Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
45
DV
Helgarblað
Geirfinnsmálið 27 árum síðar:
Persónur og leikendur
Arið 1974
hurfu tveir menn
sporlaust. Guð-
mundur Einars-
son, tvítugur pilt-
ur úr Blesugróf,
hvarf 27. janúar.
Geirfinnur Ein-
arsson, 32 ára
gröfumaður i
Keflavík, hvarf
19. nóvember um
Kristján
Pétursson.
Jón var ungur galgopi fyrir 20 árum
Njörður Snæhólm Jóni lista yfir starfsmenn í Sigöldu og spuröi hvort hann teldi ein-
ð málið. „Ég var ungur og vitlaus og ég merkti við eina tvo sem fóru nett
augarnar á mér," viðurkennir Jón og glottir.
hverjum dögum seinna var kallað í
mig uppi í Sigöldu og ég beðinn að
tala við lögreglumann sem.þar hafði
aðsetur og umræ'ðuefniö reyndist
einmitt vera þessi Keflavíkurferð
mín. Það varð stutt þvi í sömu svif-
um varð slys upp frá og við fórum
báðir á vettvang. Ég gaf honum þó
skýrslu um ferðina í meginatriðum.
Þegar ég fór síðan í næsta frí kom
sjálfur Njörður Snæhólm inn á
Sogaveg að heimsækja mig og ein-
hver annar maður var með honum.
Þeir spurðu mig mikið út í þessa
ferö og létu mig fara í brúna leður-
jakkann sem ég hafði verið í og ég
spígsporaði fyrir þá um alla stofuna
á Sogaveginum. Þá man ég að
Njörður sagði að jakkinn væri of
dökkur," segir Jón.
Hinn dularfulli maður sem kom
inn í Hafnarbúðina þetta umtalaða
kvöld var einmitt í brúnum leður-
jakka með lausu belti. Þessi lýsing
kemur heim og saman við jakka
Jóns og þótt hann vilji lítið eða ekk-
ert gagnrýna störf lögreglunnar þá
finnst honum einkennilegt að þeir
skyldu ákveða upp á sittíöjiisdæmi
að jakkinn væri of dökkur.; Jón var
aldrei látinn hitta afgreiðslustúlk-
umar í Hafnarbúöinni. -
„Ég hefði alveg verið til í að fara
suður eftir aftur og spígspora fyrir
þær í þessum jakka,“ segir Jón.
„Þá hefði þetta mál sennilega ver-
ið úr sögunni.‘“
í þessari yfirheyrslu á Sogavegin-
um sýndi Njörður Snæhólm Jóni
lista yfir starfsmenn í Sigöldu og
spurði hvort hann teldi einhvern
þeirra geta verið viðriðinn málið.
„Ég var ungur og vitlaus og
merkti við eina tvo sem fóru nett í
taugarnar á mér,“ viðurkennir Jón
og glottir.
Krónurnar í sokkinn
Síðar kom rannsóknarlögreglu-
maður upp í Sigöldu og dvaldi þar í
nokkra daga, eftir því sem Jón
minnir, og ræddi þar við ýmsa
menn en aldrei við Jón i það skipt-
ið.
„Við vorum þarna nokkrir sem
spiluðum mikið póker upp á krónur
og við vorum að fíflast með þetta
þegar lögreglumaðurinn var þarna.
Alltaf þegar hann nálgaðist sópuð-
um við krónunum ofan í sokk og
fórum að spila ólsen og þóttumst
vera að hylma yfír mikið
svindl."
Jón segist þegar vera búinn að
hitta Leirfinn sem var dreginn upp
úr kassa sínum til þess að hægt
væri að mynda þá saman.
„Það er voðalegt að sjá kallgreyið.
Hann er búinn að brjóta svo mikið
heilann um þetta allt að það er kom-
in stór sprunga í hausinn á hon-
um,“ segir Jón og hlær mikið.
Ævi Jóns væri efni í heila bók og
verður ekki rakin frekar hér. Hann
segir að sig hefði ekki órað fyrir að
hann ætti eftir að koma aftur til ís-
lands til þess að bera vitni í saka-
máli sem hann veit ekkert um í dag
frekar en fyrir 27 árum.
„Mér sýnist að það vanti flest í
þetta mál. Það vantar bæði líkið,
vopnið, ástæðuna og flest sem væri
talin ástæða annars staðar til þess
að rannsaka mál yfirleitt," segir
heimshornaflakkarinn, útgerðar-
maðurinn, sjóhundurinn og sögu-
maðurinn Jón Grímsson sem hefur
loksins fengið að handleika Leir-
finn, styttuna sem hann hefði senni-
lega átt að vera fyrirmyndin að en
varð ekki.
„Ég get ekki leyst Geirfinnsmálið
en ég vona að ég geti átt þátt í að
leysa Leirfinnsmálið.“ PÁÁ
Valtýr
Sigurðsson.
- hvar eru þau nú?
hafi þeir stjórnað
hennar algerlega.
málflutningi
haustið. Arið 1977 voru fimm menn
dæmdir i Sakadómi fyrir að hafa
orðið þessum tveimur mönnum að
bana. Dómurinn var síðan að mestu
staðfestur í Hæstarétti 1980.
Hér verða málsatvik ekki rakin
frekar en nær allir sakborningar
drógu játningar
sínar til baka á
síðari stigum,
héldu fram sak-
leysi sínu og sök-
uðu lögreglu um
harðræði og mis-
tök við rannsókn
málsins. Margir
aðrir hafa síðan
orðið til þess að
taka undir þenn-
an málflutning
og gagnrýnt mjög margt í vinnu-
brögðum og framgangi lögreglu og
er óhætt að segja að Geirfinnsmálið
eins og þessi málarekstur í heild
sinni er kallaður sé stærsta og sér-
stæðasta sakamál íslandssögunnar.
Aldrei fundust nein lík og engin
haldbær sönnunargögn sem gætu
talist styðja játningar meintra sak-
borninga.
Sævar Marinó Ciesielski, meint-
ur forsprakki fimmenninganna, hef-
ur ítrekað reynt að fá málið tekið
upp að nýju. Beiðnum hans hefur
ávallt verið hafnað. Sævar ritaði
ríkislögreglustjóra síðast bréf um
málið í mars sl.
Á öðrum væng málsins er Jón
Steinar Gunnlaugsson lögmaður að
vinna fyrir Magnús Leópoldsson að
því að rannsaka gögn sem varpað
geti ljósi á hvers vegna Magnús
dróst saklaus inn í málarekstur
þennan. Gögn úr frumrannsóknum
sem fundust nýlega í Keflavík eru
talin geta varpað nýju ljósi á það og
er tíðinda að vænta innan skamms.
Erla Bolladóttir, einn sakborning-
anna, hefur nú lagt fram beiðni
til Hæstaréttar um end-
urupptöku málsins.
Érla hefur ekki
áður tekið þátt í
baráttu Sæv-
ars fyrir end-
urupptöku
en hún var
lykilvitni
lögreglunn-
ar í þessum
málum. í
rökstuðn-
ingi með
endurupp-
tökubeiðni
hennar er
lögreglan
borin þúng-
um sökum
um þrýsting,
hótanir og að
hafa lagt henni
orð i munn og
Haukur
Guðmundsson.
Hvar eru hfnír dæmdu?
En hvað varð svo um þetta ógæfu-
sama fólk? Hvernig hefur því reitt
af síðan?
Sakborningar í Guðmundar- og
Geirfinnsmálum voru dæmdir í
Hæstarétti 1980.
Þeir tveir sem
fengu þyngsta
dóma, Sævar
Marinó Ciesi-
elski og Kristján
Viðar Viðarsson,
losnuðu úr fang-
elsi síðla árs 1984
en þá höfðu aðrir
sakborningar
þegar fengið
frelsi.
Sævar Marinó Ciesielski býr í
Reykjavík. Hann bjó um hríð í
Bandaríkjunum en kom heim fyrir
allmörgum árum. Hann hefur unnið
ýmis störf en undanfarin 10 ár helg-
að líf sitt barátt-
unni fyrir því að
málin verði tekin
upp að nýju.
Erla Bolladótt-
ir býr í Reykja-
vík. Hún starfaði
með sértrúar-
söfnuðum erlend-
is árum saman
eftir að hún kom
úr fangelsi en
hefur snúið heim aftur.
Kristján Viðar Viðarsson er bú-
settur í Reykjavík en hefur breytt
föðurnafni sínu í Júlíusson.
Tryggvi Rúnar
Leifsson er bú-
settur í Reykja-
vik. Hann og
Kristján eiga það
sameiginlegt að
síðan afplánun
þeirra lauk hafa
þeir strítt við
misnotkun vímu-
efna og áfengis og
komið nokkuð
við sögu lögregl-
unnar. Þeir hafa engin afskipti haft
af baráttunni fyrir endurupptöku
málsins.
Guðjón Skarphéðinsson settist að
í Danmörku eftir
afplánun og lagði
stund á guðfræði-
nám. Hann er
sóknarprestur á
Staðastað á Snæ-
fellsnesi.
Albert Skafta-
son er búsettur í
Reykjavík og
starfar við smíð-
ar.
Sævar Marinó
Cíesielski.
Magnús
Leópoldsson.
Erla
Bolladóttir.
Lögreglumenn og dómarar
Þórir Oddsson var fulltrúi í Saka-
dómi og rannsóknarlögreglustjóri
og vararannsóknarlögreglústjóri
þegar umrædd mál voru rannsökuð
og dómtekin. Hann er vararíkislög-
reglustjóri í dag.
Öm Höskuldsson var fulltrúi i
Sakadómi og deildarstjóri RLR árin
1970-1978 og kom mjög að rannsókn
Guðmundar- og Geirfinnsmála.
Örn hefur rekið eigin lögfræði-
i skrifstofu frá 1978 og býr í Mos-
feflsbæ.
Sigurbjöm Víöir Eggertsson
; lék lykilhlutverk við rannsókn
og yfirheyrslur í umræddum
|| málum sem rannsóknarlög-
reglumaður. Hann er aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í
Reykjavík.
isiiíililll * 'k 'f i , “
W M
Eggert N. Bjarnason
rannsóknarlögreglumað-
ur var nánasti samstarfs-
maður Sigurbjörns við
rannsókn téðra mála.
Hann hélt áfram að
starfa í rannsóknar-
lögreglunni um árabil en er nú á eft-
irlaunum.
Hallvarður Einvarðsson var vara-
ríkissaksóknari og rannsóknarlög-
reglustjóri þegar umrædd mál voru
rannsökuð og dæmd. Hann varð rík-
issaksóknari 1986 en hefur nú látið
af störfum.
Þessi mál voru dæmd í Sakadómi
Reykjavíkur 1977 af þremur dómur-
um og í Hæstarétti 1980 af fimm
dómurum. Ríkissaksóknari á þeim
tíma var Þórður Bjömsson en dóm-
ararnir voru: Björn Sveinbjörnsson,
Ármann Snævarr, Benedikt Sigur-
jónsson, Logi Einarsson og Þór Vil-
hjálmsson í Hæstarétti en Gunn-
laugur Briem, Ármann Kristinsson
og Haraldur Henrysson í Sakadómi.
Þessir menn eru látnir eða komnir
á eftirlaun utan Haraldur sem er
hæstaréttardómari.
Keflvíkingarnir
Um þessar mundir starfar sér-
stakur saksóknari, Lára V. Júlíus-
dóttir, að rannsókn á tildrögum
þess að Magnús Leópoldsson var
saklaus bendlaður við þetta mál.
Nýjar upplýsingar sem komið hafa
fram um frumrannsókn málsins i
Keflavik benda ótvírætt til þess að
lögreglumenn þar hafi snemma gert
sér ákveðnar hugmyndir um aðild
Magnúsar og
fleiri.
Haukur Guð-
mundsson starf-
aði sem lögreglu-
maður í Keflavík
og yfirheyrði
marga vegna
Geirfinnsmáls-
ins. Hann hefur
neitað að mæta
til yfirheyrslu
hjá Láru Júlíusdóttur. Haukur
starfar sem vörubílstjóri í dag og
hætti lögreglustörfum fyrir mörgum
árum.
Kristján Pét-
ursson, deildar-
stjóri í tollinum
á Keflavíkurflug-
velli, var mjög
viðriðinn rann-
sókn málsins.
Kristján er nú á
eftirlaunum.
Valtýr Sig-
urðsson var full-
trúi sýslumanns
á Suðurnesjum þegar frumrann-
sókn Geirfinnsmálsins fór fram og
stýrði henni að einhverju leyti.
Hann er héraðsdómari í dag.
Fjórmenning-
arnir
Fjórir menn
sátu lengi í
gæsluvarðhaldi
grunaðir um að-
ild að málinu en
voru síðan
hreinsaðir af öll-
um sökum. Þeir
voru misjafnlega
veitingahúsinu
Einar
Bollason.
Guðjón
Skarphéðlnsson.
Sigurbjörn
Eiríksson.
mikið tengdir
Klúbbnum.
Magnús Leópoldsson er fasteigna-
sali og á og rekur Fasteignamiðstöð-
ina í Reykjavík.
Einar Bollason er þekktur at-
hafnamaður sem á og rekur fyrir-
tækið íshesta.
Valdimar Ólsen er skrifstofumað-
ur í Reykjavík.
Sigurbjörn Eiríksson, veitinga-
maður i Klúbbnum, er látinn.
Þannig eru persónur og leikendur
í þeim flókna leik sem við köllum
Geirfinnsmálið dreifðir um allt
samfélagið, flestir enn á meðal vor.
Margir telja að kaflaskipti séu inn-
an seilingar í málinu þar sem dóms-
kerfið geti ekki lengur vikið sér
undan því aö taka það upp að nýju.
-PÁÁ