Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Page 51
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
59
Helgarblað
I>V
Skartkonan á
Bessastöðum
- Dorrit Moussaieff, heitkona forsetans, á 3500 milljónir
Sigurður Már Jónsson hefur starf-
að við blaðamennsku frá 1985, síð-
ustu sex árin á Viðskiptablaðinu.
Hann hefur tekið saman bók sem
heitir Ríkir fslendingar og fjallar
eins og nafnið ber með sér um efna-
hag og fjölskylduhagi 200 íslendinga
sem eru taldir ríkastir samlanda
smna.
í sérstökum kafla er fjallað um auð-
legð íslendinga fyrr og síðar en einnig
eru hinir riku flokkaðir eftir atvinnu-
vegum og sérstakur listi er yfir 100 rík-
ustu íslendingana eftir upphæð.
Þótt Dorrit Moussaieff sé ekki is-
lenskur ríkisborgari þá er hún heit-
kona Ólafs Ragnars Grímssonar og
ekki óeðlilegt að hennar sé getið í
bókinni þar sem hún tilheyrir mjög
efnaðri ijölskyldu og er í hópi efnuð-
ustu kvenna heims.
Lítum á kaflann um Dorrit í bók-
inni Rikir íslendingar.
Talar fjögur tungumál
„Dorrit Moussaieff kom eins og
stormsveipur inn í líf íslensku þjóðar-
innar þegar hún hóf samband sitt við
Ólaf Ragnar Grímsson, forseta fslands,
í upphafi árs 1999. Dorrit er fædd 1950
í Jerúsalem. Foreldrar hennar eru
Shlomo (Sam) og Alisa Moussaieff.
Dorrit gekk ekki menntaveginn og
byrjaði 16 ára gömul að vinna í fjöl-
skyldufyrirtækinu. Rúmlega tvítug
giftist hún hönnuðinum Neil Zarac en
það hjónaband entist ekki lengi. Þrátt
fyrir stutta skólagöngu þykir Dorrit
vel að sér í heimi tískunnar og hafa
ótviræða hæfileika í viðskiptum. Hún
talar þar að auki fjögur tungumál. Dor-
rit hefur unnið í íhlaupum við blaða-
mennsku á tímaritinu Tatler og nýtur
þar sambanda sinna við fjármálaheim-
inn og þotuliðið.
Moussaieff-ættin mun upphaflega
vera komin frá Bukhara sem nú til-
heyrir Úzbekistan. Móðir hennar var á
unga aldri sérlegur aðstoðarmaður
Davids Ben Gurions, hins fræga for-
sætisráðherra fsraelsríkis. Faðir henn-
ar rekur gimsteinaverslun í Hilton-
hótelinu í London en sagt er að fjöl-
skyldan hafi verslað með gimsteina
um aldir eins og Bima Helgadóttir
blaðamaður rakti í grein í Financial
Times i nóvember 2000. Sagt er að velt-
an i gimsteinabúðinni á Hilton-hótel-
inu í London sé ein sú allra hæsta á
hvem fermetra í heiminum. Ejölskyld-
an rekur einnig verslunina Kutchin-
sky í Knightsbridge og útibú í Genf i
Sviss og mun vera stærsti umboðsaðili
fyrir Rolex-úraframleiðandann i heim-
inum.
Dorrit Moussaieff, heitkona forseta íslands
Hún er talin meöal ríkustu íslendinga í nýútkominni bók Siguröar
Más Jónssonar blaðamanns.
Auðug og hlédræg
Fjölskyldan er vellauðug en for-
eldrar Dorrit hafa haldið sig fjarri
sviðsljósinu. Árið 1997-1998 nam
hagnaður Moussaieff-Qölskyldunnar
af skartgripaviðskiptum nærri 800
milljónum króna en i heild nam velt-
an það tímabil 5,5 milljörðum króna.
Talið er að varlega áætlað megi meta
skartgripa- og úrafyrirtæki Moussai-
eff á ríflega 8 milljarða en einnig á og
átti fjölskyldan miklar eignir í Can-
ary Wharf-byggingunum í London. í
október 1999 komst Dorrit í fréttimar
þegar Moussaieff-fjölskyldan seldi
hlutabréf í fasteignafélagi Canary
Wharf fyrir 5,2 milljarða króna og
uppskar verulegan söluhagnað. Dor-
rit mun hafa verið leynilegur þátt-
takandi í hópi fjárfesta sem keyptu
stóran hlut í byggingunni 1990 þegar
verðið var hvað lægst.
í marsmánuði 2000 mat The
Sunday Times eignir Moussaieff-íjöl-
skyldunnar á jafnvirði 14 milljarða
og hafði ríkidæmi fjölskyldunnar
vaxið hratt. Árið áður var auður
hennar metinn á 8 milljarða en sjálf-
sagt skiptir þar mestu hve miklar
hækkanir urðu á Canary Wharf.
Árið 2000 var Moussaieff-fjölskyldan
í 251. sæti yfir ríkasta fólk Bretíands
og hafði hækkað um 78 sæti frá árinu
1999.
er kunnur af söfnunaráhuga sínum og
á verðmætt safn gyðinglegra menning-
arverðmæta. Einn nýjasti gripurinn í
safni hans er innsigli Ahaz konungs
(sem kemur við sögu í Gamla testa-
mentinu) frá 8. öld f. Kr. Ekki er langt
siðan Sam ánafnaði háskólanum i Tel
Aviv safni sínu af fomum handritum
Gyðinga."
Ein þriggja systra
Sam Moussaieff á tvær dætur auk
Dorritar og sé auði hans skipt jafnt á
alla fjölskyldumeðlimi koma 3.500
milljónir króna i hlut Dorrit. (2) Sam
Seljum úrgámi: Upplýsingar]
Glœsileg húsgögn frá Spáni a* m?
verðið
SJðNVAttPSKOKKUKINN
ISHERRANN
Leiðangur Vilhjálms Stefánssonar
Áriö 1913 stóð Vilhjálmur Stefánsson
landkönnuður fyrir metnaðarfullum leiðangri
norður í íshaf, 17. júní það ár lagði skipið
Karluk upp frá Kanada. Sex vikum síðar var
heimsskautsveturinn skollinn á, skipið teppt í
ís og leiðangursstjórinn á bak og burt.
Með því að nýta sér dagbækur skipbrots-
mannanna hefur jennifer Niven tekist að
endurskapa atburðarrás þessa afdrifaríka
leiðangurs og örvæntingarfullar tilraunir
skipbrotsmanna til að komast heim úr auðnum
norðursins. Þeir sem komumst lífs af urðu aldrei
samir. Þessi kynngimagnaða mannraunasaga
lætur engan ósnortinn.
KOKKUR AN KIÆOA
J^MIE OLIVER
ÁMYIBAII
PP FORLAG