Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2001, Qupperneq 72
Aðeins kr. 1.050.
Nissan Atmera
bílaleigubílar
skráðir 06/00
I 3 ■'Sáevarhöfða 2 -112 Reykjayík
FRETTAS KOTIÐ
SÍMINM SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2001
Jón Grímsson í yfirheyrslu vegna „Leirfinnsmálsins“:
Vonandi varpað ein-
w hverju Ijósi á málið
- skýrsla sem tekin var 1974 stenst ekki
Jón Grímsson sem greint hefur
verið frá í fréttum sem hugsanlegri
fyrirmynd leirstyttunnar í Geirfinns-
málinu, kom til yfirheyrslu í Hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg í
gær. Lýsti Jón fyrir Láru V. Júlíus-
dóttur, sérstökum saksóknara, ferð-
um sínum í Keflavík á sínum tíma.
Jón hefur þó á engan hátt verið
bendlaður við Geirfinnsmálið.
Þingvallaleið:
Hættir við SL
Þingvallaleið hefur dregið til
baka tilboð í þrotabú Samvinnu-
ferða-Landsýnar. Sem kunnugt er
lýsti fyrirtækið fljótlega eftir gjald-
þrotið áhuga á kaupum á þrotabú-
inu sem var hafnað. í gærmorgun
sendi fyrirtækið inn annað tilboð,
nokkru hærra. Þegar skiptastjóri
hafði engin svör gefið undir kvöld
lýsti Tryggvi Agnarsson, lögmaður
Þingvallaleiðar, því yfir að fyrir-
tækið væri hætt öllum sínum þreif-
ingum i málinu. „Við teljum okkur
vera fallna á tíma, þetta er ákaflega
sorgleg niðurstaða," sagði Tryggvi í
samtali við DV. Hann telur verð-
mæti þrotabúsins rýma gríðarmik-
ið með hverjum deginum.
Haft var eftir Ragnari H. Hall
skiptastjóra að skýrst gæti um
helgina hvernig þrotabúinu yrði
ráðstafað. -sbs
HESTAR
í ÞJÓFALITUM!
Styttan sem gengið hefur undir
nafninu Leirfinnur var notuð sem
gagn við óréttmæta sakfellingu Magn-
úsar Leópoldssonar á sínum tíma.
„Ég var bara að gefa nýja skýrslu af
málinu og farið var gaumgæfilega
ofan í svokallaða skýrslu mina sem
gerð var á sínum tíma. Mér sýnist að
Lára sé hér að vinna gott starf. Við
fórum yfir ferðir mínar til Keílavíkur
umræddan dag 1974. Við fórum yfír
misræmi í umræddri skýrslu. í henni
eru misræmi sem passa ekki við það
sem ég man eftir þennan dag. Það eru
rangfærslur í þeirri skýrslu sem
standast ekki. Þær eru gerðar af þeim
sem hana skrifaði. Ég kannast heidur
ekki við að sá lögreglumaður sem
undir hana skrifaði hafi tekið hana í
þvi formi sem hún er síðan gerð. Ég
vona að þessi skýrsla mín núna geti
varpað einhverju ljósi á þá hluti sem
fram að þessu hafa verið óljósir um
hugsanlega tilurð svokallaðrar Leir-
finnsstyttu," sagði Jón Grímsson í
samtali við DV eftir skýrslutökuna í
gær. -HKr.
Sjá bls. 36 og 45.
ÐV-MYND HILMAR ÞÖR
Á leiö í yfirheyrslu
Jón Grímsson telur að nú sé loks búið að koma saman réttri mynd af ferðum hans í Keflavík daginn
sem Geirfinnur Einarsson hvarf 1974.
Geir Haarde segir enn tíma til stefnu til að ákveða niðurskurðartillögur:
Niðurskurður óákveðinn
- minnir á að fæðingarorlofsmálið hafi verið vel unnið á sínum tíma
„Við höfum enga ákvörðun tekið
um þessar niðurskurðarhugmynd-
ir, hvorki um upphæðir né einstök
mál,“ sagði Geir Haarde fjármála-
ráöherra í gær, aðspurður um
hvað niðurskurðartillögiun liði.
„Við teljum nauðsynlegt að bregð-
ast við því aö það hefur orðið nið-
ursveifla 1 tekjunum og ný útgjöld
komið til sem ekki var hægt að sjá
fyrir. Ríkissjóður verður þá að
sýna ábyrgð, sem allir aðrir i þjóð-
félaginu verða að gera við þessar
aðstæöur. Þetta snýst um að hægja
á ákveðnum hlutum, fresta
ákveðnum framkvæmdum eða nýj-
um rekstrarverkefnum - og al-
mennt að reyna að gæta almenns
aðhalds sem auðvitaö á að vera
viövarandi verkefni," sagði ráð-
herra ennfremur.
Hann segir enn ekkert liggja fyrir
um það hvenær niðurskurðarhug-
myndir ríkisfjármálanefndar rík-
isstjómarinnar - sem í eru formenn
og varaformenn stjórnarflokkanna
- muni liggja fyrir. Geir segir ljóst
að tímaramminn sem menn hafi sé
fram á fóstudag í næstu viku þegar
DV-MYND: SBS
Ráöherrann nyröra
Geir Haarde fjármálaráðherra var á Akureyri í gær og opnaði Landskrá
fasteigna. Hér sést hann í húsakynnum Anza-tölvuþjónustunnar, ásamt
Guðna Guðnasyni framkvæmdastjóra og til hægri er Haukur Ingibergsson,
framkvæmdastjóri Fasteignamats ríkisins. Ýmsir gagnrýna að uppbygging
skrárinnar hafi ekki lent undir niðurskurðarhnífnum.
þriðja umræða um fjárlög fari fram.
DV hefur fyrir því heimildir að
hugmyndir um að fresta gildistöku
fæðingarorlofsákvæða séu á undan-
haldi, að ríkisstjórnin sé að falla frá
þeim tillögum. Aðspurður um þá
miklu gagnrýni sem fram hefur
komið á fæðingarorlofsmálið sagði
Geir að öll mál ættu sér stuðnings-
hópa og sjóaðir menn í pólitík
kipptu sér ekki upp við slíkt.
„En fæðingarorlofsmálið var vita-
skuld á sínum tíma mál sem rikis-
stjórnin beitti sér fyrir og hafði
samráð um við ýmsa, eftir að það
var komið á rekspöl innan stjórnar-
innar. Það var búið að vinna málið
vel og um það var góð samstaða,
bæði í þinginu og utan þess. En á
þessari stundu get ég ekki sagt hvað
verður,“ sagði Geir Haarde.
Fjármálaráðherra var ekki tilbú-
inn til að ræða frekar einstakar til-
lögur en sagði að þegar svona færi
af stað, væri í sjálfu sér allt til um-
ræðu. Þingið hafi vald til að breyta
fyrri ákvörðun - hvort sem það
væru lög eða þingsályktanir. Best
væri að tína ekki einstök atriði út
úr pakkanum og taka sérstaklega til
umræðu; ekkert væri klárt fyrr en
allt væri klárt. -sbs
Sjá fréttaskýringu um niður-
skurðinn á bls. 14.
Vindóttur litur virðist vera eftirsóttur:
Trippi hverfa sporlaust
- í Skagafirði - búið að gjörleita þeirra
Tvö trippi og tvö folöld hafa horfið
sporlaust frá Hofsstöðum i Skagafirði
á undanfömum vikum. Þrjú þeirra
eru vindótt en eitt rautt að lit. Gjör-
leitað hefur verið í skurðum og á ná-
grannajörðum, en án árangurs. Gmn-
ur beinist að þarna hafi einhverjir
óprúttnir verið á ferð, því folöldin
gengu enn undir mæðrum sínum og
þær vom á sínum stað. Öll voru
hrossin ómörkuð og ómerkt.
Bjöm Runólfsson, bóndi á Hofs-
stöðum, hefur leitast við að rækta
vindótt hross, enda er liturinn mjög
eftirsóttur, að
hans sögn.
Sænskir hesta-
eigendur höfðu
falast eftir tripp-
unum tveimur,
sem era tveggja
vetra hryssa og
þriggja vetra
foli. Vindótta
folaldið átti að
fara inn í Fljót.
Öll hrossin voru á heimatúni þegar
trippanna tveggja var fyrst saknað.
Vlndur horfinn
Skömmu síðar kvaðst Björn hafa tek-
ið eftir því að folöldin tvö, vindótt
hestfolald og rauð hryssa, voru einnig
horfin. Sveitungar hans hafa lagt
honum lið við leitina en hún hefur
ekki borið árangur.
„Menn telja ekkert vafamál, að þau
hafi verið gripin hér á túninu," sagði
Bjöm, sem kvaðst ekki enn hafa leit-
að til lögreglu. Hann kvaðst lifa i von-
inni um að vissu einhverjir um tripp-
in myndu þeir sjá að sér þannig að
hann fengi þau aftur.
-JSS
Utiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800