Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Page 52
60
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Helgarblað
DV
Hringurinn lokast
Þessi mynd er tekin haustiö 1976, nánar tiltekið 14. október og Stuðmenn
eru að Ijúka hringferö sinni um landið með ofurdansleik á Hótel Sögu. í til-
efni dagsins hafa þeir allir klætt sig upp á í gervum þeirra persóna sem
sungið er um á plötunni. Fremstur er Valgeir í fábrotnum alklæönaði við
vandaða skó og leikur Herra Reykjavík, næstur er Tómas í gervi fjallkonunnar
og þá Þórður í gervi aiþýöudrengs í Tívolí en Egill er í gervi Hveitibjörns og
Jakob að sjálfsögðu er Frímann flugkappi.
Bókin er í höfn
Þessi hópmynd er tekin haustið 1986 á lager prentsmiöjunnar Odda. Þarna
er nýlokið við að prenta Stuðmannabókina ásamt meðfylgjandi spili. Slá í
gegn, sem hljómsveitin gaf út þetta haust. Þetta var þá stærsta verkefni
sem Oddi hafði nokkru sinni ráðist í aö prenta að Skarðsbók meðtalinni.
Stuðmenn skorti ekki metnaðinn og gáfu þeir listamönnum algerlega lausan
tauminn við hönnum bókarinnar sem var ævisaga hljómsveitarinnar og með-
lima hennar. Sérfræðingar í prentun véluðu síðan þannig um að engin tvö
eintök bókarinnar urðu nákvæmlega eins og þótti rart en herlegheitin urðu
gfurlega dýr í framleiðslu, mun dýrari en Skarðsbók, að sögn Egils. Lengst til
vinstri er Kristján Karlsson listamaður sem hannaði hluta bókarinnar, við hlið
hans Tómas bassi og þá lllugi Jökulsson sem fékk það vandasama verkefni
að skrásetja söguna. Valgeir og Egill fiatmaga að baki hópnum en við hlið /4s-
geirs Óskarssonar fyrir miðju er Grímur verkstjóri í Odda og Jakob Frímann
viö hlið hans. Páll Baldvin Baldvinsson, þá útgáfustjóri, nú bókmenntarýnir,
er brosmildur þar næst og Tómas Jónsson myndlistarmaður við hlið hans. Á
endanum stendur síðan Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi sem gaf þetta
metnaöarfulla verkefni út og er enn að fást við bókaútgáfu.
Er þetta slgurvegarinn?
Eitt afþví sem vargert á þessum lokadansleik á Hótel Sögu var að kjósa
Herra Reykjavík úr hópi áhorfenda. Þessi ungi maður hreppti hnossið og sýn-
ist harla ánægður með sinn hlut. Ekki hefur tekist að bera kennsl á hann en
blaðinu væri þægð i því ef hann gæfi sig fram við Helgarblaö DV.
Stuðmenn í
stórum dráttum
- Egill Ólafsson rótar í myndasafni DV
Þaö er varla ofsagt að hljómsveit-
in Stuðmenn hafi gegnum tiöina
brugðið sér í hin undarlegustu
gervi og stundum hafa andlitirt sem
sveitin hefur sett upp verið nær
óþekkjanleg þegar hún hefur rekið
þau framan í þjóðina.
Stuðmenn hafa starfað frá þjóðhá-
tíðarárinu 1974 þegar þjóðin
streymdi á Þingvöll og fagnaði af-
mæli sínu. Síðan hafa leiðir Stuð-
manna og þjóðarinnar legið saman,
stundum hefur þjóðin klifrað upp
um hálsinn á þessum eftirlætistón-
listarmönnum sínum og ætlað að
éta þá með húð og hári en í annan
tíma tekið þeim fálega en samt
alltaf af hrifningu og hlýju.
Stuðmenn eru sannarlega ekki
hættir að músísera þótt þeir líti í
mörg horn og ólík, stundum hver í
sínu homi, og fyrir þessi jól svaml-
ar í plötuflóðinu safndiskur sem
heitir Tvöfalda bítið og inniheldur
ýmis eftirlætislög okkar frá 27 ára
ferli þessarar merku sveitar.
Stuðmenn komu nefnilega fram í
sviðsljósið sama árið og Geirfinnur
hvarf. Þeir eru enn þá, eins og Geir-
flnnur, mjög ofarlega í vitund þjóð-
arinnar. Við vitum hvar Stuðmenn
eru og viljum ekki týna þeim en hið
gagnstæða á við um Geirfinn. Allra
hluta vegna er samt rétt að ítreka
að engin þekkt tengsl eru milli þess-
ara tveggja staðreynda.
í fórum DV er þykkur bunki með
myndum af Stuðmönnum í ýmsum
gervum við ýmis tækifæri. í tilefni
dagsins drógum við umslagið fram
og fengum Egil Ólafsson, söngvara
og erkistuðmann, til þess að rýna í
svarthvíta fleti með okkur. Við
skulum sjá hvað hann mundi. Þessi
myndasería gæti heitið Stuðmenn í
stórum dráttum en hún gæti líka
heitið íslenskir alklæðnaðir í 30 ár.
-PÁÁ
Hvaöa dúkar eru þetta?
Þessi undarlega múndering Stuð-
manna er frá árinu 1984 og var
saumuð úr jólaborðdúkum fagurlega
hvítum og rauðum með grænu ívafi
að sögn Egils. Stuðmenn eru í þann
veginn aö fara að halda áramóta-
dansleiki í Sigtúni við Suðurlands-
braut en þeir nutu mikilla vinsælda.
Til aö auka aðsókn var þetta haust
sett upp poppminjasafn í húsakynn-
unum til að auka gestum gleöi. Þeir
sem eru ekki í dúkasloppum á myndinni er hljómsveitin Oxsmá sem um þessar
mundir naut mikilla vinsæida. Við hið Egils stendur Axel Hallkell (Langi Seli)
myndlistarmaður og Hrafnkell Sigurðsson listaspíra við hina hlið hans. Fyrir fram-
an hópinn krjúpa Kormákur Geirharðsson, trommari og fyrrum kaupmaður, tísku-
lögga, og Óskar Jónasson kvikmyndagerðarmaður.
Skundum á Þingvöll
Árið 1991 gáfu Stuðmenn út plötu sem hét Hve gtöö er vor æska. Eitt lagið á plötunni hét Kinahverfið í Reykjavík og
fjallaði um þjóöernissinnaða íslendinga og fordóma okkar gagnvart útlendingum. Viö gerð myndbands við lagið
skrýddust Stuömenn þessum þjóðlegu skátabúningum og voru myndaöir á þaki Hljómskálans. Það er Ragnhildur
Gísladóttir sem er svona hörkuleg með Hitlersskeggið í fremstu röö. Það sem hljómsveitin var kannski að hugsa um
var að ýta við fordómum landans eða kannski höfðu þeir einfaldlega gaman af því að klæða sig upp á. Sérstaka at-
hygli vekur höfuðbúnaður Jakobs Frímanns sem sýnist vera svanur líkur þeim sem Björk Guðmundsdóttir sveipar sig
á tyllidögum en er víst nokkuð stór tehetta. Svona er ekki alltaf allt sem sýnist.
Kina eöa Kópasker?
Þetta mun vera tekið á Reykjavíkurflugvelli síðla sumars 1986 þegar Stuðmenn voru nýlega komnir frá Kína en gætu
verið á leiðinni á Kópasker. Þetta er heimsvön sveit ogýmsu vön enda nýlega búin aö skipta hálfgert um ham og
kalla sig Strax en undir því nafni geröi sveitin harða hríð að heimsfrægö á þessum árum. Egill segir að Stuðmenn
hafi á þessum árum leikið það sem þeir kölluðu úlfaldapopp og hlýtur eiginlega aö vera tónlist sem hleypir upp
kryppu á flytjendum og hlustendum.