það að framanverðu undir sjó, og afleiðingin varð sú, að égþeytt- ist af ómótstæðilegu afli yfir á þilfar þess. Um leið og ég kom niður á skipið riðaði það og breytti um stefnu, en allir kepptust við að rétta það við, og því átti ég óefað það að þakka að enginn af skipshöfninni tók eftir mér, og tókst mér að skjótast niður í lestina óséður. Ekki veit ég með vissu hvers- vegna ég gerði það. Sú óskil- greinanlega tilfinning af ótta, sem greip mig þegar ég kom auga á hina fyrstu af áhöfn skipsins, hefur líklega komið mér til að fela mig. Mér var óljúft að ganga á hönd mönn- um, sem virtust svona fram- andi, ískyggilegir og til alls vfsir. Þessvegna þótti mér ráð- legast að leita mér að örugg- um felustað. Mér tókst það. Varla var ég búinn að koma mér fyrir þarna þegar ég heyrði fótatak nálgast, og skreið ég þá í fylgsni mitt. Ég gægðist út og sá hvar maður gekk) hjá, stirður og reikull í spori. Ég gat ekki séð framan í hann, en að öði*u leyti gat ég virt hann vel fyrir mér. Hannskailf í hnjáliðunum og riðaði allur undir fargi ellinnar. Hann var að umla eitthvað fyrir munni sér á máli sem ég skildi ekki, og röddin var hrjúf og sprök. Hann staðnæmdist úti í hornl og grúfði sig yfir einkennileg- um mælingatækjum og lúðum og máðum sjókortum. Allt lát- æði hans var undarlegt sam- bland af önuglyndi manns sem genginn er í barndóm og hárri tign æðri veru. Að síðustu fór hann upp á þilfar og ég sá hann ekki framar. Það er komin að mér und- arleg tilfinning sem ég kann ekki að nefna, óskiljanleg og óskýranleg frá forsendum fyrri reynslu minnar, og ég óttast að ég muni aldrei geta skilið hana' Þessu kvíði ég mest, því ég veit að ég mun aldrei geta sætt mig við það. Samt er það eng- in furða að þessar tilfinningar og hugmyndir skuli vera ó- ljósar, því þær eiga rætur í al- gerlega nýju viðhorfi. Það sem fyrir mig hefur komið er nýtt og ólíkt öllu því sem ég þekkti áður. • Nú er langt liðið síðan ég kom á þetta skelfilega skip, og nú er komið að örlagastund- inni. Óskiljanlegu menn! Þeir ganga fram hjá mér án þess að sjá mig, niðursokknir í hug-. renningar, sem ég get engan grun rennt í. Það er alger ó- þarfi fyrir mig að fela mig því skipshöfnin vill ekki s.já mig. Rétt áðan gekk ég svo framhjá stýrimanninum að hann gat ekki hjá því komizt að verða mín var, og fyrir stuttri stundu fór ég inn í klefa skipstjórans og tók þar fyrir augunum á honum rit- föngin, sem ég hef til aðskrifa þetta. Ég mun halda áfram að skrifa þessa dagbók. Það má vel vera að hún komi aldrei fyrir nokikurs manns augu, en Edgar Alan Poe JÓLABLAÐ - 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.