Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Side 60
68
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Tilvera
DV
Sævar
Bjarnason
skrifar um skák
Skákþátturinn
Heimsmeistaramót FIDE:
Mótsstaöurinn
Skákmenn á leiö í fyrstu umferöina í Kongress-höllinni í Kreml.
Karpov og Kortsnoj
duttu út í fyrstu umferð
Heimsmeistaramót FIDE var sett
í Moskvu á mánudag og sjálfur Vla-
dimir Pútin forseti setti mótið í
Kongress-höllinni í Kreml. Á þriðju-
dag hófu síðan 128 keppendur
keppni og teflt er samkvæmt bikar-
útsláttarkeppni - aðeins 2 kapp-
skákir og síðan bráðabani - þannig
að á fímmtudag og föstudag tefldu
64 skákmenn.
I dag, laugardag, og sunnudag
tefla 32 skákmenn. Á mánudag tefla
síöan 16 kappar og fyrsti frídagur-
inn er á þriðjudag. Á miðvikudag er
síðari skákin í 16 manna úrslitun-
um og á fimmtudag og föstudag í
næstu viku tefla 8, enn meiri hetjur.
Laugardag eftir viku tefla 4 úrvinda
skákmenn um hverjir komast i úr-
slitin og hveijir leika, fyrirgefið,
Anand á sigurbraut
Heimsmeistarinn Vishy Anand er hér sestur að skákboröinu og
andstæðingurinn er Peter Heine Nielsen.
tefla, um hið „einskis verða“ 3. sæti,
þannig að ekki má mikið bera út af.
Hraðinn á mótinu er mikill: Teflt er
eftir nýju Fide-tímamörkunum og
bráðabanaskákir hefjast strax að
kappskákunum loknum. Kappskák-
imar eru aðeins 2 í hverri umferð
þannig að úthald og aldur (?) skipt-
ir meira máli en áður. Líkja má
þessu við knattspymukeppni: 2 leik-
ir - heima með hvítt og á útivelli
með svarL Siöan vítaspymukeppni
að afloknum seinni leiknum (bráða-
bani). En knattspymumenn teygja
lopann meira, t.d. í heimsmeistara-
keppni. Þá fá menn tækifæri i
nokkra daga til að hvílast og safna
kröftum og leggja á ráðin um hvem-
ig næsta leik skuli hagað. Og skák
er erfið íþrótt, enda erum við skák-
menn á leið inn í hina svokölluðu
alvöru-ólympíuleika með lyfjaeftir-
liti og öðru tilheyrandi. Menn verða
að fara að minnka kaffidrykkjuna
við skákborðið - svo ekki sé talað
um næturgaman!
Töluverður hávaði var í „höll-
inni“ enda skákáhugi einna mestur
í Moskvu í heimi hér. Erfiðlega
gekk að „sussa“ á áhorfendur -
breyttir tímar! Margir frægir kapp-
ar féllu úr keppni í 1. umferð, svo
sem gömlu jaxlarnir Karpov og
Kortsnoj! Karpov (2692) hefði betur
sleppt yfirlýsingum sínum um að
hann ætlaði að ná titlinum frá Asíu
til móður Rússlands eins og Rússar
orða það. Hann tapaði fyrir Asíu-
búa, Kínverjanum Pengxiang Zhang
(2482). En Karpov var þó aðeins í 16.
styrkleikasætinu (ég hélt að við ís-
lendingar ættum þetta sæti!?). Kar-
pov gerði 2 jafntefli i kappskákun-
um, síðan tóku strax við 2 „víta-
spyrnur" og Karpov tapaði þeim
báðum.
Viktor Kortsnoj, Sviss, (2624) tap-
aði fyrir Lev Psakhis, ísrael (2566),
einnig í bráðabana. Einhvem tíma
áttu þeir báðir heima í Sovétinu og
urðu báöir skákmeistarar Sovét-
ríkjanna sem þykir mikill gæða-
stimpill á skákmanni! Englending-
urinn Nigel Short, Bandaríkja-
mennirnir Larry Christiansen og
Alex Yermolinsky voru á meðal
þeirra sem máttu bíta í það súra
epli aö yfirgefa frostið í Moskvu.
Indverjinn Anand, núverandi
heimsmeistari FIDE, tapaði sinni
fyrstu skák gegn óþekktum Frakka.
Hann tefldi hratt og örugglega og
fékk góða stöðu, síðan nær unnið
tafl, og svo gat hann haldið jafhtefli.
En hraðinn var of mikilf - vanmat
á andstæðingnum? Anand fék skák-
inni niður fljótt og örugglega og
ekki bætti úr skák þegar hann yfir-
gaf keppnisstaðinn í forfáta
Mercedes Benz sem mótshafdarar
höfðu útvegað honum! Bifreiðin fór
ekki í gang og óvíst hvenær „Ivan“
verður búinn að gera við hana! En
Vishy tók sig saman í andlitinu,
vann seinni skákina, bráðabanann,
og líklega er Benzinn orðinn öku-
fær aftur!
Hvítt: Vishy Anand (2797)
Svart: Olivier Touzane (2382)
Rússnesk byijun
(Petrofí)! Moskvu 27.11. 2001
1. e4 e5 2. Rf3 RfB 3. Rxe5 d6 4.
Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0-
0 Be7 8. c4 Rf6 9. Rc3 Be6 10. cxd5
Rxd5 11. a3 0-0 12. Hel Bf6 13.
inn glæsilegur frá
Garðheimu
Þessi glæsilegi
hefðbundni
aðventukrans
er vafinn með
norðmannsþin,
buxus og tuju.
Verðið er
frábært,
aðeins
3.960.
GARÐHEIMAR
Be4 h6 14. Bc2 Rxc3 15. bxc3 Bc4
16. Rd2 Bd5 17. Hbl Bg5 18. c4
Bxd2 19. cxd5 Bxel 20. dxc6 Ba5
21. cxb7 Hb8
22. Dd3? Mun betra er 22. Dh5! og
hvítur er með hartnær unnið tafl,
eftir 22. - Bb6 23. Bxh6! Dxd4 24.
Bh7+ og hvítur vinnur! 22. - g6 23.
Bxh6 He8 24. Df3 He6 25. Bb3 Hf6
Hér er besti leikurinn 26. De4 og
eftir 26. - Hb6 27. De5 (máthótun)
DfB 28. Dxa5 H8xb7 29. Dc3 g5 30.
De3! Og hvítur stendur vel! Það hélt
ég en Jón Viktor Gunnarsson benti
á að eftir 30. - Dxh6 31. De8+ Df8 32.
Bxf7+ Kg7 er hvítur með tapað tafl.
Betra er 30. Bxg5 Dxg5 31. h3 Kf8 32.
d5 en svartur stendur sennilega bet-
ur. En Anand tapar nú hratt og ör-
ugglega. 26. Dg4 Hb6 27. Bg5 De8
28. Df3 H8xb7 29. h4 Dd7 30. g4
Hxb3 31. Hxb3 Hxb3 32. Dxb3
Dxg4+ 33. Kfl Dxd4 34. Be3 Dal+
35. Kg2 Bb6 36. Bxb6 axb6 37.
Dg3 Dcl 38. h5 Dc6+ 39. Kfl??
Enn var von eftir 39. f3 og berjast
má fyrir jafntefli í endataflinu, þó
að það sé unnið fyrir svart, en mik-
ið og langt endatafl eftir! Andy War-
hol sagði að allir ættu sínar frægð-
armínútur - núna á öld hraðans fer
þeim mínútum ört fækkandi! 39. -
Dhl+ 0-1
1 annarri umferð bikarkeppninn-
ar tefldi Anand síöan við sterkan
skákmann, annan af sigurvegurun-
um á Minningarmóti Jóhanns Þóris
Jónssonar. Ekki vafðist þaö fyrir
honum að sigra í skemmtilegri
skák. En Pétur er sennilega orðinn
sterkasti skákmaður Dana, hár og
spengilegur. Og meö danskan
„húmor" sem betur fer! Að auki
tefldi hann á 1. borði fyrir Taflfélag
Reykjavíkur í Vestmannaeyjum, en
TR er efst á íslandsmóti skákfélaga
eins og flestir ættu að vita!
Hvítt: Peter Heine Nielsen (2620)
Svart: Vishy Anand (2770)
Drottningarindversk vörn.
Moskvu (2.1), 29.11. 2001
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3
Ba6 5. b3 Bb4+ 6. Bd2 Be7 7. Bg2
c6 8. 0-0 d5 9. Dc2 Rbd7 10. Hdl
Hc8 Vonandi skoöa strákarnir i
Taflfélaginu ekki þessa skák; svona
hef ég oft teflt með hvítu. En það
gerir samt ekkert til, líklega, þeir
máta mig alltaf hvort eð er núorðið!
11. Bf4 c5 12. dxc5?! En hér verð-
ur Pétri á í messunni, ég held aö
12. Re5 sé betri leikur?! 12. -
Bxc5 13. Rc3 0-0 14. e4 Rg4
Sterkir skákmenn eru lítið fyrir
að bakka, t.d. með 15. Hfl. Þeir trúa
á að þeirra hugmyndir gangi upp.
En stundum er það sá sterkari sem
fær snjallari hugmyndir. Pétur hef-
ur vcnast eftir því að riddarinn á f2
eigi sér ekki undankomuleið. 15.
exd5 Rxf2 16. Hfl e5 17. Bcl e4!
Fram, fram fylking! 18. Rh4 e3 19.
Ra4 Bd4 20. Bb2 Bxb2 21. Dxb2 b5
22. Rf5 Dg5 23. Rd6.
Hér er allt í hálofti en það er
„something rotten in the state of
Denmark". Hvítu miðborðspeðin
tryggja ekki nóg mótspil. 23. - bxa4
24. Rxc8 Bxc8 25. Dd4 Rf6 26.
Hael He8 27. d6 Rh3+
Allt er farið „forbi". Eftir 28. Khl
kemur væntanlega e2 og frelsinginn
er orðinn atkvæðamikill á Brimar-
hólmi! 28. Bxh3 Bxh3 29. Hf4 Da5
30. Hxe3 Hxe3 31. Dxe3 axb3 32.
d7 Bxd7 33. axb3 Bh3 0-1.
Bikarkeppni Striksins,
Íslandssíma og
Taflfélagsins Hellis!
Helgi Áss Grétarsson stórmeist-
ari sigraöi örugglega í úrslitamót-
inu þar sem efstu menn kepptu. Bik-
armeistarar Striksins 2001 eru:
Helgi Áss Grétarsson, Ingvar Þór
Jóhannesson (undir 2100), Sigurður
Ingason (undir 1800), Páll Gunnars-
son (undir 1500 og stigalausir) en
tefld voru ein 11 mót á vefnum.