Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 102
Tafla 1. Jarðvegssýni 1972 og 1973.
Búnaðar- samband Fjöld sýna Fjöldi bænda Sýni/bónda
1972 1973 1972 1973 1972 1973
S.-Þing 312 285 66 48 4,7 6,0
Eyjafj 572 792 78 70 7,3 11,3
Skagafj 480 385 91 50 5,3 7,7
A.-Hún 380 253 45 29 8,4 8,7
V.-Hún 15 60 2 7 7,5 8,6
legt er að tekin séu fleiri sýni hjá hverjum bónda en raun
varð á árið 1972, en á þessu fékkst nokkur bót seinna árið.
Fæst þannig betra yfirlit yfir ástand túnsins og meiri mögu-
leikar á að gera fullkomna áburðaráætlun fyrir bóndann.
Efnagreining jarðvegssýna frá bændum fór fram bæði ár-
in á tímabilinu frá miðjum jan. og til miðs apríl, með uppi-
haldi þó um þriggja vikna skeið í marz. Niðurstöður voru
sendar út í marz og apríl.
1 töflu 2 er sýnt hve mörg jarðvegssýni hafa verið tekin á
hverju ári hjá hverju búnaðarsambandi frá því Rannsóknar-
stofan hóf starfsemi sína. Samtals er nú, haustið 1973 með-
talið, búið að taka fyrir bændur 18.263 sýni og 2.137 sýni
til ýmissa rannsókna. Ekki eru þó öll rannsóknasýni þarna
meðtalin, en erfitt er að týna þau öll til.
2. Rannsóknir.
Eins og að undanförnu hefur allmikill hluti starfs okkar
verið við ýmsar rannsóknir. Hefur sú vinna einkum verið
að sumrinu, en þó að meira eða minna leyti á öllum tímum
árs. Þær rannsóknir, sem ég hefi unnið að liðin ár, má greina
í þrennt:
a. SAB-rannsókn.
b. Aburðartilraunir.
c. Ymislegt smálegt inni á rannsóknarstofu.
105