Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 10
slíkri landbúnaðarstefnumörkun sé auðvelt að koma í fram-
kvæmd? Nei, það gerum við ekki. Aftur á móti er tíðarand-
inn orðinn slíkur, að unnt er, bæði meðal bænda, forystu-
manna þeirra og í stjórnarmiðstöðvum landbúnaðarins, að
draga í efa þörf á vélvæðingu og iðnvæðingu í landbúnaði,
án þess að vera álitinn geðbilaður. Fyrir nokkru áttu þeir á
hættu að verða sakaðir um að vinna gegn hag bænda og
hinna dreifðu byggða, ef þeir sögðu eitthvað, sem túlka
mátti sem efasemdir við að tekjulegur og þjóðhagslegur
hagur væri af sífellt aukinni iðnvæðingu í landbúnaði.
Ástæða þess, að þetta er ekki lengur bannfært, held ég sé
sú, að þróunin er á góðri leið með að eyðileggja framfærslu-
möguleika fjölskyldubúanna í ýmsum greinum landbúnað-
arins. Hún hefur gengið svo langt t.d. í framleiðslu svína-
kjöts, eggja og kjúklinga, að alla framleiðslu til þarfa þjóð-
arinnar má auðveldlega fá á örfáum iðnvæddum búum.
Ef við viljum ekki horfast í augu við hið neikvæða sam-
hengi milli aukinnar tækni- og skynvæðingar annars vegar
og annarra markmiða í landbúnaðarstefnumótun, sem ég
hefi nefnt hins vegar, en þess í stað stuðla áfram að því að
iðnvæðingin gangi sinn gang, held ég að a.m.k. norskur
landbúnaður lendi innan skamms í kreppu, sem honum
kann að reynast erfitt að komast úr. Það virkar því á mig
sem beðið sé um hjálp til að fresta um skamma stund skip-
broti atvinnuvegarins að ræða um hvaða nýja vinnustaði
það fólk á kost á, sem ekki finnur sér vinnu lengur í land-
búnaði og iðnvæðingin ýtir út. Slíkar aðgerðir eyða ekki
þeim orsökum, sem gera lífið stöðugt erfiðara fyrir fleiri og
fleiri bændur og byggðarlög.
Hér hef ég fjallað um hvernig við verðum að sjá tækni-
þróun landbúnaðarins í samhengi við önnur þjóðfélagshlut-
verk hans í stað þess að láta landbúnaðarstefnuna einhliða
stjórnast af skammtíma rekstrarsjónarmiðum. Eg vona, að
mér hafi að minnsta kosti tekist að gera það ljóst, að til að
ná markmiðum, sem tengd eru langtíma auðlindavarðveislu,
búsetu og langtíma öryggi í matvælaframleiðslu verðum
við að beita öðrum hjálpartækjum í stefnumörkun land-
12