Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1974, Blaðsíða 105
Ræktunarfélags Norðurlands. Á liðnu voru urðu svo funda-
höld með meira móti. Fór ég á búnaðarfélagsfund í Lýt-
ingsstaða-, Seylu-, Staðar-, Viðvíkur- og Hofshreppi í Skaga-
firði. I Suður-Þingeyjarsýslu voru haldnir sérstakir fræðslu-
fundir, sem ráðunautar búnaðarsambandsins skipulögðu.
Var ég þar á fundum í Mývatnssveit, Reykjadal, Reykja-
hverfi, Bárðardal, Hálshreppi, Tjörnesi og Ljósavatns-
hreppi. í Norður-Þingeyjarsýslu var ég einnig á þrem
fræðslufundum; Skúlagarði í Kelduhverfi, á Kópaskeri og
á Þórshöfn. Á öllum þessum fundum ræddi ég um áburðar-
notkun, áhrif sláttutíma hinna ýmsu grastegunda á upp-
skeru og gæði og ýmislegt fleira er á góma bar.
Sumarið 1973 gekkst Ræktunarfélagið fyrir fundi á Hól-
um í Hjaltadal, þar sem til var boðið öllum ráðunautum á
Norður- og Austurlandi, auk fulltrúa frá BI, Rala og bún-
aðarskólunum. Mættu á þann fund flestir ráðunautar boð-
aðir, Sturla Friðriksson og Gunnar Olafsson frá Rala. Eng-
inn fulltrúi gat mætt frá BI en frá Hvanneyri var Magnús
Jónsson skólastjóri og Jón Snæbjörnsson og frá Hólum
skólastjóri Haraldur Árnason og Sigtryggur Björnsson. Á
þessum fundi var rætt um hvernig mætti sem bezt nýta þá
efnagreiningarþjónustu, sem Ræktunarfélag Norðurlands
getur veitt, til leiðbeininga fyrir bændur, bæði hvað varðar
áburðarnotkun og fóðrun. Ræktunarfélag Norðurlands hef-
ur undanfarin sumur boðað til slíkra funda og teljum við
að þeir hafi verið mjög árangursríkir í þá átt að móta starfs-
hætti við sýnatöku og matreiðslu niðurstaðna bæði frá okk-
ur á rannsóknarstofunni til ráðunautanna og frá ráðunaut-
unum til bænda. Þó Rannsóknarstofan hafi nú starfað um
árabil, er enn í aðlögun sá háttur sem á hefur verið hafður
við að dreifa leiðbeiningum útfrá efnagreiningarniðurstöð-
um til bænda.
4. Ársritið.
Frá því aðalfundur var hér síðast hafa komið út tveir ár-
gangar af Ársritinu. Rit fyrir árið 1972, 69. árgangur var
prentaður í janúar 1973 og var ritið komið til kaupenda í
108