Þjóðviljinn - 24.12.1967, Qupperneq 49

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Qupperneq 49
Kyniegir kvistir Jón Borgfirðingur lýsir Da'ða fróða: ,,í samræðu var Daði skemmt- inn, fræðandi og glaðlyndur að eðli til, en andstreymi lífsins og ýmsar kringumstæður gjörðu hann oft ömurlegan og annarlegan í skapi. Hann var meðalmaður að vexti, nokkuð herðalotinn, gulleitur á hár og slétthærður. Hann lét það vaxa að mitti niður og hafði hár- píska, skeggið nokkuð ljósara. Hann var bláeygur og lágu aug- un fast, toginleitur, munnfríð- ur, nefið hátt og var liður á. Hann var léttur á fæti og raul- aði oft fyrir munni sér á gangi. Hann var trúmaður og vandaði ráð sitt----“. (Ævilok hans urðu þau, að hann var á ferð í skammdegi, sendur með bækur og læknis- lyf. Vildi ekki þiggja gistingu að Breiðavatni í Langadal, kvað ekki þurfa að leita sín, þó að ilia færi, hann mundi halda á- fram þar til yfir lyki en ekki setjast að og láta limi sína af kali. Lík hans fannst við Lax- árós í Refasveit á næsta ári). Gísli Konráðsson lýsir Níelsi skálda: ,, — Níels Jónsson var skáld mikið, hraustur og leikinn, raddmaður, átti löngum í mót- kviðlingum og hóf það jafnan að fyrra bragði, eða oftast. Þótti honum enginn standa sér jafn- fætis nálega um alla fræði, og sízt um kveðskap, og mundu fáir jafnokar hans um það á hans dögum, sérlegur mjög í látbragði og háttum, svo að margir hentu gaman að honum, og hermdu eftir honum. Afar heiftyrður var hann og einkum í kveðskap, en þó ekki ill- menni. Ræddi hann vel og orti um trúarbrögðin, en kvaðst þó aldrei mundi gagn af þeim hafa, Lítið gefinn fyrir svið Karl nokkur, sem var annál- aður matmaður, kom eitt sinn á bæ að hausti til, í sláturtíð- inni. Hafði verið soðið mikið aí sviðum þennan dag, og bað bóndi konu sína að bera svið fyrir karlinn og það heldur ríf- lega, því að sig langaði til að vita, hve mikið hann gæti étið Konan bar 12 sviðakjamma fyr- ir karlinn ásamt öðrum mat Tók hann þegar til matar síns og át 11 kjamma. en leifði ein- um. Bóndi segir þá, að hann skuli ekki vera að leifa af þess- ari matartortís og skuli hann ljúka sviðunum. „Nei, þakka þér fyrir,“ segir karlinn, „ég er nú eiginlega ekkert gefinn íyrir svið!“ og að mörgu var hann afar sér- lyndur.------“ Staka eftir Níels skálda. Mærðargreinum, hvar sem hreyfði, hef ég skrifað fjötralaus, aldrei neinum lærðum leyfði, lögsögn yfir mínum haus. Ólafur Sigurðsson í Ási í Hegranesi (f. 1822) segir um Níels: „Ef hann hitti gáfaða ung- linga, var honum mest ánægja að fræða þá.------Manna létt- astur á fæti, svo að hann hljóp jafnan en sást varla ganga hægt, og það fram á gamals aldur. — — Er Níelsarhlaup yfir þvera Blönduhlíð enn til sýnis og þykir óárennilegt, af því að það er milli kletta. í loft stökk hann vel hæð sína.“ Níels orti þetta í ellinni: Söngvavinnu senn skal hætta sver mér ellin, grimmust vætta, og hugsar sér að hræða mig. En þannig lék mig æskan áður, eigi ég að deyja meira þjáður, hún skal mega herða sig. ÞAÐ ÞARF ANNAÐ OG MEIRA EN ÞVO LÍKAMANN Næsta bað þarf að vera badedas VITAMINBAÐ Næsta bað þarf aið Lvera Reynið BADEDAS r 1 næsta hárþvott. Er mest' selda baðefni og hárshampo Evrópu í dag. Radedas fæst í nmstu búð Heildsölubirgðir: H. A. TULINIUS. jólablað — 49
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.