Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Page 49
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
57^"
Formúla
Metaregn meistarans
Michaels Schumachers
í algerum sérflokki
I lok hvers árs er
það vaninn að líta
til baka um farinn
veg og ökumenn
Formúlu 1 og
áhorfendur gera
enga undantekningu á því í ár. Keppn-
istímabilið í ár var keppt 17 sinnum í
14 löndum og hófst það i mars og end-
aði í október. DV hefur boðið lesend-
um sínum upp á fræðandi grafík allt
tímabilið og nú er komið að uppgjörs-
töflu þar sem hægt er að sjá nánast öll
úrslit ársins á einum stað.
Metaár Schumachers
Það er nánast sama hvar fæti er
stigið niður í tölfræði keppnistíma-
bils 2001 - Michael Schumacher hef-
ur bætt hvert metið á fætur öðru á
tíu ára ferli sínum og var síðasta
keppnistímabil hans það sigur-
sælasta til þessa. I ellefu keppnum
ræsti hann fremstur og í átta skipti
koma hann fyrstur yfir endalínuna.
Fimm sinnum varð hann annar, einu
sinni fjórði og einungis í tvígang féll
hann úr keppni. Hann er með 123 stig
eftir sautján keppnir og kominn með
801 stig á ferlinum sem or .met. Frá
því hann hóf keppni i Formúlu 1 hef-
ur hann unnið oftar en nokkur ann-
ar. Það var í Japan sem fimmtugasti
og þriðji sigurinn var i höfn og fjórði
heimsmeistaratitillinn hafði unnist
þegar íjórar keppnir voru eftir af
keppnistímabilinu. Árið 2001 hefur
verið sannkölluð sigurganga og þeg-
ar hann kom fyrstur í mark í franska
kappakstrinum,
anda lífi og er langt frá því hættur.
Reglubreytingar
Til að auka öryggi ökumanna,
starfsmanna og áhorfenda hefur FIA
stöðugt leitað að leiðum til að gera
Formúluna öruggari með reglubreyt-
ingum milli ára. Árið í ár var engin
undantekning á því og voru nokkrar
breytingar gerðar á bílunum til þess.
Vængpressa var minnkuð, bílstjóra-
klefinn styrktur og vírum í hjólbörð-
um fjölgað. Besta sönnun þess að
þetta hefur tekist hjá sambandinu var
óhapp Luiciano Burtis á Spa, er hann
slapp óbrotinn og aðeins með heila-
hristing úr einu versta slysi í For-
múlu 1 í mörg ár. Eins og venjulega
fmna hönnuðir liðanna mismunandi
leiðir til að fara i kringum breyting-
amar. Jordan, Sauber og Benetton
voru til dæmis með áberandi lækkun
á miðjum vængnum. Þetta gaf þeim
meiri vængpressu sem hafði minnkað
verulega eftir að framvængurinn
hafði verið hækkaður úr 5 sm i 10.
Einnig voru sett takmörk á fjölda
vængborða í afturvængnum og dró
þetta verulega úr heildargripi bílanna
og greinilegt að sum lið höfðu ekki
fundið beslu lausnina á þeim vanda-
málum sem þessu fylgdu. Aukið grip
hjólbarðanna, sem kom í kjölfar
dekkjastriðsins milli Michelin og
Bridgestone, varð til að gera þá hraða-
minnkun sem kom i kjölfar þessara
breytinga að engu og gerði gott betur
en það. Strax í fyrstu keppni ársins í
Melbourne hafði ráspólstíminn verið
bættur um 3,6 sekúndur og var það
helst rakið til dekkjanna. Vegna þessa
fór FIA að fylgjast grannt með aukn-
um hraða og var tilbúið að grípa inn í
með afgerandi reglubreytingum. Ekki
minnkuðu áhyggjur manna þegar
gripstýringin kom aftur inn í Formúl-
una eftir átta ára fjarveru og átti enn
eftir að auka hraða keppenda. Ekki
kom til neinna aðgerða af hálfu FLA
en mörg lið voru í miklum vandræð-
um með bæði gripstýringu og ræsi-
búnaðinn sem reyndist sumum liðum
erfiður. í fimm tilfellum brást ræsi-
búnaður McLaren og mátti oft litlu
muna að bílar lentu aftan á kyrrstæð-
um bílum þeirra á ráslínunni.
Benetton út, Renault inn
Renault, sem var kominn á ný inn i
Formúlu 1 eftir nokkurra ára hlé, var
með byltingarkenndustu hugmynd
ársins er menn mættu með 111’ V-
hom í keppnisvélum Benetton-liðsins,
fyrst og fremst ætlað til að lækka
þyngdarmiðju bílsins. Þetta var þeim
mjög erfltt í fyrstu því vélarnar voru
afllitlar en biluðu ekki mikið miðað
við það tæknilega átak sem Renault
tókst á hendur. Þeir hjá Renault sönn-
uðu svo mál sitt á Spa er Gianicarlo
Fisichella sýndi hversu mikils virði
lágur þyngdarpunktur getur orðið á
snúinni keppnisbraut er hann endaði
þriðji á eftir Schumacher og Coult-
hard. Þetta var siðasta verðlaunasæti
Benettons í Formúlu 1, en þetta sigur-
sæla lið hefur nú kvatt Fl-
Mika Hakkiner og Jean Alesi kepptu sennilega báöir í sinni síöustu
Formúlu 1-keppni á ferlinum í október. Þeirra veröur sárt saknaö.
Juan Pablo Montoya var sá sem allir biöu spenntir eftir. Var seinn í gang
en varö betri og betri og veröur líklegastur allra til aö ógna M.
Schumacher á næsta ári.
eftirminnilega á Monza eftir að hafa
tekið þriðja ráspól sinn i fjórum
keppnum. Þó var það Kimi Raikkonen
sem kom mest á óvart af nýliðunum*®-
eftir að hafa aðeins keppt 23 sinnum í
eins sætis bílum og sýndi geysilega
þroskaðan og agaðan akstur, með fá
mistök en mikinn hraða. Hann var
með bráðabirgðaskírteini frá FIA
fyrstu ijórar keppnir ársins því menn
voru ails ekki á eitt sáttir við útgáfu
FIA á „súper‘‘skírteini hans. Hann
hefur nú sannað getu sína og verið
ráðinn í stað landa síns, Mika
Hakkinen, til McLaren. Heimsmeist-
arinn tvöfaldi keppti eílaust sína síð-
ustu keppni í Japan er hann gaf íelaga
sínum þriðja sætið og laumaðist í
burtu. Spánverjinn komungi, Fern-
ando Alonzo, „afurð“ Renault, var lán-
aður til Minardi og var mjög góður,
enda gerði hann frábæra hluti á van-
búnum bíl. Að ná 17. sæti í tímatök-
um í USA-kappakstrinum var snilld -
sennilega meistari framtíðar. Það fór
minna fyrir Bernoldi, Burti, Yoong og
Tomas Enge sem allir áttu frumraun
sína í ár.
Jagúar, BAR og Jordan
í upphafi tímabils gera allir kepp-
endur og lið sér miklar væntingar um
árangur komandi árs og áhorfendur
líka. Því hafa sumir ökumenn og
keppnislið komið verulega á óvart, í
neikvæðri merkingu. Þrátt fyrir aö
McLaren hafi tekist að vinna fjórum
sinnum var árangurinn í hróplegu
ósamræmi við árangur síðustu
þriggja ára. Þar á kjarkleysi Mika
Hakkinens eflaust stóran þátt en bil-
anir voru allt of tíðar hjá eins reyndu
og sigursælu liði og McLaren er. Eins
verður að segjast að fyrrverandi
heimsmeistari, Jacques Villeneuve, sé
eitthvað að missa neistann i höndum
BAR-liðsins sem einnig er að koma á
óvart fyrir lélegan árangur. Glæstur
árangur Sauber-liðsins, með aðkeypt-
ar Ferrari-vélar, er að miklu leyti til-
kominn vegna mjög lélegrar útkomu **
Honda-liðanna BÁR og Jordan ásamt
strögglandi Jagúar-liðinu. Þetta eru
lið sem hafa vélarafl og fjármagn til
að gera mun betur en svissneska liðið
og er því árangur þessara liða von-
brigði ársins. Ökumenn þessara
sirkusinn og mun Renault taka upp
merki þess á næsta ári. Michelin átti
sennilega endurkomu ársins með því
að vinna fjórum sinnum á tímabilinu.
Fimm keppnislið notuðu hjólbarða frá
þeim og í raun er aðdáunarvert
hversu fljótt þeim tókst að aðlagast
aðstæðum. BMW. Williams var lang-
sterkasta Michelin-liðið og var í
feiknalegu formi, sérstaklega þar sem
vélaraflið fékk að njóta sín. Þrátt fyr-
ir aðeins eitt ár í Formúlunni mætti
BMW sennilega með langaflmestu
keppnisvélina í upphafi ársins en 850
hestöfl voru varlegar áætlanir og með
ólíkindum hversu öflugir Bæjaramir
frá Þýskalandi komu til leiks. Bilanir
voru að vísu nokkuð tíðar og rændu
þær þá Ralf Schumacher og J.P.
Montoya nokkmm dýrmætum stigum
og jafnvel sigrum.
sem
var sá
tíundi í
röðinni,
hafði hann
unnið sex keppn-
ir og möguleikar
aðalkeppinautar
hans, David Coulthards
vom nánast úr sögunni.
Enginn ökumaður ók eins
marga hringi á tímabilinu, hvort
sem talað er um í heildina eða í for-
ystu - eitt þúsund og níu hringir af
1096 hringjum mögulegum og í 50%
af þeim var hann í forystu. Ralf bróð-
ir hans kom næstur með 141 hring í
forystu eða 13%. Þessar tölur sýna að
Michael Schumacher var í algerum
sérflokki í allt sumar, ef frá eru tald-
ir ítalski og bandaríski kappakstur-
inn þar sem hryðjuverkin 11. septem-
ber höfðu mikil áhrif á kappann.
Hann er maður ársins, goðsögn i lif-
Nyliðar arsins
Nýir ökumenn vom nokkrir og fór
mest fyrir fyrrum CART-meistaran-
um Juan Pablo Montoya en miklar
væntingar voru gerðar til hans. Hann
stóð alls ekki undir þeim væntingum
á fyrri hluta ársins en eftir að hann
tók ráspólinn af félaga sínum á Hoc-
kenheim í þýska kappakstrinum og
náð betri tökum á Fl-bílum varð hann
óstöðvandi og rúllaði yfir félaga
sinn. Hann sigraði svo
liða
lenda
því
einnig í
sama potti.
Prost og Arrows
voru einnig í vond-
um málum og seig sí-
fellt á ógæfuhliðina þegar
leið á timabilið. Til að enda
þetta á jákvæðu nótunum voru
það báðir ökumenn Williams sem
komu sterkir út eftir árið, eins og
ungu Sauber-bílstjóramir, sérstaklega r,
Heidfeld, sem er eflaust mjög vanmet-
inn. Næsta keppnistímabil hefst í
mars og eru liðin í óðaönn að tilkynna
frumsýningardaga á 2002-árgerðum
sínum. Prófanir hefjast að nýju þann
2. janúar og eru því ekki nema rétt 30
dagar þangað til við fórum að fá tíma-
mælingar á köppunum á ný.
-ÓSGj