Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Síða 50
58
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Helgarblað
Dudley heiðraður
Breski grinistinn, leikarinn og
hljómlistarmaðurinn, Dudley Moore,
var um síðustu helgi heiðraður af
bresku krúnunni fyrir framlag sitt í
gegnum árin til skemmtanaiðnaðar-
ins. Dudley, sem er 66 ára, er haldinn
alvarlegri heilarýrnum og var því
maettur til athafnarinnar í hjólastól,
en Karl Bretaprins sá um að afhenda
honum glæsilega orðu. Dudley á orðið
erfitt um mál, en gat þó svarað einni
spumingu fréttamanna þegar þeir
spurðu hann hvort hann hefði átt von
á þessum heiðri. Svarið var stutt og
laggott; „nei“. Athöfnin fór fram í
Buckingham Palace og var Barbara
Stevens, systir Dudleys, honum til
halds og trausts, einnig í hjólastól.
„Ég veit að þessi heiður er Dudley
mikils virði og ég er mjög stolt af hon-
um. Hann hefur afrekað svo margt og
á þetta skilið," sagði Barbara.
Hugh verður
ekki guðfaðir
Breski leikarinn Hugh Grant segir
ekkert hæft í orðrómi um að hann
veröi guðfaðir bamsins sem fyrrum
kærasta hans, fyrirsætan og leikkon-
an Elizabeth Hurley, gengur með und-
ir belti.
Fjölmiðlar austan hafs og vestan
hafa leitt að því getum síðustu vik-
urnar að Liz og Hugh ætli jafnvel að
ala barnið upp saman, þótt faðir þess
sé bandarískur milljónamæringur,
Steven Bing. Sá hefur hins vegar ekki
viðurkennt faðernið þótt hann hafi
verið kærasti Liz þegar króginn kom
undir. Hann fékk sparkið þegar hann
þrýsti á að leikkonan gengist undir
fóstureyðingu.
Hugh og Liz hafa mikið verið
saman upp á síðkastið.
Geri í ískalt bað á
hverjum morgni
Kryddpían fyrrverandi, Geri __
iwell, á einfalt ráð til þeirra sem vilja
viðhalda æskufegurðinni: Iskalt bað á
hverjum morgni.
Sjálf byrjar söngkonan rauðhærða
dag hvern á því að fara i heita sturtu
en leggst því næst ofan í ískalt vatn í
baðkarinu.
„Þetta er hluti af því sem ég geri
daglega," segir Geri. „Að sjálfsögðu er
þetta kalt en ég anda betur og þetta er
gott fyrir hjartað.
Geri segir að með þvi að fylgja þess-
um einfóldu ráðum sé andlitslyfting
alveg ónauðsynleg. Þess ber þó að
geta að hún er ekki nema 28 ára og
því enn langt i fimmtugt.
JÖV
✓
Eg held að fólk sem lifir í tónlist
sé að segja við heiminn: Þú
mátt fá ást mína, brosin min. Gleymdu
slæmu hlutunum, þú þarft ekki á þeim
að halda. Takið bara tónlistina, gæðin,
því það er best og það er sá hluti sem
ég vO helst gefa af mér.“ Þessi orð
féllu af vörum George Harrison fyrir
margt löngu og rifjast eflaust upp fyr-
ir mörgum nú þegar hann er látinn.
Harrison lést í gær á heimili vinar
síns í Los Angeles eftir erfiða baráttu
við krabbamein.
George Harrison var hinn þögli Bít-
ill, feimni Bítillinn, alvörugefni Bítill-
inn, sorgmæddi Bitillinn, langt frá því
að vera Lennon eða McCartney. Þrátt
fyrir þessa hófstilltu nærveru verða
áhrif hans á tónlist Bítlanna seint of-
metin, Þekktustu lög hans eru While
My Guitar Gently Weeps, Here Comes
the Sun og Something ,en hið síðast-
nefnda sagði Frank Sinatra að væri
„besta ástarlag sem samið hefði ver-
ið“.
George Harrison var að mörgu leyti
maður mikilla andstæðna. Hann var
andlega sinnaður og áhugamaður um
Formúlu 1; rokkstjama sem fann sig
best í því að bera áburð á gárðinn
sinn. Hann tileinkaði sjálfsævisögu
sína, I Me Mine, sem kom út árið 1982,
„öllum garðyrkjumönnum alls stað-
ar“.
Ekki eru nema fáir mánuðir frá því
Daily Mail i Bretlandi greindi frá því
að hann væri við dauðans dyr. Harri-
son brást ókvæða við þeim fréttaflutn-
ingi og sögðu talsmenn hans að að-
standendur hans hefðu orðið fyrir
miklum vonbrigðum með fréttaflutn-
ing blaðsins og sagði að George liði
bara vel en þetta hefði valdið miklum
sálarkvölum í fjölskyldunni hvernig
blaðið hefði komið fram.
Síðhæröur uppreisnarseggur
George fæddist 25. febrúar árið 1943
í Wavertree. Faðir hans vann fyrir sér
sem rútubílstjóri en þau hjónin voru
strangtrúaðir kaþólikkar. Það olli
þeim nokkrum áhyggjum hversu illa
drengurinn rakst í skóla því hann
safnaði hári og gekk í gallabuxum og
fékk þannig skólayfirvöld upp á móti
sér. Samt sem áður var móðir hans
stolt af drengnum sínum og lét það eft-
ir honum að kaupa handa honum gít-
ár.'Þá voru George allir vegir færir og
stofnaði hann litla hljómsveit með Pet-
er bróður sínum.
Öliu mikilvægari urðu kynni Geor- Sorgmæddi Bítillinn
geafPaulMcCartney en þeir kynntust George Harrison var hinn þögli Bítill, feimni Bítillinn, alvörugefni Bítillinn, sorgmæddi Bítillinn, langt frá því aö
þegar þeir settust báðir upp í skólarút- vera Lennon eöa McCartney, Þrátt fyrir þessa hófstilltu nærveru veröa áhrif hans á tónlist Bítlanna seint ofmet-
una með gítarana sína. í samræðum 'n- Þekktustu lög hans eru While My Guitar Gently Weeps, Here Comes the Sun og Something en hiö síöast-
þeirra fundu þeir að þeir áttu sameig- nefnda sagði Frank Sinatra aö væri „besta ástarlag sem samiö heföi veriö“.
Gar öyrk j umaðurinn
fer til himnaríkis
— Bítillinn George Harrison lést á heimili vinar síns í gær
inleg áhugamál sem var áhugi þeirra á
tónlist og þá sérstaklega á tónlistar-
mönnunum Duane Eddy, Lonnie Do-
negan og Chet Atkins. í kjölfarið
kynnti Paul hann fyrir félögum sínum
Blómatíml Bítlanna
George Harrison sagöi aö stærsta
tækifæri sem hann hefði fengiö í
lífinu heföi veriö þegar hann gekk
til liös viö félaga sína í Bítlunum.
Næststærsta tækifæriö var hins
vegar þegar hann hætti í hljóm-
sveitinni.
í The Quarrymen en vegna aldurs Ge-
orge, sem var aðeins 14 ára, komst
hann ekki strax inn í sveitina.
Tveimur árum síðar gekk George i
hljómsveitina en þá var leiðtogi henn-
Þenkjandi kappakstursáhugamaður
George Harrison var aö mörgu
leyti maöur mikilla andstæöna.
Hann var andlega sinnaöur og
áhugamaður um Formúlu 1; rokk-
stjarna sem fann sig best í því aö
þera áburö á garöinn sinn.
ar John Lennon. Nokkurt rót var á
liðsmönnum sveitarinnar en þremenn-
ingarnir George, John og Paul voru
fastur kjarni. Snemma á sjöunda ára-
tugnum breyttu þeir nafni hljómsveit-
arinnar í The Beatles og byrjuðu að
túra um Bretland og Þýskaland og
lögöu löndin að fótum sér og heiminn
í kjölfarið.
George Harrison sagði einhvern
tíma aö stærsta tækifæri sem hann
hefði fengið væri þegar hann gekk til
liðs við Bítlana 1963. Næststærsta
tækifærið hefði hins vegar verið þegar
hann fór úr hljómsveitinni.
Tíu stungur í brjóstið
Fyrsta eiginkona George Harrison
var Patti Boyd en hann kynntist henni
við tökur á Bítlamyndinni A Hard
Days Night en þá var hún ung fyrir-
sæta sem átti eitt orö í myndinni. Hún
sagði „Fangar?" og heillaði hann upp
úr skónum. Þau giftust ári síðar.
Nokkrum árum síðar yfirgaf Patti Ge-
orge og giftist Eric Clapton, vini Geor-
ge. Þau skildu síðar. Um miðjan átt-
unda áratuginn kynntist hann Oliviu
Arias og eignaðist hann með henni
einn son.
Hún átti eftir að bjarga lífi hans
bókstaflega því árið 1999 réðst geð-
veikur maður inn á heimili þeirra í
Oxfordshire og stakk George tíu stung-
um 1 brjóstið. Þá bjargaði snarræði
Oliviu lífi hans því hún réðst að árás-
armanninum með lampa og hrakti
hann á brott. Árásarmaðurinn var
sýknaður á grundvelli þess að hann
væri geðsjúkur.
Ekki á meðan Lennon er dá-
inn
Eftir að samstarflnu við Bítlana
lauk hófst sólóferill George Harrison
og kom hann víða við. Fyrirtæki hans,
Handmade Films, studdi vel við bakið
á Monty Python-hópnum sem fram-
leiddi myndirnar Life of Brian og
Time Bandits. George tók höndum
saman meö nokkrum vel þekktum tón-
listarmönnum í kringum 1990 þegar
George, Tom Petty, Bob Dylan, Jeff
Lynne og Roy Orbison stofnuðu The
Traveling Wilburys sem átti tvær plat-
ínuplötur. Alla tíð ásótti sama spurn-
ing George og Ringo Starr og Paul
McCartney en það var spurningin
hvenær Bítlarnir myndu koma saman
að nýju. Svaraði George þeirri spurn-
ingu: „Bitlarnir koma ekki saman á
meðan John Lennon er enn dáinn."