Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Page 89
90
ins og kýr, sem komin er niður fyrir 8 kg af mjólk á dag,
þarfnast ekki kjarnfóðurs ef annað fóður er sæmilegt.
4. Margir virðast eiga erfitt með að hætta kjarnfóðurgjöf,
en halda áfram að gefa kúnum kjarnfóðursleikju, 1 kg
á dag, í marga mánuði eftir að nyt þeirra er orðin sáralítil
eða engin. Hef ég oft ekki getað fundið önnur rök fyrir
þessu hátterni en þau, að bóndinn vill ekki setja lágmjólka
eða geldu kýrnar hjá, þegar hinum kúnum er gefið kjarn-
fóður, finnst ekki muna mikið um svona smáslettu, en safn-
ast þegar saman kemur og oft verður þessi kjarnfóðurhali
furðu langur.
Kýr, sem mjólka undir 8 kg á dag, eiga við eðlilegar að-
stæður að komast af án kjarnfóðurs, að minnsta kosti þar
til þær fara að nálgast burð, en réttmætt er að hefja aftur
kjarnfóðurgjöf í hófi, Yz—1 kg á dag, svo sem 2—3 vikum
fyrir burðinn. Æskilegast er þó, að kýrnar séu orðnar geld-
ar áður, því að ella tefur kjarnfóðurgjöfin fyrir því að þær
geldist.
5. Svo virðist, sem það sé alltítt, að kjarnfóður sé gefið í
óhófi á sumrin. Um þetta er þó örðugt að dæma, því enn
tíðkast það víða að beita kúm einvörðungu í úthaga og
svokallaður ræktaður bithagi getur verið mjög misjafn að
gæðum. Þó eru þeir margir, sem vitanlega beita kúm á rækt-
að land, en gefa samtímis óeðlilega mikið kjarnfóður og
það kúm, sem eru ekki í ýkja hárri nyt. Aðrir eru líka til,
þótt undantekning megi kalla, er gefa ekki kjarnfóður á
sumrin, en tekst þó sæmilega að halda nytinni í kúm sínum.
Það skortir sjaldan afsakanir og undanbrögð, þegar bent
er á þessar misfellur. Oft er því haldið fram, að sé kjarn-
fóðrið tekið af kúnum, þá detti úr þeim mjólkin. Eg held
þetta sé trú en engin reynsla og má í því sambandi benda
á, að þeim, sem gera þetta, gefst það vel. Aðrir fullyrða, að
þeir hafi svo lélega haga og hey, að þeir verði að gefa óeðli-
lega mikið kjarnfóður. Þessu er örðugt að andmæla, en sé
svo, virðist vera knýjandi nauðsyn að bæta bæði beit og hey
á þessum stöðum, en hvort tveggja ætti að vera kleift.
Við allnána athugun á þessum málum, hef ég sannfærzt