Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Side 87
um rannsóknina á Norður- og Austurlandi en Sveinn á Suð-
ur- og Vesturlandi. Alls byrjaði rannsókn þessi á u.þ.b. 30
bæjum, 12 á Norðurlandi, 6 á Austurlandi og einum 10 bæj-
um á Suður- og Vesturlandi. Uppgjöri er ekki lokið, en reynt
verður að ljúka því í tíma fyrir fengitíð í haust.
Þá er í gangi smáathugun á áhrifum selens á vöxt og þrif
kálfa í Baldursheimi, Arnarneshreppi. Haustið 1975 hófst
rannsókn að Hvammi í Grýtubakkahreppi á áhrifum þess
að gefa gemlingum selenköggla. I ráði er að hefja rannsókn
á notagildi þessara köggla gegn selenskorti í sauðfé nú í
haust í samráði við Tilraunastöðina að Keldum og Birni
Bjarnason dýralækni á Höfn í Hornafirði.
Þemba og aðrir meltingarkvillar hafa gert vart við sig í
kúm, einkum síðan fiskimjöl, og þar með fita og ýmis snefil-
efni, hvarf úr fóðurblöndum ásamt með auknu bygginni-
haldi, einkum völsuðu byggi. Fyrir frumkvæði Ara Teits-
sonar frá Brún os; forsön «u hans og annarra ráðunauta á
Norðurlandi, hafa lökustu blöndurnar í þessu tilliti verið
lagfærðar, þannig að nú innihalda allar blöndur á markaðn-
um um eða undir 50% bygg og a.m.k. 4% feiti. Þótt enn
skorti á fiskimjölið eru menn yfirleitt ánægðir með þessa
breytingu, þótt hafa verði í huga að bætt fóðurblanda sér
á parti leysir engan vanda, sé fóðruninni ábótavant að öðru
leyti, að ekki sé minnst á mikilvægi þess að hafa gott hey-
fóður.
Ásamt selenrannsóknunum hefur lang mestur tími farið
í rannsókn á heilsufari kúa í Eyjafirði, einkum með tilliti
til frjósemi og súrdoða. Vantar nú lítið á að fullnaðarupp-
gjör þeirrar rannsóknar liggi fyrir. Þótt ekki hafi verið ætl-
unin að greina frá neinum niðurstöðum hér sakar ekki að
geta höfuðniðurstöðu heilsufarsrannsóknarinnar: Frumskil-
yrði til bættrar frjósemi er að neyta allra ráða til að fóðra
hvorki of né van og sérstaklega ekki á þeim tíma þegar
kýrnar eiga að fá. Höfuðsúrdoðavaldurinn er undirfóðrun
í orku fljótlega eftir burðinn. Þeir sem ná að búa kýr sínar
vel undir mjaltaskeiðið, þ.e. fóðra rétt í geldstöðunni, verða
yfirleitt minnst varir við ófrjósemi og súrdoða, einkum hafi
89