Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Page 12
12
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Helgarblað
Afganskur þjóðar-
brotabræðingur
Viðræöur samninganefnda þjóðar-
brotanna í Afganistan, sem fram fóru
i Petersberg-hótelinu i Köningswinter
í nágrenni Bonn í Þýskalandi í vik-
unni, tók heldur betur óvænta stefnu
á fimmtudaginn þegar pashtúninn
Haji Abdul Qadir, fyrrum héraðsstjóri
í Kandahar, hætti að sækja fundi.
Hann taldi að gengið hefði verið á rétt
þjóðarbrots síns þegar kom að vali
fulltrúa i væntanlegt þjóðarráð sem
ætlað er að stjórna landinu til bráða-
birgða þar til varanleg ríkisstjórn
verður væntanlega kosin eftir tvö ár.
Ekki er enn nákvæmlega ljóst hvað
það var sem styggði Qadir en þjóðar-
brot hans, pashtúnar, kemur ekki aö
samningaborðinu í einni heild þrátt
fyrir að vera það fjölmennasta í Af-
ganistan - um 40 prósent íbúanna, að
mestu búsettir í suðurhluta landsins.
Flestir eru talibanar af þessu þjóð-
arbroti og kann það að hafa veikt
samningsstöðu pashtúna. Qadir er
einn af fáum pashtúnum sem gengið
hafa til liðs við Norðurbandalagið,
eftir að hafa í upphafi stutt stjórn tali-
bana en síðan flúið land árið 1996.
Hann er bróðir skæruliðaforingjans
Abdul Haq sem i síðasta mánuði var
handtekinn og líílátinn af talibönum
þegar hann læddist inn í landið til að
fá aðra pashtúnahópa til að snúa baki
við talibanastjórninni.
Styöur ráöageröir SÞ
Qadir lýsti því nýlega yfir að hann
styddi ráðagerðir Sameinuðu
þjóðanna um myndun þjóðstjórnar og
því kom brotthvarf hans nokkuð á
óvart. Það kom ekki síður á óvart þar
sem Qadir var næstæðsti fulltrúinn í
samninganefnd Norðurbandalagsins
og ekki síður vegna þess að pashtún-
ar áttu langflesta fulltrúa á ráðstefn-
unni, eða um 58 prósent þeirra,
dreifða í alla fjóra hópana. Qadir var
nýlega settur héraðsstjóri í Nangar-
har, en um það hérað liggur
þjóðleiðin frá höfuðborginni Kabúl til
Pakistans um Kyberskarð. Þar atti
Qadir kappi við pashtúnska stríðsfor-
ingjann Younis Khalis, en Khalis, sem
þar til nýlega var stuðningsmaður
talibana, fékk í staðinn yfirráð yfir
iandamærabænum Torkham.
Við afgreiðslu málsins reyndi mik-
ið á þolrif foringja hinna ýmsu valda-
hópa á svæðinu sem þurftu að koma
sér saman um það hver tæki við hér-
aðsstjórninni en á meðan æddu
hundruð vopnaðra stríðsmanna
þjóðarbrotanna um götur Nangarhar,
tilbúnir til að styðja þann rétta. Að
lokum var Qadir falið það erfiða
verkefni að stýra héraðinu eftir
tveggja daga viðræður. Að sögn Haji
Hayatullah, sem þátt tók í viðræð-
unum, sýndi niðurstaðan það að pash-
túnar geta vel unnið saman sem sé
mjög jákvætt fyrir þær væntingar
Younis Qanooni
Younis Qanooni, innanríkisráöherra í
Kabúl, er abalfulltrúi Noröurbandalags-
ins I Bonn I fjarveru Burhanuddins
Rabbani, fyrrum forseta, en Qanooni
er þekktur fyrir aö vera andvígur veru
breskra sérsveita í Afganistan. Noröur-
bandalagiö, sem stofnaö var áriö
1996, eftir aö talibanar tóku völdin I
Kabúl, sendi ellefu fulltrúa til Bonn og
er undir miklum alþjóölegum þrýstingi
um aö mynda ríkisstjóm meö þátttöku
allra þjóöarbrota í Afganistan.
Frá fundarstaö í glæsihótelinu í nágrenni Bonn í Þýskalandi sem I tímans
rás hefur hýst ýmsa merka menn og þjóðarleiötoga.
Erlingur
Kristensson
blaöamaður
Erlent fréttaljós
sem gerðar eru til framtíðarinnar.
Að sögn talsmanns samninganefnd-
ar Norðurbandalagsins í Bonn mun
Qadir ekki hafa haldið af landi brott
eins og fréttir hermdu heldur aðeins
tekið sér frí til þess að leggja áherslu
á sín mál. „Hann mun örugglega
koma aftur að samningaborðinu,"
sagði talsmaðurinn og bætti við að
Norðurbandalagið hefði gengið að
öllum grundvallarkröfum SÞ, eins og
um alþjóðlegt öryggisgæslulið undir
stjórn SÞ.
Ruglingslegt landslag
Þegar horft er til líklegra forystu-
manna nýrrar afganskrar ríkisstjórn-
ar er erfitt að gera sér grein fyrir stöð-
unni. Pólitískt landslag er vægast sagt
mjög ruglingslegt og því erfitt að gera
sér grein fyrir því hver styður hvern.
Stanslaus stríð og skærur síðustu 23
árin hafa sundrað þjóðinni og margir
stríðsherrar, hver með sinn herinn,
hafa komið sér fyrir í hinum ýmsu
héruðum og borgum Afganistans og
jafnvel skipað sjálfa sig héraðsstjóra.
Meira að segja einar kosningar hafa
farið fram í landinu, þegar um 700 út-
valdir fulltrúar Herat-héraðs kusu sér
borgarstjóra í fyrstu „lýðræðislegu"
kosningunum sem fram hafa farið í
landinu í næstum 30 ár. Sigurvegari
kosninganna, með miklum yfirburð-
um, varð súnni-múslíminn Mohamm-
ed Rafigh Mojaddedi, vel þekktur em-
bættismaður í héraðinu, sem þótti
hafa staðið sig vel sem tengiliður
fólksins við talibanastjómina i Kabúl
Houmayoun Jareer
Younis Qanooni, fyrrverandi utanrík-
isráöherra Afganistans og tengda-
sonur pashtúnska stríösherrans Gul-
buddins Hekmatyar, sem þekktastur
er fyrir tortímingu Kabúl árin 1992
til 1996, er aöalfulltrúi Kýpur-hóps-
ins svokallaða í fjarveru Ismails
Khans, sem nú situr meö tadjéka-
sveit sína um síðasta vígi talibana í
Kandahar. Hópurinn nýtur stuönings
írana og er aö mestu skipaöur shíta-
múslímum frá Harat-héraöi.
og ekki hefur skemmt fyrir að hann er
innundir hjá Ismail Khan, helsta
stríðsherra hérðaðsins og fyrrverandi
héraðsstjóra. Khan, sem betur er
þekktur sem „Ljónið frá Herat“, er
tadjéki og var foringi 1 sveitum muja-
hideed-skæruliða á tímum Sovét-
stríðsins. Hersveitir hans hertóku
Herat stuttu fyrir fall Kabúl og veittu
liðsmenn hans talibönum eftirfór suð-
ur til Kandahar, þar sem þeir bíða nú
færis á að ráðast til atlögu. Eftir að
talibanar komu til valda árið 1994
hnepptu þeir Khan í fangelsi en hann
slapp frá þeim þremur árum síðar og
flúði þá til írans, þar sem hann dvaldi
þar til fyrir skemmstu í skjóli írönsku
stjórnarinnar.
Hugsanlegir leiðtogar
Þegar litið er yfir foringjaflóruna
koma þrjú nöfn fyrst upp í hugann
sem hugsanlegir leiðtogar. Það eru,
auk Zahirs Shah konungs, þeir Burha-
nuddin Rabbani, leiðtogi Norður-
bandalagsins og fyrrverandi forseti
landsins, og Abdullah Abdullah, utan-
ríkisráðherra Norðurbandalagsins.
Rabbani, sem var hrakinn frá völdum
árið 1996, þegar talibanar tóku völdin
í Kabúl, er enn þá viðurkenndur for-
seti landsins af Sameinuðu þjóðunum
og verður því að teljast líklegur leið-
togi. Hann er þó umdeildur og sér-
staklega af þeim sem muna tímabilið
þegar hann réð ríkjum 1 Kabúl.
Hann varð fyrst forseti árið 1992,
þegar leppstjórn Sovétmanna gerði
hann að forseta, og fékk síðan að sitja
áfram í embætti næstu fjögur árin á
eftir, eftir að mujahideen-skæruliðar
höfðu tekið völdin í landinu. Hann
neitaði að gefa þeim eftir embættið og
þar sem fylgismenn hans og flokkur,
Jamiat-e-Islami, héldu áfram yfirráð-
um í Kabúl, þrátt fyrir stöðugar skot-
árásir andstæðinganna, hékk hann
áfram í embætti þar til talibanar tóku
Hamid Gailani
Hamid Gailani er aöalfulltrúi svokall-
aös Pesawar-hóps í fjarveru fööur
síns, pashtúnaklerksins Pir Sayeed
Ahmed Gailanis, sem sæti átti í muja-
hideen stjórninni á árunum 1992 til
1996. Áöur hafði klerkurinn flúiö
Afganistan eftir kommúnistabyltinguna
og stofnaö íslömsku þjóöarfylkinguna
í Peshawar. Peshawar-hópurinn, sem í
upphafi var myndaður af pathan-for-
ingjum, er stærsti þjóöernishópurinn í
Bonn og styður endurkomu konungs.
höfuðborgina árið 1996. Það var pash-
túninn Gulbuddin Hekmatyar, sem
stjórnaði skotárásunum á Kabúl á ár-
unum 1992 til 1996, á meðan Rabbani
hékk þar við völd, og má því segja að
hann sé ábyrgur fyrir dauða þeirra 25
þúsund borgarbúa sem fórust á því
skelfingartímabili.
Valdabrölt
Áöurnefndur Hekmatyar er leiðtogi
Hezb-e-Islami-flokksins sem skipaði
langöflugustu liðssveit mujahideen-
skæruliða í tíu ára stríðinu gegn Sov-
étherjunum, en liðssveitir mujahi-
deen voru dyggilega studdar af yfir-
völdum í Pakistan og nutu einnig öfl-
ugs styrks frá Bandaríkjunum. Hek-
matyar gekk síðar til liðs við norðan-
manninn Dostum, foringja íslömsku
þjóðarfylkingarinnar, en Dostum
hafði áður barist með mujahideen en
snúist gegn þeim eins og Hekmatyar í
miklu valdabrölti sem einkenndi árin
áður en talibanar tóku völdin. Dost-
um er í dag einn helsti foringi herja
Norðurbandalagsins . og stýrði m.a.
hertöku borgarinnar Mazar-e-Sharif.
Forsetinn fyrrverandi segist sjálfur
ekki sækjast sérstaklega eftir völdum
og sagðist mundu sætta sig við þá
niðurstöðu sem fengist á ráðstefnunni
í Bonn. „Það sem þjóðin þarf er friður
og tími til að byggja sig upp eftir
hræðilegar styrjaldir og mannfórnir,"
sagði Rabbani sem gerir sér vel grein
fyrir umdeildri stöðu sinni.
Rísandi stjarna
Norðurbandalagið mun þó örugg-
lega leggja áherslu á að halda valda-
stöðu sinni í landinu og þá er eðlilegt
að litið sé til Abduliah Abdullah sem
verið hefur helsti talsmaöur banda-
lagsins að undanförnu. Hann býður af
sér góðan þokka og var góður vinur
Ahmed Shah Massouds sem útsend-
arar talibana drápu rétt fyrir hryðju-
verkaárásirnar í Bandaríkjunum.
Hann er fæddur og uppalinn í Panjs-
hir-dalnum og telst það til tekna að
eiga tadjéskan fóður og pashtúnska
móður. Hann er menntaður læknir
með doktorsgráðu og talar fjölda
tungumála, þ.á m. ensku og frönsku,
reiprennandi. Hann er félagi í flokki
Rabbanis og verður því að teljast
rísandi stjama í Afganistan, einn
fárra sem ekki þurfa að þvo af sér
blóðferilinn.
Hér hafa aðeins fáir af stríðs-
herrum verið nefndir til sögunnar og
lítið er vitað um afstöðu þeirra flestra,
enda flestir þekktir fyrir annað en
hugsjónir og verið falir fyrir rétt verð.
Athygli vekur að fæstir þeirra eru
mættir til fundarins í Bonn heldur
hafa þeir sent fulltrúa sína meðan
þeir sjálfir hamast við að knésetja
talibana og um leið tryggja sér
valdastöðu í komandi ríkisstjórn.
Abdul Sattar Sirat
Pashtúninn Abdul Sattar Sirat er aö-
aifuiltrúi Rómar-hóps Zahir Shahs,
hins 87 ára fyrrverandi konungs
sem verið hefur í útiegö i Róm frá
árinu 1973. Mikiar vonir eru bundn-
ar viö konunginn sem sameiningar-
tákn afgönsku þjóöarinnar, en hann
er pashtúni frá suöurhtuta Afganist-
ans, þaöan sem flestir stuöning-
smenn talibana eru. Tvær konur eru
í sendinefnd konungs, þ.á m. kven-
réttindakonan Rona Mansuri.
x>v
Pashtúnar fóru heim
Spenna milli þjóðarbrotanna í
Afganistan kom upp á yfirborðið í
viðræðunum um framtíöarskipan
stjórnar landsins sem fram fóru ná-
lægt Bonn í Þýskalandi í vikunni.
Helsti fulltrúi pashtúna, stærsta
þjóðarbrots Afganistans, fór burt í
fússi þar sem honum fannst
pashtúnar ekki eiga nægilega
marga fulltrúa miðað við stærð
þjóðarbrotsins. Þá kvörtuðu hazar-
ar yfir hinu sama og sögðu jafn-
framt að úsbekar ættu heldur ekki
nógu marga fulltrúa í viðræðunum.
Uppreisn kveöin niður
Talið er að um sex hundruð tali-
banar og erlendir liðsmenn þeirra
hafi fallið þegar uppreisn þeirra í
virki við borgina Mazar-i-Sharif í
norðurhluta Afganistans var kveðin
niður. Blóðugir og harðvítugir bar-
dagarnir stóðu yfir í þrjá daga áður
en yfir lauk. Bandarískar ílugvélar
vörpuðu meðal annars sprengjum á
virkið þar sem talibanamir höfðu
verið í haldi. Meöal þeirra sem féllu
var bandarískur liðsmaður leyni-
þjónustunnar CIA.
Ný stjórn í Danmörku
Ný minni-
hlutastjórn
tveggja borgara-
flokka, undir for-
ystu Anders
Foghs Rasmus-
sens, tók við
völdum í Dan-
mörku á mið-
vikudag. Stjórn-
in þarf meðal annars að reiða sig á
stuðning Danska þjóðarflokksins
sem byggði kosningabaráttu sína á
andúð í garð útlendinga, einkum þó
múslíma. Flokkurinn fær líka fimm
nefndaformenn í þinginu að laun-
um. Anders Fogh sagði í vikunni að
ráðherrar stjórnarinnar yrðu að
standa í stykkinu.
Sótt að Kandahar
Bandarískar herflugvélar héldu
uppi loftárásum á borgina Kanda-
har, síðasta vígi talibana í
suðurhluta Afganistans, á föstudag.
Þá eru hersveitir andstæðinga tali-
bana að búa sig undir lokaátök um
borgina. Foringi hersveita pashtúna
hefur skipað Norðurbandalaginu að
halda sig fjarri.
Enn meira mannfall
Ekkert lát var á
átökum ísraelskra
hermanna og
Palestinumanna í
vikunni og féU
flöldi manna. Á
fimmtudag féllu að
minnsta kosti fjór-
ir þegar Palestínu-
maður gerði sjálfs-
morðsárás í langferðabíl í ísrael.
Fyrr í vikunni höfðu þrír ísraelar
fallið í hefndarárásum fyrir morð á
leiðtogum Palestínumanna. Það
blæs því tæpast byrlega fyrir sendi-
menn Bandaríkjastjórnar sem eru
nú í ísrael að reyna að fá deilendur
til að fallast á vopnahlé.
Konur í stjórnina
Hart var lagt að
fulltrúum á ráð-
stefnu afgönsku
þjóðarbrotanna í
Þýskalandi að
hleypa konum inn í
væntanlega stjórn
Afganistans. Laura
Bush, forsetafrú í
Bandaríkjunum,
lagði sitt lóð á vogarskálarnar í vik-
unni en hún hefur svnt stöðu
kvenna í Afganistan áhuga. Evr-
ópskar kvenréttindakonur messuðu
einnig yfir fulltrúunum á fundinum
í Þýskalandi sem flestir eru karl-
menn.