Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 106
febrúar. Á undanförnum árum hefur smám saman sigið á
þá ógæfuhlið að ritið fór að koma seinna og seinna út. Fór
að vísu í prentun að hluta til a.m.k. í desember eða fyrr, en
bæði vegna anna í prentsmiðju og á þeim tíma einnig vegna
anna hjá okkur á Rannsóknarstofunni, þá vildi útkoma rits-
ins dragast nokkuð fram yfir áramótin og var ritið s. 1. vet-
ur, eins og áður sagði, ekki farið til áskrifenda fyrr en í
febrúar. Nú stóð svo á, að nokkurt efni var til á útmánuð-
um og mér tókst að krækja í meira og ákvað því að reyna
að snúa þróuninni við og koma ritinu út að vorinu í fram-
tíðinni. Þetta tókst vorið 1973 og var 70. árgangur, þ. e. ritið
fyrir 1973, sent út í júnímánuði. Vonum við að svo megi
eftir fara næstu ár. Höfum við þar með allan veturinn að
undirbúa ritið, vinna úr gögnum okkar og rita um athyglis-
verðar niðurstöður, auk þess sem reynt verður að leita fanga
annars staðar um efni.
Nú eru 5 af 6 búnaðarsamböndum hér Norðanlands
áskrifendur að Ársritinu fyrir alla meðlimi sína. Aðeins
Búnaðarsamband Vestur-Húnvetninga er enn ekki með. Vil
ég hér með beina þeim tilmælum til þeirra að athuga gaum-
gæfilega hvort þeir treysti sér ekki til að vera með líka.
-5. Starfsfólk.
Eins og frá var skýrt á síðasta fundi, var starfsfólk haustið
1972: Matthildur Egilsdóttir, sem starfaði til 31. maí 1973,
Guðný Sverrisdóttir, sem hætti vinnu 11. maí 1973 og Derek
Mundell sem hætti 20. sept. s. 1. í september 1973 var enn
á ný ráðið fólk. Eru það þrjár stúlkur.: Edda Hjörleifsdótt-
ir frá Siglufirði hóf vinnu 1. september, hætti í byrjun nóv.
vegna lasleika. Anna Sæmundsdóttir frá Fagrabæ hóf vinnu
10. september og vann hálfan daginn þar til í nóv. að hún
vann fullan vinnudag, og Aðalheiður Jóhannsdóttir frá
Grenivík hóf starf 17. september. Anna og Aðalheiður hættu
störfum 31. maí 1974. Við Þórarinn höfum báðir verið í
fullri vinnu allt árið. Öllu starfsfólki vil ég þakka fyrir
ánægjulega samvinnu og gott starf fyrir stofuna.
109