Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
71
DV
íslendingaþættir
85 ára________________________
Kristín Jónasdóttir,
Dalbraut 20, Reykjavík.
Margrét Guömundsdóttir,
Sólvangsvegi 3, Hafnarfirði.
80 ára________________________
Andrés Ásgrímsson,
Langagerði 24, Reykjavík.
Helgi Gunnarsson,
Skúlagötu 20, Reykjavík.
75 ára________________________
Guðmundur Þórhallsson,
Gnoðarvogi 84, Reykjavík.
70 ára________________________
Einar Ólafsson,
Hamraborg 36, Kópavogi.
Ingimundur Eiríksson,
Njarðvíkurbraut 27, Njarðvík.
Nikulína Einarsdóttir,
Þúfubarði 8, Hafnarfiröi.
50 ára________________________
Brynjólfur Eyjólfsson,
Hjallalundi 22, Akureyri.
Ingibjörg Árnadóttir,
Kambahrauni 25, Hveragerði.
Jóhanna Auöur Jóhannesdóttir,
Bæjargili 122, Garöabæ.
40 ára
Berglind Einarsdóttir,
Lerkilundi 36, Akureyri.
Bjarni Gíslason,
Háagerði 15, Reykjavík.
Einar Haukur Ármannsson,
Búðastðu 2, Akureyri.
Hreinn Hreinsson,
Njarðargötu 29, Reykjavík.
Ingibjörg Guöbrandsdóttir,
Þingási 55, Reykjavík.
Jón Árni Jónsson,
Háuhlíð 14, Sauðárkróki.
Jónína Siguröardóttir,
Tómasarhaga 18, Reykjavík.
Kristín Torfadóttir,
Miðtúni 12, ísafiröi.
Ólafía Karitas Jónsdóttir,
írabakka 14, Reykjavík.
Snorri Snorrason,
Logafold 75, Reykjavlk.
Sviösljós
Johnny Depp:
Afneitar
frumrauninni
Allar stórstjömur eiga sitt
upphaf - og upphafið er venju-
lega í sjónvarpi. Johnny Depp er
þama engin undantekning. Það
sem hins vegar greinir hann frá
öðmm stjömum sem gjarnan
stoltar minnast upphafs síns, þá
vill Depp ekkert af fmmraun
sinni í unglingaþáttunum 21
Jump Street vita. í viðtölum vís-
ar hann einungis til þáttanna
sem „þessara sjónvarpsþátta
þama“ en það fer óskaplega í
taugamar á Patrick Hasburgh,
sem bæði skrifaði handrit að og
framleiddi 21 Jump Street.
„Auðvitað er Johnny Depp mjög
hæfileikaríkur og svalur ná-
ungi,“ hefur Hasburgh sagt í við-
tali. „En það er orðið ansi þreytt
að heyra hann stöðugt tala illa
um þættina sem gerðu hann að
því sem hann er í dag. Ef ekki
væri fyrir 21 Jump Street, þá
væri Johnny sennilega enn að
selja blýanta i Los Angeles."
Hasburgh viðurkennir að
þættimir hafi ekki verið nein
sérstök snilld, en þeir hafi samt
verið bílskúrsbandið þar sem
Depp lærði að leika og það sé
óþolandi að hann beri ekki
meiri virðingu fyrir þeim sem
studdu hann fyrsta fetið.
Magnús Sigurjón Guðmundsson
verkamaður í Hveragerði
Magnús Sigurjón Guðmundsson
verkamaður/ Frumskógum 5,
Hveragerði, varð áttræður í gær.
Starfsferíll
Magnús fæddist í Reyðarfirði og
ólst upp á Hrauni í Reyðarfirði.
Hann stundaði nám við Bændaskól-
ann á Hvanneyri og lauk þaðan bú-
fræðiprófi 1948.
Magnús var verkamaður við
Andakílsvirkjun 1952-58, starfaöi
við Sementsverksmiðjuna á
Akranesi í nokkur ár, síðan við
Síldarverksmiðju Akraness, vann í
Slippnum á Akranesi um skeið, var
gæslumaður við Vistheimilið Sól-
heima i Grímsnesi í þrjú ár og vann
svo síðustu starfsárin á Heilsuhæli
NLFÍ í Hveragerði.
Magnús spilaði á harmónikku frá
því á unga aldri og lék oft fyrir
dansi í Reyðarfirði og í Borgarfirö-
inum. Þá hefur hann starfað í
harmóníkufélögum. Hann söng með
Karlakómum Svönum á Akranesi
um árbil og syngur með kór aldr-
aðra á Selfossi.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 20.12. 1953 Sig-
urbjörgu Oddsdóttur, f. 16.7. 1930,
húsmóður. Hún er dóttir Odds Guð-
mundssonar vélgæslumanns og
k.h., Vilhelmínu Jónsdóttur hús-
móður, er bjuggu á Flateyri og við
Andakílsvirkjun.
Börn Magnúsar og Sigurbjargar
eru Valgeir Borgijörð Magnússon, f.
23.2.1947, verkamaður á Stokkseyri,
en kona hans er Fanney Magnússon
og á hann tvö börn; Guðrún Jónína
Magnúsdóttir, f. 20.12.1949, húsmóð-
ir á Hellu, var gift Hreini Elliðasyni
sem er látinn en maður hennar er
Jón Ragnar Björnsson og á hún þrjú
börn; Guðmundur Trausti Magnús-
son, f. 7.5.1952, vélvirki í Reykjavík,
kvæntur Ingibjörgu Ýr Gísladóttur
og eiga þau íjögur börn; Sævar Þór
Magnússon, f. 13.11. 1953, kjötiðnað-
armaður á Akranesi; Jenný Ásgerð-
ur Magnúsdóttir, f. 28.6. 1957, starfs-
maður við Sjúkrahúsið á Akranesi,
búsett á Akranesi en maður hennar
er Jón Þórir Leifsson, vélvirki og
lögreglumaður, og eiga þau íjóra
syni; Margrét Högna Magnúsdóttir,
f. 13.6. 1960, hús-
móðir á Akranesi,
maður hennar var
Ásgeir Pétursson
sem nú er látinn
og eru börn þeirra
þrjú; Erlingur
Birgir Magnússon,
f. 24.3. 1962, stuðn-
ingsfulltrúi á
Akranesi; Vilhelm-
ína Oddný, f. 25.8.
1963, tannsmiður í
Reykjavík, maður
hennar er Þorgeir
Gunnarsson og
eiga þau einn son;
Jónína Björg, f.
25.8. 1965, kennari
á Akranesi, maður
hennar er Guðmundur Sigurðsson
og eiga þau þrjú böm.
Systkinin Magnúsar: Óskar, nú
látinn, verkamaður i Reykjavík;
Valborg, nú látin, húsfreyja á Rand-
versstöðum í Breiðdal; Lára, hús-
móðir á Reyðarfirði; Jens, fyrrv.
verkamaður á Breiðdalsvík; Anna,
húsmóðir á Selfossi.
Foreldrar Magnúsar voru Guð-
mundur Jónsson, bóndi á Hrauni í
Reyðarfirði, og k.h., Guðrún Jónína
Olsen, dóttir Jens og Önnu Olsen
frá Klöpp á Reyðarfirði.
Kaffisamsæti verður haldið í sal
Grundaskóla á Akranesi sunnud.
2.12. kl. 15.00-17.00. Vinir og vanda-
menn eru boðnir velkomnir.
Courtney Love:
Grét
ljóð
Russel
Courtney Love hefur nýlega opn-
að sig um ástæður sambandsslit-
anna við Edward Norton og hún
hefur líka lýst því yfir að hún hafi
aldregi verið með Russel Crowe,
eins og slúðurkerlingar héldu kinn-
roðalaust fram.
Love sagði að hún hefði tekið af
skarið og bundið enda á sambandið
við Edward Norton vegna þess að
hann hefði verið orðinn „ráðríkur".
„Hann hjálpaði mér inn og út af
meðferðarstofnunum þegar mamma
hans lá banaleguna," sagði söngkon-
og las
með
Crowe
an 1 viðtali. „Hann var sannkölluð
hetja en gerðist síðan fullráðríkur
fyrir minn smekk.“
Um meint samband við Russel
Crowe, en ólygnir segjast hafa séð
þau fara saman inn á hótelherbergi
eftir Golden Globe verðlaunaaf-
hendinguna fyrir tveimur árum,
segir Courtney: „Við töluðum eigin-
lega ekkert saman inni á herberg-
inu. Við skrifuðum furðuleg ljóð og
grétum. Og við héldumst í hendur."
Öðruvísi mér áður brá!
Cruise elskar
Nicole enn
Þegar lögskilnaður hjónanna
Toms Cruise og Nicole Kidman
varð loksins að veruleika, viður-
kenndi Tom að hann elskaði
Nicole sína enn. „Maður getur
elskað einhvem og þótt óskap-
lega vænt um hann þó að ósam-
komulagið sé mikið. Þannig eru
tilfinningar mínar í garð Nicole.
Við áttum okkar góðu stundir
sem ég mun geyma með mér.“
Leikarinn sagði líka að þau
Nicole væru góðir vinir og
myndu ala upp bömin sín sam-
an - þó að slúðrarar hafi raunar
sagt annað. Þegar Tom var
spurður út í samband sitt við
gyðjuna Penélope Cmz sagði
hann: „Hlutimir gerast. Ef ég
stend frammi fyrir því að vilja
gifta mig aftur, þá geri ég það.
Ég er svo rómantískur."
Af Nicole er það að segja að
hún hefur sést eyða æ meiri
tíma með íslandsvininum Robbie
Williams.
Sendu afmælisbarninu
kveðju í tilefni dagsins
Farðu á siminn.is
EÐA HRINGDU í SÍMA
1446
Aðventu-Ieiðiskrossar
12V-34V
Sent í póstkröfu, sími 898 3206
fóJilUMMH
Viljió þiö hjálpa til við að fjármagna þjálfun fatlaðra á hestum í Víðidal?
Reikningurinn er í Landsbanka íslands nr. 0117-05-68888
Fjárvörslufélög eru Landssamtökin
Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaóra og fatlaðra, Styrktarfélag vangefinna.