Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 1
SIGMUND BORGAN:
VALKOSTIR NÚTÍMA LANDBÚNAÐAR
Grein þessi er stytt þýðing á erindi, sem haldið var á fundi í fræðslu-
deild (seksjon X) Norræna búvísindafélagsins (NJF) á Túni í Dan-
mörku um mánaðamótin okt-.—nóv. 1973.
Þau sjónarmið, sem hér eru kynnt, eru eflaust flestum bændum hér á
landi enn nokkuð framandi. Ástæða er þó að ætla, að þau komi í
auknum mæli til umræðu einnig hér, þegar kemur að því, að reynt
verður að ræða stefnumótun í landbúnaði af fullri alvöru.
Höfundur greinarinnar, Sigmund Borgan, er prófessor í landbún-
aðarhagfræði við Landbúnaðarháskólann á Ási í Noregi, og er sérsvið
hans stefnumótun í landbúnaði. Kenningar hans hafa vakið mikla og
vaxandi athygli á Norðurlöndum. Þýð.
I skrifum um leiðbeiningarþjónustu í þágu landbúnaðarins
hafa á síðustu 10—15 árum birst margara greinar, þar sem
fjallað er um á hvern hátt landbúnaðurinn tekur nýjungar
í þjónustu sína og hvernig þær dreifast til bænda.
í mörgum þessara greina eru bændur flokkaðir eftir því,
hve fljótir þeir eru að nýta sér nýja framleiðslutækni og
framleiðsluaðferðir. í eftirfarandi skiptingu er farið eftir
því, hve fljótir þeir eru að nýta sér slíkar nýjungar.
1. Innovators (,,Nýjungamenn“).
2. Early adopters („Hinir framsæknu“).
3. Early majority („Hinir móttækilegu“).
4. Late majority („Hinir steinteknu“).
5. Laggards (,,Drollarar“).
3