Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 128

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1955, Page 128
128 BALDUR ANDRÉSSON margt heldra fólk Kaupmannahafnar. Blöðin létu vel af samsöngnum, en söngdómar- arnir bjuggust þó við að heyra þar aðra tóna, af því að höfundurinn var íslenzkur. Þau bjuggust við einhverju tröllauknu og hrikalegu, en sögðu að allt hefði verið blítt og þýtt og því fullt af sólskini. En mjög vel hafi söngnum verið tekið og Sveinbirni þakkað með dynjandi lófaklappi. Eg hefi séð söngdóma í fimm blöðum Kaupmannahafnar og eru þeir allir á einn veg um tónskáldið. Eg ætla því að ræða það nánar. Ollum ber þeim saman um, að Sveinbjörn tilheyri klassisk-rómantísku stefnu nitj- ándu aldarinnar og gæti sérstaklega áhrifa frá Mendelssohn og Gade í tónsmíðum hans. Tvö blöðin taka fram, að hann sé ekki neinn Grieg og að árangurslaust hafi verið hlust- að eftir sérstökum íslenzkum tón í lögunum. Þau taka þetta fram meðfram vegna þess, að blöðin höfðu, áður en samsöngurinn fór fram, flutt vinsamlegar greinar um Svein- björn, skýrt frá æviferli hans, flutt myndir af honum og getið þess, að hann væri „hinn íslenzki Grieg“. En þeim ber saman um, að handbragðið á verkum hans sé listrænt og beri vitni um fágaðan og hámenntaðan listamann. Ég býst við, að þetta séu réttir dómar. Og þó er undirtónn í greinunum, sem ber vott um litla hrifningu. Það þótti ekki leng- ur árið 1909 meðmæli með tónskáldi að vera undir áhrifum Mendelssohns og Gades. Það var næstum því það sama og að segja, að tónskáldið væri andleg eftirlegukind. En þessi stimpill gat þó aldrei orðið Sveinbirni til lasts, því hann er fæddur á fyrri helming nítjándu aldar og var því ekkert eðlilegra, en að tónsmíðar hans bæru þess merki. Ef við lítum á samtíðarmenn hans, sem eru í fremstu röð danskra tónskálda og eru honurn andlega skyldir, eins og Heise og Lange-Miiller, þá eru þeir sama markinu brenndir og Sveinbjörn. Tónsmíðar þeirra eru litaðar af sama tíðarandanum, þ. e. hinni klassisk- rómantísku stefnu nítjándu aldarinnar. Þó eru mörg sönglög þeirra dáð og sungin enn í dag af dönsku þjóðinni og talin með því bezta, sem fram hefir komið í danskri söng- lagagerð. Ég vil svo bæta því við, að ég þekki ekkert sönglag eftir þá, sem tekur fram „Sverri konungi“. Það þarf að leita til enn meiri tónsnillings með Dönum til að finna jafngott verk. Ég legg að líku „Sverri konung“ og „Knud Lavard“ eftir Niels W. Gade, sem var öndvegistónskáld þeirra á nítjándu öld. Danir rita um þessi tónskáld sín með ólíkt meiri virðingu og sanngirni og skoða þau og skilja í ljósi samtíðar sinnar. Poliiiken komst þannig að orði, að Sveinbjörn væri enginn víkingur, sem færi út í heiminn og legði undir sig ný lönd fyrir listina. Þetta er jafnsatt, hvort sem það væri sagt um Sveinbjörn, Heise eða Lange-Miiller. En — blaðið gerir meiri kröfur til íslendinga en sinna manna. Einsöngslögin við íslenzka texta eru ekki mörg. Kunnust eru „Sverrir konungur“. „Vetur“ (Hvar eru fuglar), „Við Valagilsá“, „Sprettur“ og „Huldumál“ (Echo ). Minna kunn hér á landi eru sönglögin við enska texta, eins og „The Challenge of Thor“. ..The Viking’s Grave“ o. fl. A sönglögum hans er enginn viðvaningsbragur. Hann hefir haft næga kunnáttu til að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.