Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Side 57
SIGMUND BORGAN:
VERÐUR LANDBÚNAÐUR
FRAMTÍÐARINNAR
BÚSKAPUR EÐA IÐNAÐUR?*
Frá fornu fari er venja að tala um þrjá framleiðsluþætti:
Jörð, vinnu og fjármagn. Við framleiðslu tvinnast þessir
þrír þættir meira eða minna saman. Jcirðin leggur til hrá-
efnið, en vinna handar og hugar er að skipuleggja framleiðsl-
una og breyta hráefninu í vöru, sem fullnægt getur hinum
margvíslegu þörfum mannsskepnunnar. Þessir tveir þættir,
jörð og vinna, duga þó skammt. Einnig er þörf fyrir vmiss
konar verkfæri og áhöld, svo sem vélar, skip og hús, og þetta
nefndu hagfræðingar fyrri tíma fjármagn. Á síðustu árum
er stundum talað um auðlindir í stað framleiðsluþátta, en
skiptingin í þessa þrjá hópa á jafn mikinn rétt á sér og áður.
Nú er talað um náttúruauðlindir í staðinn fyrir jörð, mann-
auð í stað vinnu og tæknibúnað í stað fjármagns.
í framleiðslunni er ákveðið samband milli þessara þriggja
framleiðsluþátta, náttúruauðlinda, mannauðs og tæknibún-
aðar, sem mönnum er nauðsynlegt að þekkja. í fyrsta lagi
er skýrt samband á milli tæknibúnaðar og mannauðs. Því
er þannig farið að því meiri sem tæknivæðingin verður, þ. e.
* Fremtidsjordbruket — Skal det bli bygdenæring eller industri? Naturen
nr. 6 1975.
59