Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Helgarblað
DV
DV-MYND: BRINK
Stefán Mání rithöfundur
„Bókin fjattar heldur ekkert um frystihúsiö eöa fiskvinnsluna, fiskveiöiþjóöina eöa kvótann, hún fjallar bara um ungan mann sem vinnur í fiski. ísland
er bara ísland - þaö er annaöhvort sveitin, fiskurinn eöa höfuöborgin. Ef viö værum í Ameríku gæti aöalsöguhetjan alveg eins unnið í maísbauna-
fabrikku eöa á nautabúgaröi - þaö skiþtir ekki máli - þaö er hugarástandiö sem rúlar í þessari bók."
Sjálfvirk vitleysa á
Hótel Kaliforníu
Sagan Hótel Kalifomía gerist í litlu
sjávarplássi úti á landi og auðvitað
kemur í ljós við eftirgrennslan að höf-
undur þekkir slíkar aðstæður mjög
vel.
„Ég er frá Ólafsvík, sem er jú lítið
vertíðarbæli, og þangað sæki ég að ein-
hverju leyti söguumhverfið. Ég bjó í
Ólafsvík í 25 ár og vann í frystihúsi,
rækju og saltfiski. Auðvitað notar
maður það sem maður þekkir.“
- Heldurðu að sögusviðið verki frá-
hrindandi á einhverja lesendur - að
einhverjir hafi þá skoðun að sjávar-
þorpið sem sögusvið sé orðið klisja í ís-
lenskum bókmenntum?
„Já, en það er ástæðulaus ótti. Ég
held að það hafi ekki verið skrifað svo
mikið um sjávarþorpin, ég hygg að það
sé frekar „landsbyggðarvælið" og allt
talið um flóttann og kvótann sem fólk
er orðið þreytt á. Landsbyggðin sjáif er
stórskemmtOeg og mér þykir mun
skemmtilegra að skrifa um unga menn
úti á landi, sem em að takast á við líf-
ið, heldur en hér í miðbæ Reykjavíkur,
sem ansi oft hefur verið gert. Það má
segja að Hótel Kalifornía sé andstæðan
við 101 Reykjavík - en ekki sem klisja,
bara íslenskur raunveruleiki. Bókin
fjallar heldur ekkert um frystihúsið
eða fiskvinnsluna, fiskveiðiþjóðina eða
kvótann, hún fjallar bara um ungan
mann sem vinnur í fiski. ísland er
bara ísland - það er annaðhvort sveit-
in, fiskurinn eða höfuðborgin. Ef við
værum í Ameríku gæti hann alveg
eins unnið í maísbaunafabrikku eða á
nautabúgarði - það skiptir ekki máli -
það er hugarástandið sem rúlar í þess-
ari bók.“
Verkamaður gerist ríthöfundur
Stefán Máni segir samt að hann hafi
ekki látiö sér til hugar koma að ílend-
ast í Ólafsvík eins og nafni hans í bók-
inni, enda hafi hann fljótlega flutt suð-
ur eftir að hann byijaði að skrifa og
fór að langa að gefa út efni.
- Nú eru margir rithöfundar sem
segja miklar sögur af æsku sinni. Hafa
verið bókhneigð böm og gáfuð í meira
lagi. Var það svoleiðis með þig?
„Ja, ég las mikið. Ég byrjaði
snemma að lesa og las mikið fram á
unglingsaldur en hætti því síðan alveg.
Ég flosnaði svo snemma upp úr skóla
og fór að vinna verkamannavinnu í
Fyrsti dómurinn sem Stef-
án Máni hlaut fyrir bók
sína, Hótel Kalifornía, var
þegar Kolbrún Bergþórs-
dóttir hœldi henni á hvert
reipi í Kastljósi. Hún not-
aði stór orð, eins og Upp-
götvun ársins, og var ber-
sýnilega mjög hrifin. Dag-
inn eftir eignaðist Stefán
Máni svo sitt fyrsta bam.
Þetta hafa verið ham-
ingjudagar: ,Já, “ segir
Stefán Máni og brosir. „Ég
stákk reyndar upp á því
að stelpan fengi að heita
Kolbrún Bergþóra, en það
fékkst ekki samþykkt. Jú,
þetta er tvöföld hamingja
- tvö börn. Annað í bleiu
og hitt í kápu og mikil
vinna í kringum þau bœði
eins og er.“
Ólafsvík. Ég las ekkert í tíu ár eða svo
og veit hreinlega ekki hvemig það datt
niður í mig að fara að skrifa. Ég ákvað
það ekki heldur byrjaði bara á því
einn daginn, þegar ég var 23 ára, að
skrifa bamabók sem er enn einhvers
staðar niðri í skúffu. Ég hefði aldrei
trúað þvi sjálfur að ég ætti eftir að
skrifa meira en raunin varð önnur.“
Stefán Máni segist hafa reynt árang-
urslaust að fá handrit sín útgefin þeg-
ar hann var kominn suöur en endaði á
því að gefa sjálfur út söguna Dymar á
Svörtufjöllum. Hann segist siðan hafa
fengið fullvissu þess að hann væri
kominn á rétta hillu þegar Mál og
menning samþykkti að gefa út bók
númer tvö, Myrkravél, árið 1999.
„Þá fannst mér ég fá ákveðna viður-
kenningu og fékk á tilfinninguna að
þetta væri pínulítið farið að ganga en
ég tók það samt ekki of hátíðlega. í dag
er ég hins vegar kominn á gott skrið,
hef byggt upp sjálfstraust og finnst ég
hafa vald yfir því sem ég er að gera.“
Tilgangur Mónu Lísu
Sögusviöið var einhvers staðar und-
irliggjandi en hvenær kviknaði hug-
myndin að sögunni?
„Ég hóf að skrifa þessa sögu fyrir
tveimur árum, skömmu eftir að
Myrkravél kom út. Mig langaði ein-
faldlega að segja sögu þessa manns - í
umhverfi sem ég þekki mjög vel. Það
var eitthvað sem sótti á mig.“
- En hvaöa erindi á hann við okkur?
svo ég api spumingu eftir gagnrýn-
anda DV í dómi sínum um bókina.
„Tilgangurinn er fyrst og fremst sá
að lesandinn hafi gaman af því að lesa
bókina," segir Stefán Máni. „Ég kaus
að lýsa aðalpersónunni þannig að les-
andinn fari inn í höfuð hans og gangi
með honum gegnum hans daglega líf,
innan og utan vinnu, og hans næturlíf.
Að lesandinn sé inni í öllum hans
verkum og hugsunum, inni í hjarta
hans og tilfinningum. Það er ákveöin
upplifún að fá að vera með einni
manneskju í sigrum hennar og ósigr-
um - og sá er tilgangur bókarinnar.
Hún á að vera fyndin, hún á að vera
sorgleg, hún á að vera skemmtileg. Ef
það tekst þá er tilganginum náð.“
- Hafa þá listaverk einhvem tilgang?
„Nei, ætli þaö, ekki þannig, og þó,“
segir Stefán Máni og glottir. „Hver er
tilgangurinn með Mónu Lísu? Hún hef-
ur engan tilgang, hún hangir bara uppi
á vegg og er gersamlega ómótstæðileg.
Ég er ekki að færa neinn boðskap - í
bókinni birtist bara ákveðin stemning,
hugarheimur og umhverfi. Ef fólk
kann að meta það sem það sér eða les
eða heyrir þá er tilganginum náð.
Punktur.“
Svolítið skrýtinn
Bókin gerist fyrir u.þ.b. tuttugu
árum og Stefán segist hafa staðsett
hana þar til þess að eiga hægara með
að tengja saman sögu þriggja kynslóða.
Hann bætir þvi við að reyndar sé tíma-
bilið mjög skemmtilegt og svolítið
fyndið.
„Sjávarþorpið er leiksvið fyrir sög-
una. Bókin heitir eftir þessu fræga
rokklagi sem fjallar um hótel þar sem
fólk drekkur og dansar og syngur að
eilífu - og kemst aldrei burt. Þetta er
draumaheimur Stefáns nafna míns í
bókinni og þetta lag hiustar hann á
þegar hann er að raka sig og fá sér í
glas á laugardagskvöldum. Hotel Cali-
fomia er hans útópía en svo lifir hann
sjálfur í annars konar lokuðum heimi,
köldum og hráum og einmanalegum,
sem hann vill komast út úr.“
Stefán Máni segir að bókin sé stúd-
ía á þessum karakter sem blaðamanni
þykir undarlegur í meira lagi. Hvað er
eiginlega að honum?
„Já, hann er svolitið skrýtinn,“ seg-
ir Stefán Máni og hlær. „Hann les iila
úr skilaboðum sem hann fær í mann-
legum samskiptum og hann er mjög
„inní sér“ eins og maður segir. Þau
samskipti sem hann ræður við em við
dýr eða hluti. Hann ræður mjög illa
við fólk. Tilganginn finnur hann í hinu
smáa og endurtekningunni en hann er
kvíðinn, greyið, og mjög einmana.
Hann hrærist í heimi sem er svolítið
eins og leikrit sem enginn leikstjóri er
að. Áhorfendumir em famir heim en
leikaramir era enn að vafra um í
sviðsmyndinni og segja línumar sínar
á kolvitlausum stöðum - af gömlum
vana. Þetta er orðin sjáifvirk vitleysa."
Rafmagnsleysi í Ólafsvík
Stefán Máni segir að fólk sé mjög
spennt í Ólafsvík þar sem nokkuð liggi
á lausu hvar fyrirmyndin að sögusviði
bókarinnar er. Þessi spenna sé beggja
blands.
„Sumir spyrja hvum djöfulinn ég sé
að gera og hugsa mér jafnvel þegjandi
þörfina en aðrir era jákvæðir. Þegar
gagnrýnin um bókina var í Kastljósi
fór rafmagnið af i Ólafsvík og síðan aft-
ur þegar þátturinn var endurtekinn
seinna um kvöldið. Þegar fjallaö var
um bókina í Víðsjá i vikunni á eftir þá
datt Rás 1 út. Ég sagði við mömmu að
þetta væri nú magnaðasti dómur sem
ég hefði fengið."
Það er svolítið í tísku að láta höf-
unda gera upp á miili annarra höfunda
í viðtölum. Hvaða höfundur fmnst þér
vera með besta verkið á þessari vertíð?
„Ég verð að nefna Óskar Áma Ósk-
arsson og Lakkrísgerðina hans. Það er
stórskemmtileg bók, falleg og róman-
tísk og fyndin. Hann er langbesti
prósahöfundur á landinu en stórkost-
lega vanmetinn."
Þegar Stefán Máni er beðinn að
segja frá vinnunni við næstu bók, sem
ég veit að hann er byrjaður á, harð-
neitar hann að tjá sig um hana. Eins
og sakir standa viil hann ekki upplýsa
mikið um söguefnið en segir þegar
gengiö er á hann: „Við getum sagt að
hún heiti Höfundur Grænlands og
fialli um selinn Snorra Sturluson, ást
og kynlíf." Þá vitum við það.
-þhs
Fullt nafn: Bergljót Arnalds.
Fæðingardagur og ár: 15.
október 1968.
Maki: Aziz Mihoubi.
Börn: Matthías Arnalds.
Bifreið: BMW Z3 sporthíll.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Skapa.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Að eyða tímanum til
einskis.
Uppáhaldsmatur: Pasta með
sveppafyllingu og hvítlauksrjóma-
lagaðri sósu ásamt salati að hætti
heimilisins.
Uppáhaldsdrykkur: Ferskt ís-
lenskt vatn beint úr krananum.
Hvaða íþróttamaður finnst
þér standa fremstur í dag? Úff,
það eru svo
margir góðir,
t.d. Zidane.
Hver er
fallegasti
karl sem þú
hefur séð
fyrir utan
maka?
Súperman,
já, og
Herkúles, harm er með svo fallega
vöðva.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkis-
stjórninni? Ég vil fá að halda
mínum pólitísku skoöunum fyrir
mig.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Jesúm Krist.
Uppáhaldsleikari: Bergljót
Arnalds.
Uppáhaldsleikkona: Marilyn
Monroe.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Brahms sem tónskáld.
Uppáhaldsrithöfundur: Þeir
eru svo margir. Ehm, má velja
sjálfan sig?
Uppáhaldsbók: í LEIT AÐ
TÍMANUM.
Uppá-
haldsstjórn-
málamaður:
Gandhi.
Uppá-
haldsteikni-
myndaper-
sóna: Stafa-
karlarnir.
Þeir eru
bæði is-
lenskir og
klassískir.
Eftirlætissjónvarpsefni: Frétt-
ir, myndbönd og bíómyndir. Og
svo auövitað 2001 nótt þegar hún
er á dagskrá.
Á hvaða útvarpsstöð hlust-
arðu helst? Ég á ekkert útvarp.
Ég hlusta mest á diska og svo
fólkið og umhverfið í kringum
mig.
Uppáhaldssjónvarpsstöð: Það
fer eftir því hvað klukkan er.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Talnapúkinn. Hann er fyrsta
teiknimyndapersónan sem stjórn-
ar heilum sjónvarpsþætti.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Hótel jörð.
Stefnirðu að einhverju sér-
stöku í framtfðinni? Já, en það
er leyndó.
Hvað óttastu mest? Hrylling
eins og að lenda í stríöi eða pynt-
ingum.
Hvaða eft-
irmæli viltu
fá? Eftir-
mælin
skipta ekki
svo miklu
máli heldur
frekar það
sem maður
hefur skilið
eftir, bæði með verkum sínum
og í minningu fólks, þá sérstak-
lega þeim sem manni þykir vænt
um.