Þjóðviljinn - 24.12.1967, Page 60

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Page 60
Hefurðu meitt big? hneigt barn og tók alla trúar- lega uppfræðslu sem óhrekjan- legan sannleik. Kannski hefur hann orðið fyrir vonbrigðum. Stjúpinn: Hvað ætli þýði að skeggræða um þetta héðan af, drengurinn er orðinn að vit- firringi, hættulegur bæði sjálf- um sér og öðrum. Hann verður að lokast inni. Hann skal lok- ast inni. Dengsi: Jæja fóstri. — Kann- ski gætum við orðið samferða, ef ég upplýsti vissa aðila um þitt mjög svo fjölbreytta við- skiptasiðgæði. Hvernig var það annars, fóstri? Var einhver að tala um söluskatt eða hagræð- ingarbókhald, var —? Stjúpinn (æstur): Þykist þú þess umkominn að kenna mér siðgæði. Skreiðst í nótt upp á gþak á langferðabíl og hafðir þar mök við telpukrakka að fé- lögum ykkar áhcrfandi. Oho, aðeins að þú hefðir einhvem- tíma lært að skammast þín. Dengsi: Ójá. Það er víst eng- in hætta á því að þú brjótir lögmál kynlífstízkunnar. Tókst móður mína frillutaki, gerðir hana ólétta og giftist henni svo til að bjarga þínp flekklausa mannorði. Stjúpinn (slær hann): Hafðu þetta. Móðirin (hleypur á mann sinn): Stilltu þig, stilltu þig. Dengsi (heldur um kinn sér): Ég viðurkenni að þú varst ekk- ert að auglýsa kynlífsathafnir þínar. Nei, nei. Þú gafst mér bara brjóstsykur og lézt mig útfyrir dyrnar, meðan þá sval- aðir fýsnum þínum, u'ndir rauðu Ijósi. (Hverfur inn í her- bergið). Stjúpinn: Viðstöðulausar sví- virðingar. Ja, hvað finnst prest- inum? Á maður þá að halda að sér höndum aðgerðarlaus. meðgn hann eyðileggur heimil- ið, fyrirtækið? Prestur: Reynið kaupmaður að líta á þetta mál reiðilaust og af samúð. Stjúpinn: Ég hef gert þaðsíð- astliðin tíu ár. Tja, þér sjáið útkomuna. Prestur: Ef til viil er hann sjúkur andlega eða líkamlega. Hann þyrfti vafalaust að kom- ast undir hendur sérfræðinga, sálfræðings eða læknis, því um- fram allt er nauðsynlegt að finna orsök þess að svo velgeí- in böm sem þessi drengur skuli fara svo hörmulega. (Lítur á úr sitt). En nú verð ég að fara vinir mínir. Ég kveð ykkur þá. Látið mig vita, ef ég gæti eitt- hvað aðstoðað ykkur. Verir þið sæl. í guðs friði. öll: Verið þér sælir. Móðirin: Við þökkum hjart- anlega. (Hann fer). Mútta: Leita að orsökinni. — Tuff. — Ætli þær geti nú ekki verið margar? Stjúpinn: Hvað ætli þetta sé svo sem nokkurt furðufyrir- bæri. Ég held krakkar hafi alltaf artast misjafnlega, Sumir verða að mönnum, aðrir að ó- mennum við sömu aðstæður og uppeldisskilyrði. Móðirin (volandi): Okkur er fengið þetta í hendur allsnakið, ómálga og án vitundar eða vits. — Og úr þessu ber okkur að skapa mannéskjur. — Svo, svo er þetta útkoman. — Hvað ætii hann sé annað en það sem við höfum gefið honum. Stjúpinn: Eðlislægir gallar geta skapað mjög erfið uppeld- isvandamál góða mín. Það er alveg tilefnislaust að vera með sjálfsásakanir útaf þessu. Mútta: Já, já, hvað annað svo sem. Glósur og aftur glósur. Ég veit ekki annað en það, að þessi drengur var hamingju- samt barn allt þar til þú komst inn í líf hans. Stjúpinn: Við komum nú bæði inn i líf hans á sama tíma, þvf einmitt þá dó þinn karl saddur lífdaga: Mútta: Mín börn bera þess vitni að mitt heimiili var ham- ingjuríkt heimili. Og hamingja okkar hjónanna óx með árun- um og entist meðan við nutum samvista. Stjúpinn: Satt segir þú. — En hæst reis hamingja ykkar þó, — þegar hann dó. Móðirin: Er nokkur ástæða til að þrátta út af þessu. Við ættum heldur að reyna að rekja helztu atvikin sem við munum eftir úr lífi drengsins, — ef við fyndum eitthvað, — eitthvað sem við þá gætum varazt, þó ekki væri nema vegna hinna barnanna. Drengur (Lítill drengur kem- ur með fötin sín í hendinni); Mamma, mamma. Það er sól- skin í garðinum, og ég kemst ekki í sokkinn. Móðirin: Ó. Ég var alveg bú- in að gleyma þér vinur minn. Drengur: Pabbi, — pabbi klæða mig. (Fer til föður síns. Hann tekur son sinn á kné sér og hjálpar honum í fötin). Mútta: Uppeldi Dengsa er mislukkað, því verður ekki á móti mælt, hver sem orsökin er. — Það væri hörmulegt ef eins færi um hin börnin. Móðirin: Hann var einkenni- iega fróðleiksfús og spurull. Stundum fannst mér það nærri því óeðlilegt, eins og til dæmis þegar hann fór að spyrja um heiminn. Mútta: Hjújú. Hvað er innan í heiminum amma? Ætli mað- ur muni það ekki. Móðirin: Hvað er utan við heiminn? spurði hann líka. Og hvað er ofan við hann cg neð- an? Ó, hann var svo þrár, og heimtaði svör við öilu, svör sem ómögulegt var að veita. Drengur: Pabbi? Stjúpinn: Já. Hvað vantar þig nú að vita. Drengur: Pabbi — Ég sá fugl úti í garðinum í gær. Stjúpinn: Jæja, vinur minn. Drengur:. Hann sat í trénu þar sem hreiðrið var í vor. Stjúpinn: Það hefur líklega verið sami fuglinn. Mútta: Hann breyttist mest eftir ferminguna, þá fór hann að verða svo hortugur og ó- væginn. Stjúpinn: Hann notaði alltaf hvert tækifæri sem hann gat til að svívirða mig og sverta í aug- um ykkar. Það er ekki hægt að neita því, hann virðist allt- af hafa hatað mig. Drengur: Pabbi, — pabbi. Stjúpinn: Já? Drengur: Pabbi. — Eru engl- arnir fuglar? Mútta: Það tók nú fyrst úr, Öskum öllu starfsfólki okkar gleðilegra jóla og góðs og farsæls kom- andi árs, um leið og við þökkum gott sam- starf á árinu. Söltunarstöð - Utgerð Fiskvinnslustöð SÍLDAR- VINNSLAN H.F NESKAUPSTAÐ. gO — JÓLABLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.