Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Blaðsíða 67
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
75 -
Helgarblað
Alþjóðleg danshátíð í höllinni:
Tvö íslensk pör
hafa titla að verja
„Þetta verður glæsileg dagskrá
með Qórum keppnum og hefst með
Norðurlandameistaramóti kl. 15 í
dag,“ segir Birna Bjömsdóttir, for-
maður Dansíþróttasambands ís-
lands, sem stendur fyrir danshátíð í
Laugardalshöllinni bæði í dag og á
morgun. Norðurlandamótið verður
með þátttöku 23ja para sem keppa í
tíu dönsum. „Þarna verða tvö af
okkar bestu pörum að verja meist-
aratitla sína frá því í fyrra, þau Jón-
atan Arnar Örlygsson og Hólmfríð-
ur Björnsdóttir í flokki unglinga,
12-13 ára og ísak Halldórsson Ngu-
yen og Helga Dögg Helgadóttir í
flokki ungmenna, 16-18 ára,“ segir
Birna og heldur áfram að lýsa mót-
inu: „I framhaldi af þessari keppni
verðum við með alþjóðlegt opið
dansmót og í kvöld verða dansaðir
sígildir samkvæmisdansar: tangó,
vals, vínarvals, foxtrot og quickstep.
Á þá keppni fáum við líka 23 pör,
megnið af þeim erlendis frá. Þar á
meðal er eitt ungt og upprennandi
par frá Rússlandi sem við höfum
séð erlendis og væntum mikils af.“
Dagskrá hátíðarinnar hefst kl. 15
á morgun, sunnudag, á opnu ís-
lensku móti. „Það er opið öllum
þeim sem vilja taka þátt í keppni
þótt þeir séu ekki komnir í aúra
fremstu röð dansara,“ segir Birna. í
framhaldi af því er alþjóðlegt mót í
suður-ameriskum dönsum. Þar
dansa 23 pör og að sögn Birnu koma
þau flest erlendis frá. Milli keppna
verða skemmtiatriði, meðal annars
stíga þau Páll Óskar og Védís Her-
vör Árnadóttir á svið. En býst Birna
við að fylla höllina af fólki? „Við vit-
um að dansáhugafólkið okkar
fylgist vel með þessu móti og við
eigum mjög dygga áhorfendur sem
eru eldri borgarar. Það er fólk sem
veit hvað dansinn hefur mikið að
segja fyrir heilsuna og þeim er boð-
ið á þessar keppnir. Svo er þetta
opið öllum almenningi sem hefur
gaman af góðri íþrótt. Þetta verður
veisla fyrir augað.“ -Gun.
I fremstu röð
Þau þurfa að verja sinn Noröurlandatitil í dag, Jónatan Arnar Örlygsson
og Hólmfríöur Björnsdóttir, sem dansa í fiokki unglinga 12-13 ára.
Jólahlaðborðið okkar bíður ykkar í Skrúð alla daga vikunnar og í Súlnasal
um helgar þar sem boðið er upp á skemmtiatriði og dansleik.
Pantanir í síma 525 9900.
Radisson SAS Hótel Saga
Hagatorgi, 107 Reykjavík
www.radissonsas.com
KMIL Sv. KáK&SÓN*
at
HOTELS & RESORTS
Jalin í nýju Ijósi!
Jólaseríur - inni og úti
Marglitar, einlitar — gular, raubar,
grænarog bláar.
Essö;
Olíufélagið hf
www.esso.is
Heilsugæslustöðinni í Ólafsvík færð góð gjöf:
Bæjarstjóri vígir lungnatæki
með hraustlegum blæstri
DVWIYND PÉTUR S. JÓHANNSSON.
Bæjarstjóri blæs og blæs ...
Hraustlegur blástur Kristins bæjarstjóra í Ólafsvík. Dr. Gunda Nygard, læknir
Heilsugæslustöövarinnar, fylgist ánægö meö.
Heilsugæslustöðinni í Ólafsvík
var færður lungnamælir að gjöf á
mánudag. Gefendur eru Loftfélagið,
áhugafólk um öndun og Glaxo-
SmithKline. Pétur Magnússon, full-
tr'úi GlaxoSmithKline, afhenti tækið
og kynnti það lækni og starfsfólki
stöðvarinnar. Magnús Eiríksson,
stjórnarformaður stöðvarinnar,
þakkaði honum og samstarfsaðilum
hans höfðinglega gjöf.
Loftfélagið er samstarfsverkefni
vinnuhóps á vegum Landlæknis-
embættisins, Tóbaksvarnanefndar
og GlaxoSmithKline. Meðal þess
sem samstarfsverkefnið beinist að
er endurnýjun lungnamælitækja á
heilsugæslustöðvum um land allt.
Ört vaxandi tíðni lungnasjúk-
dóma, sér í lagi langvinnrar lungna-
teppu, kallar á víðtækt samstarf
innan heilbrigðiskerfisins. Talið er
að 16.000-18.000 manns þjáist af
völdum langvinnrar lungnateppu
hér á landi. Orsökin fyrir því að
tíðni langvinnrar lungnateppu hef-
ur aukist er aðallega sú að fjöl-
mennir árgangar áranna 1930-1965
eru að færast upp aldursstigann en
reykingar hafa verið nokkuð út-
breiddar meðal þeirra. Um 90%
þeirra sem þjást af völdum sjúk-
dómanna eru reykingamenn. Haldi
fram sem horfir er talið að lang-
vinnir lungnateppusjúkdómar verði
þriðja algengasta dánarorsökin hér
á landi á næstu 20 árum. Jafnframt
má gera ráð fyrir að öryrkjum af
völdum þeirra fjölgi. Vonir standa
til að hið nýja tæki muni, ásamt
fræðslu- og upplýsingastarfi Loftfé-
lagsins, verða til þess að þessir sjúk-
dómar greinast fyrr og íleiri úrræð-
um verði til að dreifa.
Það var Kristinn Jónasson, bæj-
arstjóri Snæfellsbæjar, sem vígði
tækið með því að blása hraustlega í
það og við hlið hans stóð dr. Gunda
Nygard, læknir Heilsugæslustöðvar-
innar í Ólafsvík. Á þessu nýja tæki
sést strax í tölvu hvernig ástand
sjúklingsins er. Lungnastarfsemi
bæjarstjórans var greinilega í góðu
lagi. Loftmagn í lungum hans vel
yflr meðahagi enda var þar á ferð
ungur reyklaus maður sem stundar
útivist og holla hreyfingu.
-PSJ
Efhún
erekki
imi
skalég
hundur
heita!
wmá
^^ps^Smáauglýsingar
ertu að kaupa
eða selja?
550 5000