Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 31
Endurvöxtur er einnig meiri á tvílitna rýgresinu framan
af vaxtarskeiðinu, en verður síðan meiri á því ferlitna.
Efnainnihald er að meðaltali hærra á tvílitna rýgresinu.
Eftir um 90 daga var Tewera 100% skriðið, Dasas 50% og
Tetila 20% skriðið. Fall í meltanleika var á þá leið að eftir
um 50 daga sprettu þurfti 1,3 kg af heyi í FE af öllum stofn-
unum, en eftir um 110 daga þurfti 1,7 kg af Tewera, 1,5 kg
af Dasas og 1,4 kg af Tetila í FE.
Ef ná á sem mestri uppskeru í FE/ha, virðist mega raða
stofnunum eftir vaxtartíma á þessa leið:
Allt að 75 vaxtardagar, Tewera einslegið.
75—100 vaxtardagar, Dasas einslegið.
Yfir 100 vaxtardagar, Tewera tvíslegið eða
Tetila einslegið.
Með auknum þroska minnkar innihald rýgresisins af prót-
eini, P, Ca, Mg, Mn, Zn, og Cu, en innihald af K breytist
óreglulega og Na vex. Efnainnihald tvílitna ítalsks rýgresis
er að meðaltali hærra en ferlitna rýgresis.
ÞAKKARORÐ
Tilraunir þessar voru framkvæmdar af Tilraunastöðinni á
Akureyri og Bændaskólanum á Hólum í samvinnu við Bún-
aðarsamböndin í Eyjafirði og Skagafirði og Rannsóknarstofu
Norðurlands. Starfsmenn Búnaðarsambandanna aðstoðuðu
við framkvæmd þeirra og Rannsóknarstofa Norðurlands
geðri efnagreiningar á uppskeru. Rannsóknastofnun land-
búnaðarins sá um útreikninga og tölfræðilegt mat á niður-
stöðum. Öllum þessum aðiljum eru hér með færðar þakkir.
33