Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Fréttir
I>V
Kurr í kúabændum í Skaftárhreppi:
Telja atkvæða-
greiðslu ógilda
- meirihluti á móti norskum kúm
„Kosningin er í raun ógild úr því við
kúabændur hér í sveitinni fengum
aldrei atkvæðaseðla," segir Lárus
Helgason, bóndi á Kálfafelli á Síðu, við
DV. Kurr er meðal mjólkurinnleggienda
í Skaftárhreppi yfir að hafa ekki borist
kjörgögn í kosningum Bændasamtaka
tslands og Landssambands kúabænda
um hvort flytja ætti fósturvísa úr norsk-
um kúm hingað til lands. Atkvæði voru
talin í gær og eru úrslit afgerandi. Af
þeim 1.334 sem tóku þátt í kosningunni
voru nær þrír af hvetjum fjórurn á móti
innflutningi eða alls 992. Fylgjandi voru
334. Auðir og ógildir atkvæðaseðlar
voru fimm.
Þetta þýðir að ekkert verður úr þeirri
tilraun sem samtök bænda hugðust gera
með innflutningi. Fósturvísar sem
höfðu verið keyptir verða seldir og
reikna má með að nautgripaeldisstöð-
inni i Hrísey verði lokað, en til stóð að
tilraunaræktun færi þar fram.
Lárus á Kálfafelli segist hafa sett sig í
samband við Búnaðarsamband Suður-
lands i fyrri viku þegar hann var orðinn
langeygur eftir að fá atkvæðaseðil. „Þá
var mér sagt að atkvæðaseðlamir færu
alveg að koma en þeir komu aldrei,"
segir Lárus. Hann segist ekki telja að
bændur í Skaftárhreppi muni kæra
kosninguna til ógildingar, úrslitin séu
það skýr að kærumál fái vísast engu
breytt um niðurstöðuna til eða frá. Fyr-
irkomulag kosningarinnar sé hins veg-
ar það sem veki upp spumingar. -sbs.
DV-MYND HILMAR
Afram Auðhumla
Meirihluti kúabænda vill ekki innflutning fósturvísa. Niðurstaðan er afdráttarlaus.
Arnl
Bjarnason.
Nýr formaður FFSÍ:
Nauðsynlegt
að byggja
upp trúnað
„Ég tel nauðsynlegt að byggja upp
traust og trúnað milli þeirra manna sem
koma að sjávarútvegi ella lít ég svo á að
þau samtök sem ég
hef verið kjörinn í
forystu fyrir séu
komin í sjálfheldu
og nái ekki ár-
angri,“ sagði Árni
Bjamason, skip-
stjóri á Akureyri,
sem í gær var kjör-
inn formaður Far-
manna- og fiski-
mannasambands
islands.
í kosnmgum
lagði hann Grétar
Mar Jónsson sem
fékk 15 atkvæði en
Ámi fékk sex at-
kvæðum fleiri, alls
21.
... „Annað atríði
sem ég hyggst beita
mér fyrir er sam-
eining samtaka sjó-
manna í landinu. Einnig tel ég mikil-
vægt að styrkja fjárhag sambandsms og
gera hann megnugri. Félagsleg geta og
fjárhagur harmónera saman," sagði
Ámi.
„Auðvitað er maður alltaf spældur að
tapa,“ sagði Grétar Mar Jónsson þegar
DV ræddi við hann í gærkvöld. Hann
sagðist aðspurður telja sig hafa komið
mörgum ágætum málum á rekspjöl í
tveggja ára formannstíð sinni, ekki síst
í ábendingum um annmarka fiskveiði-
stjómunarkerfisins. Það væri og brýnt
viðfangsefni nýs formanns að reyna að
snúa ofan af göllum þess. „Ég veit ekk-
ert hvað tekur við hjá mér, hvort ég fer
á sjó eða ekki. Veistu um laust skips-
pláss?“ sagði Grétar Mar.
Hinn nýi formaður FFSÍ, Ámi
Bjamason, hefur verið til sjós síðan
1968. Síðustu tíu árin hefúr hann verið
á skipum Samheija og er skipstjóri á
Akureyrinni EA. -sbs.
Grétar Mar
Jónsson.
Forseti ASÍ vill láta reyna á hvort „þjóðarsáttarleið“sé fær:
SA komi beint inn í aðgerðir
- Samtök atvinnulífsins þurfa aö skila einhverju inn í heildarlausnina
„Ég get hvorki sagt að ég sé bjart-
sýnn né svartsýnn því að málið er ein-
faldlega ekki komið nægjanlega langt,“
sagði Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
en hann og fleiri alþýðusambands-
menn hafa átt fundi í vikunni með full-
trúum frá Samtökum atvinnulífsins
þar sem framtíð kjarasamninganna
vom á dagskrá. Aðilar vinnumarkað-
arins funduðu sem kunnugt er með
forsætisráðherra í síðustu viku vegna
verðlagsforsendna í kjarasamningum
sem em brostnar og heimilt veröur að
segja samningum upp í febrúar.
Álþýðusambandið hefur síðan sett
nefnd til að móta tillögur um nauðsyn-
legar aðgerðir í efnahagsmálum og sat
sú nefnd á fundi síðdegis í gær. Grétar
segir að niðurstöður þeirrar nefndar-
vinnu muni trúlega liggja fyrir í næstu
viku og eiga aðilar vinnumarkaðarins
von á svömm frá ríkisstjórninni upp
úr helgi í siðasta lagi og mun þá koma
í ljós hvaða hug-
myndir hún hefur
fram að færa. „i
framhaldi af því
kemur í ljós hvort
menn setjast sam-
eiginlega yfir við-
fangsefnið, sem er
jú það að koma
verðbólgunni nið-
ur á sem skemmst-
um tíma með ein-
hveijum afdráttar-
lausum leiðum. Við leggjum mikla
áherslu á að það náist þama einhver
raunhæf leið til að takast á við þetta
viðfangsefni," segir Grétar.
Forseti ASÍ segir jafnframt að það sé
nokkuð ljóst að atvinnurekendur þurfi
líka að koma með beinum hætti að
málinu og á hann von á að þeir séu til-
búnir til að taka þátt í einhveijum
sameiginlegum aðgerðum. „Hluti af
þessum málatilbúnaði öllum er jú að
Samtök atvinnulífsins verða að koma
með beinum hætti inn í þessar aðgerð-
ir - ekki bara sem aðili sem knýr á
stjómvöld líkt og við gerum líka, held-
ur verða þeir að skila einhverju inn í
þessa lausn ef hún á að vera möguleg,"
segir Grétar. Aðspurður hvort menn
væm þá í raun byijaðir að hnoða deig
í þjóðarsáttarköku, sagði Grétar það
kannski fullfljótt að orða það þannig
strax en það væri ekkert launungar-
mál að þeir hefðu setið yfir því hvort
það væri raunhæfur möguleiki að
koma inn í þessa atburðarás með þeim
hætti. „Því við horfum til þess með
skelfingu ef við erum að lenda inni í
sömu atburðarásinni og fyrir rúmum
áratug. Við teljum að það myndi þess
vegna þjóna okkar fólki best ef hægt
væri að koma böndum á þetta strax,“
sagði forseti ASÍ. -BG
r 'ý> *
V w.
Grétar
Þorsteinsson,
forseti ASÍ.
Fljótamaðurinn Trausti Sveinsson:
Kærir samgönguráðherra til
Umboðsmanns Alþingis
- ítarlegum erindum um jarðgangamál á Tröllaskaga ekki svarað
Fljótamaðurinn Trausti Sveinsson
hefur kært Sturlu Böðvarsson og sam-
gönguráðuneytið til Umboðsmanns Al-
þingis fyrir að svara ekki ítarlegu er-
indi hans um jarðgangamál á utanverð-
um Tröllaskaga. Telur Trausti sig hafa
sýnt fram á að jarðgöng á milli Siglu-
fjarðar, Fljóta og Ólafsfjarðar séu ekki
dýrari kostur en fyrirhuguð jarðganga-
gerð a milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar
um Héðinsfjörð. Fyrirliggjandi kostur
sé m.a. vanmetmn um 1,5-3 milljarða
króna. Fullyrðir Trausti að Alþingi hafi
verið sagt ósatt um kostnað við Héðins-
fjarðarleið og þar hafi tölum verið hag-
rætt.
Óskaði Trausti
eftir því við Vega-
gerðina að saman-
burðarúttekt yrði
gerð á hans út-
reikningum og
Vegagerðarinnar
en því var að sögn
Trausta synjað. Þá
segir hann að er-
indisbréf byggða-
ráðs Skagafjarðar
til samgöngunefndar Alþingis og eins
erindi til formanns samgöngunefndar,
þá Árna Johnsen, hafi ekki einu sinni
verið tekin til afgreiðslu.
Trausti lagði einnig fram stjómsýslu-
kæru í júli til félagsmálaráðuneytisins
þar sem sveitarstjóm Skagafjarðar hafi
ekki svarað bréfum er tengjast fyrirhug-
uðum framkvæmdum síðastliðin tvö og
hálft ár. Þá lagði hann fram kæm til
umhverfisráðherra 23. nóvember sl.
vegna úrskurðar Skipulagsstofnunar
um mat á umhverfisáhrifum um gerð
jarðganga á svæðinu.
Trausti Sveinsson sagði í samtali við
DV i gær að augljóst væri að byggð legð-
ist af í Fljótum og inn eftir Skagafirði ef
göng um Héðinsfjörð yrðu að veruleika.
Þar væri því um hagsmuni 4.500 íbúa á
svæðinu að tefla. -HKr.
Trausti
Sveinsson.
Afganskur
þjóðarbrota-
bræðingur
Erlent fréttaljós
Morð á elliheimili
iTftl íslensklr harmleikir
46
Blaöíö í dag
Bæjarstjórinn
í Kópavogi
Siguröur Geirdal
Pítsa í þúsund
ár
DV-matur
Garðyrkju-
maðurinn fer
til himnaríkis
George Harrison
Pabbi
ættleiddi mig
íslendingur í
Barcelóna
Þoli ekki
húmor
Bragi Ólafsson
Skartkonan á
Bessastöðum
Ríkidæmi Dorritar
Hvar verður
skorið?
Innlent fréttaljós
Sjálfvirk vit-
leysa á Hótel
Kaliforníu
Stefán Máni
Bæjartekjur aukast
Tekjur bæjar-
sjóðs Hafnarfjarðar
á næsta ári verða
4.981 mfilj. kr„ eða
sem nemur 4,2%
umfram gjöld.
Skatttekjur aukast
um 14,3% milli ára
og útgjöld um 6%
eða um 270 millj. kr.
Þetta kemur fram í fjárhagsáætl-
un bæjarins sem tekin hefur verið
til fyrri umræðu í bæjarstjóm.
Skíðalyftur opnaðar í dag
Skíðalyftur í Reykjavík verða
opnaðar í fyrsta sinni á þessum
vetri í dag klukkan tíu. Um er að
ræða lyftumar í Breiðholti, Ártúns-
brekku og í Húsahverfi í Grafar-
vogi. Lyfturnar verða framvegis
opnar frá 10 á morgnana til sex á
daginn um helgar og frá 15.45 til
hálfníu á virkum dögum.
Krónan styrkist
Gengi íslensku krónunnar hélt
áfram að styrkjast i gær og endaði
gengisvísitalan í 147,6 stigum. Það
er styrking um rúmt prósent. Krón-
an hefur styrkst seinustu tvo daga
um rúmlega 2%. Gengi Bandaríkja-
dals á móti krónu endaði í dag í 107
kr. og hefur krónan styrkst um tæp
3% í vikunni.
Smáralind á áætlun
Hagnaður af rekstri Baugs eftir
fyrstu níu mánuði ársins var 454
millj. kr. samanborið við 394 millj.
kr. í fyrra. Rekstrartekjur samstæð-
unnar á tímabilinu eru 25,7 millj-
arðar kr. í frétt frá félaginu segir að
rekstur verslana Baugs í Smáralind
séu á betra róli en áætlanir hafi ver-
ið um.
Minningarganga í miðborg
Efnt er til göngu í
miðborginni og
helgistundar í Dóm-
kirkjunni í dag í
minningu látinna
vímuefnaneytenda.
Lagt verður af stað
frá félagsmiðstöð
Samhjálpar á
Hverfisgötu 42 kl. 17. í Dómkirkj-
unni mun Jóna Hrönn Bolladóttir
miðborgarprestur flytja hugleið-
ingar og fleiri atriði verða.
Sjórinn góður
Ástand sjávar er gott og svipað
hefur verið síðustu ár. Hiti er svip-
aður, en selta er heldur minni. Eng-
inn ís var í Grænlandssundi og
fannst hann ekki fyrr en vel uppi á
grænlenska landgrunninu eða fyrir
norðan 67. breiddargráðu. Yfir-
borðssjór var aftur á móti vel fersk-
ur úti undir mitt sund.
Tap upp á 419
millj. kr. varð af
rekstri KEA og
dótturfélaga á
fyrstu níu mánuð-
um ársins.
Eiríkur S. Jó-
hannsson kaupfé-
lagsstjóri segir að
uppgjörið séu vonbrigði. Áfram
verði unnið að því að ná fram hag-
ræðingu. Ytri skilyrði séu óhag-
stæð, vegi þar þyngst staðan á pen-
ingamörkuðum.
-sbs/MA
KEA tapar
Haldið til haga
Á EIR-síðu í gær var rangt farið
með nafn Ragnheiðar Eiríksdóttur
hjúkrunarfræðings sem nefnd var
Ragnhildur. Þá var Ragnheiður sögð
kynlífsfræðingur sem er ónákvæmt
orðalag þótt hún starfi við ráðgjöf á
þessu sviði á persona.is. -EIR