Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 11
LANDSBÓKASAFNIÐ 1968
Mcnntamálaráðhcrra jlytur ávarp.
ákveðiS, að borgin gefi safninu kr. 150.000.00, sem varið skal til að afla Ijósrita
af bréfasöfnum íslendinga í dönskum söfnum.
Jafnframt því, sem ég tilkynni yður, herra landsbókavörður, þessa ákvörðun,
flyt ég safninu, einni elztu og merkustu menningarstofnun í Reykjavík, einlægar
heillaóskir Reykjavíkurborgar.“
Forstöðumenn þjóðbókasafnanna á Norðurlöndum og í Færeyjum hafði verið
boðið til þessarar afmælisstefnu, og gátu tveir þeirra þekkzt boðið, þeir Harald
L. Tveterás frá Osló og Jorma Vallinkoski frá Helsingfors. Fluttu þeir báðir kveöjur
og færðu safninu gjafir, er skýrt verður frá síöar í þessu yfirliti.
Háskóli íslands sendi blómakörfu, og fylgdi henni bréf frá Ármanni Snævarr
háskólarektor og Birni Sigfússyni háskólabókaverði. Blómakörfur bárust einnig
frá Bókasafni Hafnarfjarðar, ásamt bréfi frá Onnu Guðmundsdóttur bókaverði, og
frá Borgarbókasafni Reykjavíkur. Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar sendi blóm,
ennfremur Statsbiblioteket í Árósum.
Eftirtaldir einstaklingar (auk forseta íslands, sem áður var getið), stofnanir og
félög sendu Landsbókasafni heillaskeyti eða bréf: Bjarni Vilhjálmsson skj alavörður,
Bjarnveig og Snorri Sigfússon, Hafliði Helgason prentsmiðjustjóri, Þórir Kr. Þórð-
arson prófessor, dr. Richard Beck, Amtsbókasafnið á Akureyri, Bókasafn Kópavogs,
Bókasafn Manitobaháskóla í Winnipeg, Bókasafn Vestmannaeyja, Bæjar- og héraðs-