Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Page 55
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
63
I>V
Helgarblað
Hrund Hólm dýralæknir
Hún segir ketamín meö betri svæfingarlyfjum sem notuö séu viö dýralækningar og
notkun þess sé mikil á þelm vettvangl hérlendls. Þaö sé þó aldrei notaö eitt sér, alltaf
séu gefm róandi lyfmeö þar sem dýrin veröi mjög óróleg vegna aukaverkananna
Jakob Kristinsson lyfjafræðingur
„Ketamín veldur því aö menn skynja ekki sársauka og ekki umhverfi sitt,
missa sem sagt algjörlega minniö. Hægt er aö nota lyfiö til aö gera skuröad
geröir án þess aö menn finni fyrir því eöa muni eftir því
svæfingalækna fara minnkandi. Helst
sé notkunin stöðug á vettvangi slysa.
„Þetta er kjörlyf á slysstöðum vegna
þess að það er eina svæfmgarlyfið sem
gefið er í æð sem hefur líka verkjastill-
andi eiginleika. Þar sem ég var erlend-
is var þetta á tímabili notað þegar mað-
ur fékk inn mjaðmarbrot hjá gömlu
fólki. Þá gerði maður við það í mænu-
deyfingu en til þess að geta lagt mænu-
deyfinguna varð maður að leggja fólk
yfir á brotnu hliðina og þá gaf maður
oft pínulítið ketamín. Bæði til að
minnka verkinn og til að fá fólk til að
sofna. Þetta verkaði ágætlega en gall-
inn var sá að þessir sjúklingar kvört-
uðu undantekningarlaust yfir martröð-
um í svæfmgunni. Þess vegna er ég
mjög hissa þegar ég heyri að fólk sé far-
ið að nota þetta sem lyf á skemmtistöð-
um,“ sagði Sveinn. „Ég hef aldrei heyrt
neinn hæla ketamíni," bætti hann við.
Hann segir það enga spurningu að mis-
notkun ketamins sé stórhættuleg, svæf-
ingarlyf geti valdið öndunarbælingu og
ómögulegt sé að spá fyrir um hvað geti
orðið sé því blandað saman við áfengi
eða önnur fíkniefni.
Fjórtán á Vogi tekiö ketamín
Á Vogi fengust þær upplýsingar að á
þessu ári hefðu fjórtán vistmenn þar
játað á sig fikt við ketamín. Alit væri
það fólk á aldrinum 18-25 ára. Þórarinn
Tyrfingsson yfirlæknir kvað þetta yfir-
leitt vera tilraunaneyslu sem þyrfti
e.t.v. ekki að segja svo margt um gang
mála að öðru leyti. „Þetta virðist vera
tímabundin neysla vegna þess að hvetj-
andi áhrif til að halda sig í þessu,
þ.e.a.s. vellíðan, er ekki það sem er
áberandi í þessari neyslu. Menn tala
um að þeir séu að sækjast eftir að vera
„ruglaöir" og mér fmnst það dálítið
sérstakur þáttur i þessari blönduðu
neyslu. Við höfum alltaf haft áhyggjur
af þessari tilhneigingu sjúklinga okkar
til að leita í þetta af því að við höfum
talið að geðheilbrigði væri ekki gott hjá
þessum einstaklingum," sagði Þórar-
inn um neyslu ofskynjunarlyfja yfir-
leitt.
Hann sagðist ekki sjá að efni á borð
við ketamín gæti keppt við þau efni
sem nú eru hvað algengust, t.d. am-
fetamín, kókaín og MDMA (alsælu).
Ástandið sem flestir neytendur sækt-
ust eftir væri aukið sjáifstraust og at-
orka, ekki ofskynjanir. „En þetta
mun alltaf fylgja, alveg eins og LSD.
LSD er fyrst og fremst notað núna
vegna þess að það er ekki hægt að
mæla það í þvagi, það er ekki hægt að
sanna upp á þig að þú sért að nota
það. Þess vegna eru menn að finna
það í fangelsum." Um hættueiginleika
ketamíns sérstaklega sagðist Þórar-
inn efast um að það hefði verið skoð-
að nægilega vel hvaða áhrif ketamín
hefði á fólk við langvarandi endur-
tekna notkun. Þá væri mjög erfitt að
segja til um hættuna þegar það bland-
aðist inn í aðra neyslu. „Það getur
verið mjög hættulegt fyrir hluta fólks
að nota þessi efni. Þá er ég að vísa til
fólks sem á nákomna ættingja með al-
varlega geðsjúkdóma, fólks sem er
með ákveðna þætti í erfðunum. Ætli
það séu ekki svona fimmtán prósent
af okkur sem geta ekki notað þessi of-
skynjunarefni vegna þess að við setj-
um geðheilsuna í hættu,“ sagöi Þórar-
inn að lokum.
Ólafur Guðmundsson, hjá fíkni-
efnadeild lögreglunnar í Reykjavík,
segist lítið hafa orðið var við ketamín
á sínum vigstöðvmn, varla væri um
marga neytendur að ræða. „Við höf-
um nú ekki orðið varir við mikla
ketamínneyslu hér á landi en við höf-
um haft spumir af henni í gegnum
neytendur sem hafa sagt okkur að
þeir hafi notað þetta efni. Við höfum
eingöngu þeirra orð fyrir því,“ sagði
Ólafur. Hann bætti því við að hann
byggist ekki viö að ketamín næði að
skjóta rótum hér. „Það þarf virkilega
harðan neytanda til að nota efni eins
og ketamín oftar en einu sinni, þetta
er mjög óþægileg víma oft og tíðum
enda er efnið stórhættulegt," sagði
Ólafur enn fremur.
Hvað með óttann við að
komast ekki til baka?
„Hann er rosálegur. Égfinn
þennan ótta álltaf í miðri
vímunni eða þegar ég er
hœst uppi, hvort égfari til
baka eða hvort ég verði
alltaf svona. Þegar víman
fer að dála finn ég fyrir
stirðleika ífingrum og
liðum en líður mjög vel.
Það er eins og þetta sjúgi
alla orku úr líkamanum,
þetta er það fíkniefni sem
hefur komið mér hœst
upp aföllu.“
íslenskur ketamínneytandi
Eftirfarandi er úr viðtali við neyt-
anda sem hefur notað ketamín reglu-
lega frá því snemma á þessu ári. Hann
var beðinn um að lýsa dæmigeröri
ketamínvímu. „Ketamínvíma fjarlægir
alla heilbrigða skynjun á umhverfið.
Þér finnst eiris og það sé verið að ýta á
þig og þú finnur fyrir miklum þrýst-
ingi inni í líkamanum. Sjónsviðið
þrengist alveg rosalega, stundum verð-
ur það bara að punkti fyrir framan þig.
Þá finnst þér þú verða mjög léttur og
fyrir vikið er oft erfitt að ganga. Svo
geturðu dottið alveg inn í þinn heim,
fundist þú vera í biómynd eða á 17. öld.
Þú horfir kannski á [tónlistarjmynd-
band sem er þrjár mínútur og finnst
það vera þrir timar.“
Hvað með óttann við að komast ekki
til baka?
„Hann er rosalegur. Ég fmn þennan
ótta alltaf í miðri vímunni eða þegar ég
er hæst uppi, hvort ég fari til baka eða
hvort ég verði alltaf svona. Þegar vim-
an fer að dala finn ég fyrir stirðleika í
fmgrum og liðum en líður mjög vel.
Það er eins og þetta sjúgi alla orku úr
Hann þekkir kétamín úr sínu starfí en segir aö sjúklingar kvörtuöu undantekningarlaust
yfir martrööum í svæfmgunni. „Þess vegna er ég mjög hissa þegar ég heyri aö fólk sé
að nota þetta é skemmtistööum. “
líkamanum, þetta er það fíkniefni sem
hefur komið mér hæst upp af öllu.“
Hvað er óþægilegast?
„Þegar maöur dettur inn í einhvem
furðulegan fjarlægan raunveruleika.
Þú situr samt bara kyrr, þetta er allt að
gerast í hausnum á þér. Mér finnst
ótrúlega óþægilegt að tala við ókunn-
ugt fólk þegar ég er á þessu og hreyfi-
geta getiu’ orðið takmörkuð, þú þarft
oft að styðja þig við eitthvað og snögg-
ar hreyfmgar eru mjög óþægilegar. Ég
hef líka lent í því að geta ekki klætt
mig í skó.“
Hver eru eftirköstin af þessari
vímu?
„Ég hef ekki fundið fyrir neinum
niðurtúr eftir ketamín, mér finnst aðal-
lega að ég sé gjörsamlega búinn, eins
og eftir stífa æfingu, mikil þreyta og dá-
lítill stirðleiki."
Hversu útbreitt er ketamin á Is-
landi?
„Það er ótrúlega vinsælt hjá þeim
sem vita af því en það er ekki stór hóp-
ur. Margir þora ekki að taka þetta þeg-
ar þeir sjá annað fólk á þessu en aðrir
geta ekki beðið eftir að prófa. Eftir-
spumin er þokkaleg, það era margir að
spyija um ketamín þegar það er tómt
[ekkert er til]. Sumarið héma var mjög
gott hjá tveimur mönnum sem seldu
ketamín. Ef það nær að haldast héma
á íslandi í einhvem tíma er það komið
til að vera.“
Atli Steinn Guömundsson
Höfundur er nemi í hagnýtri
jjölmiðlun vió Háskóla íslands.
verður haldið laugardaginn
1. desember, kl. 13.30, í húsnæði
Vöku hf. að Eldshöfða 6.
Þar verða meðal annars eftirfarandi
bílar boðnir upp:
Honda Civic V-tec ‘97
Land Rover Discovery ‘98
Hyundai H1 ‘98
BMW318Í ‘96
Palmomio Pony
Palmomio Pony
Opel Astra ‘97
Opel Corsa ‘99
Opel Corsa ‘99
Nissan Primera ‘98
Ford Puma ‘00
Toyota Avensis ‘00
Toyota Carina ‘95
Toyota Yaris ‘99
Toyota Avensis ‘00
VW Golf ‘98