Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Helgarblað
x>v
Jólagjafavertíðin er hafin með viðeigandi kvíðaköstum:
Æ sér gjöf til gjalda
En
aftur að
tilhugalíf-
inu. Hvað á að
gefa þeim sem líf-
ið er nýlega byrjað
að snúast um? Á fyrstu
jólum í sambandi er ekki
ólíklegt að haldið sé upp á
þau í sitt hvoru lagi. Því verður
að gera ráð fyrir (og þetta má alls
ekki gleymast) að gjafimar frá þeim
elskaða verði teknar upp í viðurvist
náinna ættingja viðkomandi. Það
gæti því komið sér óþægilega fyrir
þann ástfangna ef upp úr jólapakk-
anum frá þeim elskaða kemur latex-
klæðnaður og leðursvipa af vand-
aðri sort. Það gæti skemmt nokkuð
fyrir framhaldinu.
Allar efasemdir staöfestar
Hin hefðbundna kjarnafjölskylda
hefur á undanfomum áratugum ver-
ið að leysast upp og er hún nú kom-
in í minnihluta hér á íslandi. Fjöl-
skyldumynstrið er því allt orðið
flóknara og skyldi reynsla Mjallhvít-
ar og Öskubusku höfð í huga. Þær
lentu sem kunnugt er í því að feður
þeirra kvæntust konum sem var
ekki mjög hiýtt til stjúpdætra sinna.
í blönduðum fjölskyldum verður
sérstaklega að huga að því að ekki
sé gert upp á milli bama. Og börnin
mega heldur ekki gera upp á milli
systkina sinna ef jólahátíðin á að
vera ánægjuleg.
Það er ekki bara erfitt að gefa,
það er einnig erfitt að þiggja. Og
eftirvæntingin er ekki til að auð-
velda málið því það er sama
hversu jarðbundið og hógvært fólk
er þá gerir það alltaf ráð fyrir þvi
að sá sem gefur því gjafir þekki
það vel og viti hvað það vilji. Þvi
verður það ekki aðeins fyrir von-
brigðum þegar það tekur upp
kremuðu peysuna frá
besta vininum held-
ur veldur það
sárindum sem eru
misjöfn að dýpt. „Með því eru stað-
festar allar okkar efasemdir um að
okkar nánustu þekki okkur ekki,“
segir sálfræöingurinn Frank Pitt-
man, og það viljum við ekki.
Gleöi jólanna þrátt fyrir allt
Jólin eru á næsta leiti og frá og
með deginum í dag er líklegt að
jólavertíðin nái fullum tökum á
okkur. Það borgar sig að vera tím-
anlega með alla hugmyndafræðina
í sambandi við jólagjafir ársins svo
hátíðin fari ekki úr böndunum.
Mikilvægt er að reyna að halda
jólakvíðanum niðri og teyga í sig
glaðlega hluta jólanna, jólaljósin,
jólalögin og jólabækurnar. Gleði-
lega aðventu.
-sm
gjöfum handa sín-
um nánustu. Gjöf er nefnilega ekki
sama og gjöf. Maðurinn hefur í
gegnum aldimar þróað með sér
mikilvægar hefðir í sambandi við
gjafir. Mannfræðingurinn Richard
Handler segir að gjafir séu gríðar-
lega þýðingarmiklar í mannlegum
samskiptum. Þær geti verið fullar af
merkingu og skilaboðum. Þær hafi
1 öllu því ævisagnaflóði sem
steypst hefur yfir íslendinga síðustu
áratugina hefur fólk komið fram
með ótrúlegustu játningar. Virðu-
legt fólk hefur játað á sig framhjá-
höld, einkennilegar kynlífstilhneig-
ingar, hárígræðslur og glæpsamleg
athæfi. Það hefur fleygt mannorði
sínu með berorðum lýsingum á inn-
ræti sínu og fómað samböndum við
vini og fjölskyldur vegna strípaðrar
hreinskUni. En hafið þið einhvem
tíma lesið í ævisögum frásagnir af
því hvemig fólk hefur sært hvert
annaö með lélegum gjöfum, gildis-
hlöðnum gjöfum eða jafnvel óskUj-
anlegum gjöfum? Líkast tU ekki því
fólk vill ekki ganga of langt í ævi-
sagnaritun. Gildi gjafarinnar í sam-
félaginu er mikið og ristir djúpt í
þjóðarsálinni.
Gjöf 102
Eftir því sem erlendir vísinda-
menn telja má ljóst vera að gjafaval
gangi mjög nærri fólki. Það er
nefnilega ekkert smámál að velja
gjafir handa þeim sem standa
manni næst. Skólakerfið tekur lítið
á gjafamálum og mikilvægi þeirra.
Það er helst að það slæðist inn vit-
neskja um gjafamóralinn í gegnum
kennslu á íslenskum fornsögnum. í
leik- og grunnskólum eru börn lát-
in búa tU persónulegar gjafir handa
sínum nánustu og er það i fínu lagi
(svo lengi sem þetta eldist af þeim,
myndi einhver segja).
í Hávamálum er siðaboðskapur
forfeðra okkar og segir meðal ann-
ars:
Vin sínum
skal maöur vinur vera
og gjalda gjöf vió gjöf.
Skammdegisþunglyndi
Sólin nær hápunkti sínum í júní
og eftir það liggur leið hennar að-
eins niður á við. Byrja þá einhverj-
ir að hugsa tU jólanna og skamm-
degisþunglyndisins. Eftir því sem
líöur á árið minnkar birtan og
gjafakvíðinn eykst. Sumir vilja
kenna myrkrinu um líðan sína í
nóvember og desember en líklegt er
að þar spili jólin inn í. William
Doherty, prófessor í fjölskyldufé-
lagsfræði við University of
Minnesota, segir að fyrir flest fólk
sé það að velja gjafir „það sem fer
verst með taugarnar". Það sem ætti
aö lífga upp á skammdegið dregur
því sennilega marga niður.
Kvíðinn er tvískiptur. Sumir
kvíða því sem þeir munu rífa upp úr
pökkunum sínum en aðrir, og eru
þeir í meirihluta, kvíða
valinu á
- sálfræði gjafanna er flókin
„Af hverju gefur hún mér alltaf vestl?“
Jólin eru erfiöur tími fyrir marga. Samkvæmt amerískum rannsóknum tekur þaö mjög á einstakiinga og sambönd aö
veija og kaupa gjafir. Sálfræöi gjafanna er enda flókin og merking gjafa misjöfn.
verið notaðar í öllum samfélögum
jarðarinnar. Af gjöfunum skuluð þið
þekkja þá, segir Handler og bendir á
að gjafirnar segi ekki síður mikið
um þann sem gefur en þann sem
þiggur. Gjafir lýsa stöðu þess sem
gefur, virðingu hans fyrir þeim sem
þiggur og velþóknun hans. „Gjafir
búa til sterk bandalög og sýna holl-
ustu fólks,“ segir Robert Cialdini
sem skrifaði bókina Influence: The
Psychology of Persuasion.
Kertiö og gullúrið
Gjafir verða að uppfylla ákveðin
grundvallarskilyrði til að virka vel.
Viðamikil rannsókn var gerð í
Bandaríkjunum á áttunda og ní-
þetta. Eru þá tvær leiðir til að fyll-
ast leiða: annars vegar getur
maður svekkt sig yfir guflúrinu
sem þú gafst á móti og hins vegar
er hægt að fyllast samviskubiti
vegna þess að líklegt má telja
að þegar kertagjafamann-
eskjan tekur upp gullúrið
muni hún tárast af leiða
vegna kertisins. En kannski
var þetta bara svíðingur sem á
sömu stundu og þú kveikir á
kertinu þinu sé hin manneskjan
að skrifa niður gróðann vegna hag
stæðs vöruskiptajöfnuðar.
Alklæðnaður úr latexi
„Gjafir eru tákn um ást okkar,
unda áratugnum þar sem nokkur
hundruð fjölskyldur hleyptu vís-
indamönnum inn í líf sitt og gjafa-
mynstur. í niðurstöðum rannsókn-
arinnar kom meðal annars fram að
góð gjöf þurfti að koma þiggjandan-
um á óvart, sýna að sá sem gaf
þekkti hann vel og verðmæti gjafar-
innar skyldi endurspegla það verð-
mætamat sem sá
sem gefur leggur á sambandið við
þann sem þiggur.
Þetta virðist kannski ekki mjög
flókið í framkvæmd en sá sem gefur
gjöf eyðir í hana álíka miklu og
hann býst við að fá til baka. Maður
getur því huggað sig við það ef mað-
ur fær eitt kerti pakkað í jólasveina-
pappír aö líklega sé gefandinn með
einhverja minnimáttarkennd og
telji sig ekki vera meira virði en
Erfiðustu jólin eru
kannski þau fyrstu í sam-
bandinu en þá ríður á að
sýna af fullum krafti
elsku sína og aðdáun,
þekkingu á þeim sem
maður elskar og óskir um
framtíðina. Ameríski sál-
frœðingurinn Dickson Di-
amond heldur því fram
að dýrar gjafir séu ekki
alltaf lausnin í slíkum
tilfellum. „Ef karlmaður
gefur konu óvenju glœsi-
lega og dýra gjöf gœti
hún fengið það á tilfinn-
inguna að hann vilji frek-
ar gefa henni einhvern
hlut en ást sína. “
segir Ronald Nathan, prófessor við
Albany Medical College i New York.
Það kannast eflaust margir við
vandræðin við að finna gjöf handa
þeim sem maður elskar. Sumir ýta
þessu á undan sér út desember og
eru jafnvel að þvælast um miðbæ-
inn og Kringluna fram til tólf á að-
fangadag þegar flest heiðvirt fólk er
étandi grauta. Erfiðustu jólin eru
kannski þau fyrstu í sambandinu en
þá ríður á að sýna af fullum krafti
elsku sína og aðdáun, þekkingu á
þeim sem maöur elskar og óskir um
framtíð-
ina. Ameríski sálfræðingurinn
Dickson Diamond heldur því fram
að dýrar gjafir séu ekki alltaf lausn-
in í slíkum tilfellum. „Ef karlmaður
gefur konu óvenju glæsilega og dýra
gjöf gæti hún fengið það á tilfinning-
una að hann vilji frekar gefa henni
einhvern hlut en ást sína.“
Sambönd eru blessunarlega ólik.
Heyrst hefur af karlmönnum sem
gefa konum sínum borvélar í jóla-
gjöf og konur hafa eflaust einhverj-
ar gefið eiginmönnum sínum safn
gylltra heklunála í handmáluðum
kössum. Það er allt í lagi að gefa
slíkar gjafir því gera verður ráð fyr-
ir því að fólk þekki þann sem það
elskar. En að taka upp á því að gefa
konunni sinni borvél bara vegna
þess aö það féfl svo vel í kramið hjá
konu vinar þíns um síðustu jól er
áhætta sem ekki ætti að taka.