Þjóðviljinn - 24.12.1967, Blaðsíða 40

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Blaðsíða 40
JAKOB SÖGU- SKRIFARI Fyrir rúmum 200 árum hóf sá bóndi búskap í Vopnafirði er Jakob hét Hann hefur síðan gengið undir sérstöku nafni, ein- stöku á þeirri öld, Jakob söguskrifari. Hans getur víða með því nafni, en fátt er kunnugt af æviferli hans, sem var fábrotinn. Margt mun enn til af þeim handritum, sem gáfu honum þetta einstaka og merkilega nafn. Það var hvoru tveggja, að hann var af kunnri og merkilegri ætt og frá honum er komið margt og virðu- legt fóik, og hefur sumt af því búsetu enn í Vopnafirði. Það varð kannske ekki héraðsbrestur þegar hann dó, þó heyrðist kveðin þessi vísa, sem hvorutveggja er, ærlegur og eftirminnilegur minn- isvarði eftir manninn, og hefur geymzt bráðum í 200 ár, og ekki komið á prent, að ég ætla, fyrr en í „Ættum Austfirðinga", eftir séra Einar Jónsson á Hofi. bls. 854. Nú er Jakob fallinn frá, frí við raunir harðar. Skrifari og skáld var sá, skcnnntun Vopnafjarðar. Er þetta óvenju efnismikil vísa og vel kveðin, þótt nú viti enginn hver gert hefur, en líklegt þykir mér að visan sé eftir aldavin og frænda Jakobs, séra Guðmund Eiríksson, síðast prest á Refstað, því Jakob mun hafa dáið tveimur árum á undan hon- um, en séra Guðmundur dó 1781. „Frí við raunir harðar“ verð- ur skáldinu að orði. Og þótt það blasi við í sögu Jakobs, að harð- ar raunir þoldi hann um ævina, sem annað flest alþýðufólk á þessum dögum, þá upp hefst það í því, sem á eftir kemur, skrif- ari og skáld og skemmti mönnum og hvað varðaði þá um raun- ir harðar. Þannig ganga menn frá sinni eigin gröf, að eftirsjáin vakir yfir henni, og þessi ágæta vísa hefur vakað yfir gröf Jakobs fram á þennan dag. Jakob var Sigurðsson prests á Skeggjastöðum á Langanes- strönd í N. Múlasýslu, Ketilssonar. Við byrjum á hinum hörðu raunum, því hér gátu ættliðir sam- an grátið frægan föður sinn, eins og Áslaug í hörpunni. Ketill Eiríksson var prestur á Svalbarði í Þistilfirði. Hann var sonur Eiríks prests í Vallanesi Ketilssonar prests á Kálfafellsstað, Ólafssonar, prests og skálds á Sauðanesi, Guðmundssonar. Ei- ríkur Ketilsson átti Guðrúnu eldri Árnadóttur sýslumanns á Eiðum, Magnússonar, en að þeim tíma höfðu þeir verið auð- menn, Eiðamenn, forfeður Árna sýslumanns. Eiríkur prestur dó Titilsíða bókarinnar. Ef til vill sjáifsmynd, eða mynd séra Ólais. Til vinstri innsigli Islands, flatti þorskurinn.'Texti: Ein sálmabók íslenzk, þrieinum guði til lofs, æru og dýrðar, en oss öllum til sálargagns og nota t Jesuna Kristuna. - 40 - JÓLABLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.