Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Qupperneq 54
62
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Helgarblað
DV
Er ketamín það eiturlyf sem er aö komast í tísku meöal ungs fólks á íslandi. Fjórtán vistmenn á Vogi hafa játaö neyslu þess
Birtingarform vímu af ketamíni geta verið mismunandi en þau algengustu eru að neytandanum fmnst hann ferðast gegnum dimm göng í átt aö Ijðsi, hann telur sig vera látinn
aða honum fmnst sem hann nái sambandi við æðri máttarvöld. Sumir hafa jafnvel talið sig sjá inn i helvíti. Jansen telur hugsanlegt að í sumum tilfellum verði minningar um fæð-
ingu viökomandi virkar en fæöing og dauöi renni oft saman i eitt ferli í undirmeðvitundinni. Dauðareynslan virðist tengjast draumum en þeir sem muna
drauma muna gjarnan reynslu sína í ketamínsvæfingu.
Ketamín:
Draumalönd
og dauðareynsla
Svæfingarlyflð ketamín verður
eftirritunarskylt lyf 1. janúar 2002
og lýtur þá sömu reglum og t.d.
morfin. Ástæður þessa má m.a.
rekja til þess að lyfið er tekið að
njóta vinsælda sem ofskynjunarlyf
og er sem slíkt nýjasti vímugjafinn
í íslensku skemmtanalífi. Sú notk-
un á sér þó lengri sögu í Bandaríkj-
unum enda er ketamín 40 ára gam-
alt lyf. í netfréttum SÁÁ var bent á
þessa þróun í lok ágúst og talað
um „litla bróður englaryksins“ en
ketamín var upphaflega búið til
með það fyrir augum að leysa
fencýklidin (PCP, englaryk) af
hólmi vegna harkalegra aukaverk-
ana þess sem svæfingarlyfs.
Saga ketamíns
Ketamín rekur ættir sínar til amer-
íska lyíjarisans Parke-Davis. Lyfjafræð-
ingurinn Calvin Stevens bjó lyfið til í
apríl 1962 undir heitinu CL369. Nokkr-
ar deilur risu um einkaleyfi og skráði
Stevens það í Belgiu árið 1963. í kjölfar
málaferla keypti Parke-Davis einka-
leyfið af honum fyrir stórfé og ketamin
fór á lyfjaskrá í Bandaríkjunum 1966
sem Ketalar. Notkun lyfsins er ekki
bundin við mannalækningar, dýra-
læknar nota það einnig við svæfingar
og er sú notkun í raun útbreiddari nú
á dögum þar sem ofskynjunarvirkni
lyfsins hefur reynst óþægileg mönnum.
Strax árið 1967 fóru að heyrast sögur
af notkun ketamíns í ýmsum annarleg-
um tilgangi. Árið 1970 braust heróínfik-
ill í Ástralíu inn í dýraspítala, fann þar
Ketalar og sprautaði því í æð. Hann
lýsti áhrifunum síðar sem ótrúlegu
ferðalagi um ókunnar víddir. í Argent-
ínu notuðu hópar andatrúarfólks
ketamín til að kalla fram endurfæðing-
arreynslu og bandarískir hermenn í
Víetnam fóru ekki varhluta af sérstök-
um áhrifúm þess.
Um 1980 var ketamín orðið áberandi
í bandarískri næturklúbba- og dans-
menningu og á síðasta áratug var
„Special K“ umtalað efni í danshúsum
á Ibiza, í London, Berlín, New York og
víðar. Árið 1997 rankaði bandaríska
flkniefnalögreglan, DEA, við sér og gaf
út viðvörun vegna misnotkunar
ketamíns. New York-ríki varð fyrst til
að setja lyfið inn i fíkniefnalöggjöf sína
og í ágúst 1999 var ketamín sett í þriðja
flokk „Controlled Substances Act“-al-
ríkislaganna. Þau lög skipta fíkniefn-
um í fimm flokka eftir hættueiginleik-
um, hættulegustu efnin fara í fyrsta
flokk en þau hættuminnstu i fimmta
flokk. í þriðja flokki eru efni sem hafa
læknisfræðilegt notagildi en hætt er
við misnotkun og ávanabindingu.
Þama er t.d. um að ræða amfetamín og
anabólíska stera. Lagaþróun er misjöfn
í öðrum löndum, víða hefur þó aðgengi
að ketamíni verið skert verulega. Ind-
land og Mexíkó em þó meðal landa þar
sem almenningur getur keypt ketamín
að vild í lyfjabúðum.
Hvernig virkar ketamín?
Breski geðlæknirinn Karl Jansen
hefur rannsakað áhrif ketamíns á
mannshugann ítarlega auk þess að
kanna notkunarmöguleika þess við
samtalsmeðferð í geðlæknisfræðilegum
tilgangi. í riti sínu Ketamine: Dreams
and Realities ræðir hann við fjölda
neytenda og gerir grein fyrir kenning-
um sínum um verkun ketamíns. Jan-
sen telur ketamín bindast svokölluðum
N-P-viðtökum í heilaframum. Með
þessu sé miðtaugakerfisboðefnið glúta-
mat gert óvirkt í viðkomandi frumum
sem geri það að verkum að gögn frá
skynfærunum komist ekki til skila.
Heilinn reyni þá aö fylla í eyðumar
með gögnum frá öðram heilastöðvum
sem lýsi sér í verulegri ummyndun
raunveruleikans.
Jakob Kristinsson, lyfjafræðingur á
Rannsóknastofu Háskóla íslands í lyfja-
og eiturefnafræði, sagði varasamt að
ragla saman tilgátum annars vegar og
rökstuddum rannsóknaniðurstöðum
hins vegar, í raun vissi enginn upp á
hár hvemig ketamín virkaði.
„Ketamin veldur því að menn skynja
ekki sársauka og ekki umhverfi sitt,
missa sem sagt algjörlega minnið.
Hægt er að nota lyfið til að gera skurð-
aðgerðir án þess að menn finni fyrir
því eða muni eftir þvi. Aftur á móti hef-
ur þetta þann kost að það hefur minni
öndunarbælandi áhrif en önnur svæf-
ingarlyf," sagði Jakob. Hann sagði
verkun ketamíns felast í því að sárs-
aukaboðin flyttust tO heilans en hann
ynni ekki úr þeim. „Menn hafa verið
að reyna að skýra verkunina út frá
glútamati og öðrum örvandi boðefnum
en hafa enga raunverulega skýringu
milli handanna, alla vega ekkert sem
þeir vilja hengja hatt sinn á,“ bætti
hann við.
Ketamínheimurinn
- dauðareynsla
Viðmælendur Jansens era flestir á
því að ketamínviman skapi sérstaka
tilvera eða veröld - ketamínheiminn.
Þar finni neytandinn hvorki mikið fyr-
ir sjálfúm sér né umhverfi sínu og
sameinist gríðarmikilli vitund eða
tómi. I ketamínheiminum sé neytand-
inn gjörsamlega óhlutbundinn og sum-
ir greina frá þvi að þeim finnist þeir í
raun bara vera hugsun sem geysist
áfram gegnum tómið. Algengt sé að
neytendur fmni á þessu stigi fyrir ótta
við aö þeir rati aldrei aftur til baka í
sitt venjulega ástand. Aðrir era þess
fullvissir að í ketamínheiminum búi
einhvers konar vitsmunaafl og sumir
telja að þetta afl sé að reyna að koma
til þeirra einhvers konar boðum. Sú
sannfæring hefur leitt marga neytend-
ur mjög langt og menn hafa orðið dag-
legri ketamínneyslu að bráð í leit að
hinum æðsta sannleik sem sé alltaf
rétt utan seilingar. Þá er algengt að
neytendur telji sig færast til í tíma,
jafnvel um mörg þúsund ár, og samein-
ast ævafomum menningarsamfélög-
um. Enn aörir telja sig hafa opnað hlið
inn í önnur sólkerfi.
Þessi sérstaka verkun ketamins hef-
ur laðað ýmsa aðra að lyfinu en ungt
fólk í tilraunaneyslu. Fólk með mennt-
un á sviði raunvísinda hefur hneigst
til ketamínneyslu fyrir forvitni sakir
vegna meintra tengsla vímunnar við
ýmsar kenningar skammtaeðlisfræði.
Einkum kenningar um hliðstæða
raunveruleika sem byggja á summu af
óendanlegum möguleikum atburða,
um að hver punktur í alheiminum eigi
sér samsvörun í öðram punkti og um
möguleikann á því að tvær eða fleiri
öreindir geti hugsanlega verið á sama
stað á sama tíma. Einn stærsti neyt-
andinn í viðmælendahópi Jansens er
prófessor í stærðfræði við bandarískan
háskóla. Hann hefur sprautað sig með
ketamíni í meira en áratug.
Annað megineinkenni ketamín-
vímunnar er hin svokallaða dauðar-
eynsla (“near-death experience“) sem
margir upplifa. Birtingarform hennar
geta verið mismunandi en þau algeng-
ustu era að neytandanum finnst hann
ferðast gegnum dimm göng í átt að
ljósi, hann telur sig vera látinn eða
honum finnst sem hann nái sambandi
við æðri máttarvöld. Sumir hafa jafn-
vel talið sig sjá inn í helvíti. Jansen tel-
ur hugsanlegt að í sumum tilfellum
veröi minningar um fæðingu viðkom-
andi virkar en fæðing og dauði renni
oft saman í eitt ferli í undirmeðvitund-
inni. Dauðareynslan virðist tengjast
draumum en þeir sem muna drauma
muna gjaman reynslu sína í ketamín-
svæfingu. Þetta var rannsakað í hópi
150 manna. Af þessum 150 sögðust 45%
almennt muna drauma. Af því hlutfalli
mundu 75% drauma meðan á ketamin-
svæfingu stóð en aðeins 2,4% af þeim
sem mundu almennt ekki drauma
mundu eftir reynslu sinni í svæfing-
unni. Hlutfall þeirra sem muna
drauma er mjög svipað hlutfalli þeirra
sem upplifa dauðareynslu á ketamíni
en það era 40%.
Dr. John C. Ully
Sennilega hefur enginn framkvæmt
víðtækari rannsóknir á áhrifum
ketamíns en bandaríski læknirinn og
vísindamaðurinn John C. Lilly. Lilly,
sem er þó þekktastur fyrir rannsóknir
sínar á heilastarfsemi höfranga, hann-
aði gríðarmikinn vatnstank sem var
þannig útbúinn að skynfæri þess sem í
tankinum dvaldist vora útilokuð frá
nánast öllu utanaðkomandi áreiti. Ætl-
un hans var að rannsaka hvemig
skynfærin byggju sér til forsendur þeg-
ar þau hefðu ekkert að styðjast við. Til-
raunirnar undu smám saman upp á
sig og Lilly sprautaði sig bæði með
LSD og ketamíni meðan hann dvaldist
í tankinum. Niðurstöðumar birti hann
að hluta árið 1978 í ritinu The Scient-
ist - A Novel Autobiography. Þar segir
Lilly frá því hvemig hann missti
smám saman allt raunveruleikaskyn á
fimmtán ára tímabili.
Hann þóttist þess fullviss að hann
væri staddur á árinu 3001 og eitt sinn
er hann sprautaði sig með ketamíni á
saleminu í flugvél taldi hann aö verar
frá öðrum hnöttum hefðu náð sam-
bandi við hann gegnum salemisspegil-
inn. Upplýsingar frá þeim um ýmis yf-
irvofandi samsæri leiddu til þess að
Lilly reyndi ítrekað að ná tali af Ford
Bandaríkjaforseta tO að vara hann við.
Með hjálp tanksins og ketamíns taldi
Lilly sig geta smækkað vitund sína nið-
ur í stuðul Plancks (6,624x10-27) og
komist þannig á hvaða stað sem væri í
alheiminum.
Lilly slapp lifandi frá rannsóknum
sínum og náði geðheilsu á ný. Hann
hlaut lof vísindasamfélagsins fyrir
höfrangarannsóknir sínar og er fyrir-
myndin að persónunni Wonko the
Sane í skáldsögu Douglas Adams, So
Long and Thanks for All the Fish. Lilly
lést 30. september sl., 86 ára gamall.
Ketamín á íslandi
Misnotkun ketamíns hérlendis hef-
ur, eftir því sem best er vitað, verið
bundin við að efnið er þurrkað og tek-
ið í nefið í duftformi. Þær tvær tegund-
ir lyfsins sem íslenskir læknar nota
fengu markaðsleyfi 1976 og 1985. Hrund
Hólm, dýralæknir hjá Lyfjastofnun,
segir ketamin með betri svæfingarlyfj-
um sem notuð séu við dýralækningar
og notkun þess sé mikil á þeim vett-
vangi hérlendis. Það sé þó aldrei notað
eitt sér, alltaf séu gefm róandi lyf með
þar sem dýrin verði mjög óróleg vegna
aukaverkananna. „Það sem er gott við
ketamínið er að það er öraggt, það er
vel þekkt og það verkar mun lengur en
barbítúröt [flokkur svefnlyfja og róandi
lyfjaj og hentar því vel fyrir stóran
hluta aðgerða sem dýralæknar fram-
kvæma daglega," útskýrði Hrund. Hún
sagði enn fremur að í flestum tilfellum
væri lyfmu sprautað í æð eða vöðva,
það færi eftir dýrategundum. Um eftir-
ritunarskyldu ketamíns frá næstu ára-
mótum sagði Hrund að lyfið hefði ver-
ið gert eftirritunarskylt í Noregi 1998
vegna hættunnar á misnotkun þess
sem ofskynjunarlyfs. Evrópska lyfja-
málastofnunin heföi auk þess verið
þátttakandi á fundi um málið haustið
2000 þar sem hvatt hefði verið til auk-
ins eftirlits. „Allir sem kaupa lyfið og
nota það verða að geyma það í læstum
skáp og skrá niður alla notkun. Lyfja-
eftirlitið heldur svo utan um þær
skráningar," sagði Hrand.
Sveinn Geir Einarsson, yfirlæknir á
svæfmgadeild St. Jósefsspítala í Hafn-
arfirði, segir notkun á ketamíni meðal
Þórarinn Tyrflngsson yfirlæknir
A Vogi fengust þær uþþlýsingar aö á
þessu ári hefðu fjórtán vistmenn játaö
fikt við ketamín. Allt væri það fólk á aldr-
inum 18-25 ára. Þórarinn Tyrfingsson yf-
iriæknir kvað þetta yfirieitt vera tilrauna-
neyslu sem þyrfti e.t.v. ekki aö segja
margt um gang mála að öðru leyti.