Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Síða 120

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Síða 120
120 BALDUR ANDRÉSSON Ég býst við, að mörgum muni þykja það merkilegt, að öll sönglög Sveinbjarnar fram að finnntugsaldri eru sarnin við útlenzka texta, að undanteknum þjóðsöngnum. En það mun þó engu síður vekja furðu margra, að allar tónsmíðar hans frá þessum tíma eru enn í dag, að heita má, ókunnar almenningi á Islandi. Það mun hafa verið um og upp úr aldamótunum, að Sveinbjörn fór að leggja rækt við kvæði eftir íslenzku skáldin. Fram til þess tíma hafði hann ekki lifað í tengslum við ætt- jörðina, en úr því fóru Islendingar á ferðurn sínum um Leith að leggja leið sína á heim- ili hans, og hafa sumir þeirra sjálfsagt hvatt hann til að semja lög við íslenzk kvæði. Ef til vill hefir það meðfram ráðið nokkru um, að hann hafði valið ensk kvæði, að honum hefir þótt það vænlegra til sigurs. Upp úr aldamótunum urðu lögin við íslenzku kvæðin fljótt alkunn hér á landi, eins og „Vetur“, „Sverrir konungur“ o. fl. Ferðalangurinn. sem ég minntist á hér að framan, gat þess, að þjóðsöngurinn einn mundi nægja til að halda nafni hans uppi með þjóðinni. Um það efast enginn. íslendingar hafa litið á Sveinbjörn sem öndvegistónskáld. Þjóðsöngurinn einn nægir ekki til þess að skipa hon- um þann sess í vitund þjóðarinnar. Það þarf meira til þess. Þjóðsöngur Dana: „Det er et yndigt Land,“ er eftir Hans Ernst Kröyer (1798—1879), og ættjarðarsöngurinn „Danmarks dejligstVang ogVænge“er eftirPoul Edvard Rasmussen (1776—1860),eina sönglagið, sem þessi sérvitringur samdi um ævina. (Hann fyrirfór sér af lífsleiða eftir dáðlaust líf.) Því fer fjarri. að þessir menn séu taldir í fremstu röð danskra tónskálda. Síður en svo. — Tónskáldsfrægð Sveinbjarnar hér á landi byggist auðvitað á þeim tón- smíðum eftir hann, sem þjóðin þekkir, en það eru fyrst og fremst sönglögin, sem hann samdi við íslenzk kvæði, og svo þau sönglög við enska texta, sem snarað hefir verið á íslenzka tungu, eins og t. d. „Huldumál“ (,,Echo“). Það er staðreynd, að þjóðin hefir ekki tileinkað sér enn sönglög hans við enska texta, þótt mörg hafi þau um áratugi verið til sölu hér í bókabúðum, eins og „The Viking’s Grave“, „The Challenge of Thor“ og fleiri, sem höfundurinn taldi með fegurstu sönglögum sínum. En það eru ástæður til allra hluta. Hér er ástæðan sú. að fólkið þarf að skilja kvæðin til að geta notið laganna við þau. Hugsum okkur „Sverri konung“ sunginn fyrir útlendinga, sem ekki þekkja hið áhrifamikla kvæði Gríms Thomsens. Hætt er þá við, að sá söngur mundi ekki snerta strengi í hjörtum þeirra á sama hátt og okkar Islendinga. Hér á eftir þessari grein er prentuð skrá yfir allar tónsmíðar Sveinbjarnar. Af henni má sjá, hversu lítill hluti tón- smíða hans er enn kunnur þjóðinni. Sveinbjörn Sveinbjörnsson tónskáld er fæddur 28. júní 1847 að Nesi við Seltjörn, skammt frá Reykjavík. Faðir hans var Þórður Sveinbjörnsson háyfirdómari í Lands- yfirréttinum. Að loknu háskólaprófi var Þórði veitt Árnessýsla. Hann þótti skörungur mikill. Tólf árum síðar varð hann dómari í Landsyfirréttinum og tveim árum síðar varð hann háyfirdómari. Hann var konungkjörinn þingmaður á fyrsta þingi hins endurreista Alþingis og forseti þess. Honum var boðin stiftamtmannsstaðan, sem þá var mesta virð- ingarstaða hér á landi, en skoraðist undan að taka hana. Þórður var tvíkvæntur. Síðari kona hans, móðir Sveinbjarnar tónskálds, var Kirstín,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.