Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Útlönd
DV
Burhanuddin Rabbani
Hertar kröfur Rabbanis vekja iítinn
áhuga samningamanna í Bonn.
Rabbani kynnir
hertar kröfur
Burhanuddin Rabbani, forseti
Norðurbandalagsins í Afganistan,
kynnti í gær hertar kröfur sínar um
framtíð Afganistans, þegar hann tal-
aði á blaðamannafundi í Kabúl. Þar
kom fram að þær eru mun harðari en
kröfur samningamanna Norðurbanda-
lagsins á ráðstefnunni um framtíð
Afganistans, sem þessa dagana fer
fram í nágrenni Bonn í Þýskalandi og
sagði Ahmed Fawzi, talsmaður Sam-
einuðu þjóðanna, að sér fyndist kröf-
ur hans mjög óraunhæfar.
í máli Rabbanis kom fram að hann
vill aðeins fá um 200 erlenda friðar-
gæsluliða til landsins, auk þess sem
hann vill halda kosningar um nýja
ríkisstjórn landsins strax eftir tvo
mánuði, en ekki tvö ár eins og lagt
hefur verið upp með á ráðstefnunni.
„Við höfum þó orð hans fyrir því að
hann muni virða allar niðurstöður
ráðstefnunnar um framtíð Afganist-
an,“ sagði Fawzi.
Einn ráðgjafa Noröurbandalagsins
á ráðstefnunni, sem vildi ekki láta
nafns síns getið, sagði að þetta væru
aðeins persónulegar kröfur Rabbinis,
sem hefðu engin áhrif á framgang við-
ræðnanna í Bonn. „Okkar viðhorf í
Bonn eru að bjóða velkomna þá frið-
argæslumenn sem nauðsynlegir eru
til að tryggja friðinn þar til fullu lýð-
ræði er náð í landinu, eftir að fólkið
hefur kosið sína ríkisstjóm," sagði
ráðgjafmn.
Fjölmiðlarisi á
brauðfótum
Fyrir tíu árum var sænska dagblað-
ið Expressen stærsta dagblað sem gef-
ið var út á Norðurlöndum. Blaðið var
prentað í 566 þúsund eintökum á dag,
hagnaðist verulega á auglýsingatekj-
um sínum og var fyrirmynd skandin-
avískra dagblaða. Nú er öldin önnur,
því síðastliðin fimm ár hefur Ex-
pressen tapað hvorki meira né minna
en níu milljörðum íslenskra króna og
nú era aðeins prentuð 237.600 eintök á
dag.
Aðalritstjóri Expressen, Joachim
Berner, hefur ákveðin svör við vanda-
málum blaðsins. „Dramb er falli
næst,“ segir ritstjórinn og bendir á að
fyrirrennarar hans hafi haft ofurtrú á
því sem blaðiö stóð fyrir á sínum tíma
og einfaldlega ekki fylgst með takti
tímans. Bemer, sem áður var ritstjóri
Dagens Nyheter, var ráðinn í mars sl.
til að reyna að bjarga blaðinu frá
gjaldþroti. Hann er reyndar ekki sá
fyrsti sem freistar þess að koma Ex-
pressen á réttan kjöl en forverum
hans í björgunarstarfinu hefur öllum
mistekist.
Berner segir að blaðið verði að
skera útgjöld sín niður um 2,4 millj-
arða á ári næstu árin, en til að þaö
megi takast verði blaðið að segja upp
þriðjungi starfsfólks síns - tvö hundr-
uð manns af þeim sex hundruð sem
þar starfa.
Expressen er þó ekki eina dagblað-
ið í Skandinavíu sem berst í bökkum.
Danska blaðið Berlinske Tidende er
rekið með miklum halla og verður að
segja upp 118 starfsmönnum. Norska
blaðið Aftenposten á líka í miklum
erflðleikum á markaðnum um þessar
mundir en á þriðja ársfjórðungi þessa
árs tapaði blaðið nær 1400 milljónum
íslenskra króna, mest vegna tapaðra
tekna af auglýsingum. -GÞÖ
Mullah Omar neitar enn að gefast upp í Kandahar:
Talið að lokauppgjörið
hefjist um helgina
Bandarískar sprengjuílugvélar
héldu í gær og nótt áfram árásum sín-
um á Kandahar, einu síðasta vígis
talibana í Afganistan. Um leið hafa
andstæðingar talibana, bæði hersveit-
ir Norðurbandalagsins og pashtúna,
hægt og sígandi nálgast borgarmörkin
og notað sér upplausnarástandið til að
knýja fram uppgjöf talibana á svæð-
inu, en hundruð íbúa borgarinnar og
fjöldi talibanskra hermanna hafa flúið
út fyrir borgina.
Þá hafa bardagar geisað við ílugvöO
borgarinnar síðan í gærmorgun og
voru um áttatíu liðsmenn talibana
handteknir þar í nágrenninu í gær án
nokkurrar mótspymu. Að sögn sjón-
arvotta gáfust þeir skilyrðislaust upp
eftir að hafa verið umkringdir við
flugvöllinn og afhentu vopn sín strax.
Þar að auki voru fimm skriðdrekar
talibana herteknir, auk fjögurra pall-
bíla og ýmissa annarra hergagna, sem
notuð voru við varnir flugvallarins.
Leigubílstjóri, sem í gær yfirgaf
Kandahar, sagði að barist hefði verið
Beöib skipana aö ofan
Bandarískur sérsveitarmaður hreins-
ar byssu sína og annar grefur skot-
gröfmeðan beðiö er skipana að of-
an um næstu aögerðir.
af hörku á svæðinu milli flugvallarins
og borgarinnar, í einskis manns landi,
en ómögulegt hefði verið að átta sig á
því hverjir áttu hlut að máli.
Engar fréttir hafa borist af ástand-
inu innan borgarinnar þar sem tali-
banar hafa fyrirskipað algjört frétta-
bann, en einn talsmanna Norður-
bandalagsins sagði að hersveitir
þeirra hefðu sótt að úthverfum borg-
arinnar í austri og þar stæðu yfir
harðir bardagar.
Um þúsund bandarískir hermenn
era nú í viðbragðsstöðu nálægt borg-
inni, en að sögn talsmanns hersins
munu þeir bíða átekta meðan flugher-
inn leitar uppi allar hugsanlegar
bækistöðvar talibana og al-Qeada
hreyfingarinnar á svæðinu.
Það virðist því sem lokauppgjörið
nálgist óðum og hafa sumir getið sér
til um að látið verði til skarar skríða
um helgina. Mullah Omar, trúarleið-
togi talibana, þráast þó enn við og seg-
ir að uppgjöf eða samningaviðræður
komi ekki til greina.
REUTERMYND
A leiö meö hænsnakippu á markaöinn
Afganskur drengur á leiö með hænurnar sínar á markað í Pakistan þar sem vonin um góða sölu er betri en heima fyrir.
Ekkert lát á óróanum í Kasmír:
Tugir manns hafa fallið
í skærum síðustu daga
Ekkert lát virðist á óróanum í
Kasmírhéraði, sem staðið hefur
stanslaust frá því loftárásir Banda-
ríkjamanna hófust á Afganistan í
byrjum október sl. í skærum gær-
dagsins munu að minnsta kosti 24
hafa látið liflö, eftir aö indverskir
og pakistanskir hermenn skiptust á
skotum við hlutlausa beltiö á landa-
mærum ríkjanna, þriðja daginn i
röð.
í blóðugasta bardaganum, sem
var milli indverskra hermanna og
skæruliða múslíma í fyrrinótt,
munu að minnsta kosti sjö Indverj-
ar hafa látið lffið auk þriggja skæru-
liða í tólf stunda stöðugum skotbar-
daga við landamærabæinn Sopore
rétt norður af Srinagar, sumarhöf-
uðborg Nepals.
í kjölfar bardaganna hafa ásakan-
ir gengið á milli deiluaðila, en Ind-
verjar ásaka pakistanska herinn um
Blóöugt stríö í Kasmír
Tugir indverskra hermanna hafa fall-
iö / skærum gegn aðskilnaðarsinn-
um í Kasmír síöustu daga.
að aðstoða skæruliðasamtök að-
skilnaðarsinnaða i baráttunni gegn
indverskum hersveitum sem aö
sögn indverskra yfirvalda hafa kost-
að 30 þúsund manns lífið en að sögn
aðskilnaðarsinna ekki minna en 80
þúsund manns.
Yfirstandandi óróahrina hófst á
þriðjudaginn en þá léust fimm
manns, þar af þrír lögreglumenn, í
árás skæruliða á indverska eftirlits-
stöð á þjóðveginum milli borganna
Srinagar og Jammu. Á miðvikudag-
inn lágu svo ellefu indverskir her-
menn í valnum, eftir að skæruliðar
höfðu setið fyrir herflutningalest í
Poonch-héraði.
Síðan hefur stööugur órói verið á
svæðinu sem lamað hefur alla starf-
semi og hefur flestum verslunum,
bönkum og menntastofnunum verið
lokað meðan mestu lætin ganga yf-
ir.
BSB.- I
7 ~
Jeltsín fékk þá rauðu
Vladimir Pútín Rússlandsforseti
bauð í gær forystumönnum þeirra ell-
efu ríkja gömlu Sovétríkjanna sem
stofnuðu með sér samband sjálfstæðra
ríkja, CIS, til hátíðarsamkomu í
Kreml. Tilefnið var að tíu ár vora lið-
in frá stofnun rikjasambandsins og
notaði Puútín tækifærið til að heiðra
hinn 70 ára gamla Boris Yeltsin með
rauðu orðunni fyrir góð störf fyrir
föðurlandið, en Jeltsín var fyrsti for-
maður CIS.
Sögulegt atvinnuleysi
Japanar standa nú
frammi fyrir mesta
atvinnuleysi í sögu
landsins síðan
skráning hófst árið
1950, en atvinnuleysi
í landinu mældist 5,4
prósent í október,
eftir að hafa mælst
5,3 prósent í september. Fá tákn eru á
lofti um að ástandið muni batna á
næstunni og virðist atvinnuleysi því
vera orðið varanlegt í þessu næst-
stærsta efnahagsveldi heims. Nýjustu
spár gera ráð fyrir að atvinnulausum
muni fjölga í 7 prósent til ársins 2006.
15 létust úr áfengiseitrun
Lögregluyfirvöld í ríkinu Tamil
Nadu í Suður-Indlandi segjast hafa
handtekiö tvo menn sem grunaðir eru
um ólöglega sölu vínanda sem orðið
hefur aö minnsta kosti fimmtán
manns að bana, en alls höfðu 25
manns veikst af neyslunni þegar síð-
ast var vitað. Þetta gerist aðeins
tveimur mánuðum eftir að 22 létust
eftir neyslu eitraðs vínanda í ná-
grenni höfuðborgarinnar, Madras.
60 farast í ferjuslysi
Yfirvöld í Bangla-
desh tilkynntu í gær
að minnsta kosti 60
manns hefðu farist
þegar farþegaferja
með um 100 manns
innanborðs sökk á
Tetulia-ánni í Bhola-
ríki í suðurhluta
landsins eftir árekstur við flutn-
ingapramma. Þeim sem björguðust
tókst sjálfum að svamla til lands, en
að sögn lögreglunnar er talið að um 20
manns hafi sokkið með ferjunni, fast-
ir neðan þilja.
Sendiherrann heim
írakar hafa kaOað sendiherra sinn í
Tyrklandi heim eftir að fréttir birtust
nýlega um það að hann væri grunað-
ur um að hafa fundað með meintum
félögum í al-Qaeda-hryðjuverkasam-
tökum sem grunaðir era um aðild að
hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjun-
um. Sendiherrann segir að fréttin sé
uppspuni og að hann hafi veriö kaU-
aður heim þar sem tími hans sem
sendiherra í Tyrklandi hafi verið lið-
inn. „Ég hef ekki hitt neina af þessum
mönnum, hvorki innan né utan Tyrk-
lands,“ sagði sendiherrann í viðtali
viö tyrkneska sjónvarpið.
Geimskoti frestað
Tólf daga ferð
geimskutlunnar
Endeavour, sem
skjóta átti út í
geiminn frá Cana-
veral-höfða á
þriðjudaginn, verð-
ur líklega frestað
til fimmtudags
vegna tæknibilana
í alþjóðlegu geim-
stöðinni, en þang-
að er ferð skutl-
unnar heitið. Bilunin er í lendingar-
búnaði geimstöðvarinnar en ætlunin
er að tveir úr áhöfn stöðvarinnar
bregði sér í gönguferð utandyra á
mánudaginn til að gera við bilunina.