Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1969, Blaðsíða 16
16
LANDSBÓKASAFNIÐ 1968
skáldi átt handritið, og hefur hann skrifað þrjár lofvísur og nafn sitt aftan á titilblaðið,
en Níels hafði miklar mætur á rímunum (sjá: Menn og minjar V, bls. 134 og 148, en
þar eru þessar vísur prentaðar).“
GJÖF VÖLUNDAR Trésmíðafélagið Völundur annaðist í öndverðu smíði Safnahúss-
ins, bæði tré- og steinsmíði. I minningu þess létu núverandi for-
ráðamenn Völundar, þeir hræður Sveinn, Haraldur og Leifur Sveinssynir, smíða nýjar
og vandaðar innri hurðir í forstofu og gáfu þær safninu í afmælisgjöf.
MINNINGARGJÖF í fyrirlestri mínum á afmæli safnsins sagði ég m. a.: Eins og
UM CARL mönnum er kunnugt, eru Danir tun þessar mundir að efla ungan
CHRISTIAN RAFN háskóla í Odense á Fjóni. Fyrir því hefur oss hugkvæmzt og það
verið ákveðið, að Landsbókasafn íslands færi í tilefni 150 ára
afmælis síns Háskólabókasafninu í Odense myndarlegt safn íslenzkra rita frá 19. og
20. öld, alls á 10. hundrað binda, að gjöf til minningar um Carl Christian Rafn, er
fæddur var á Fjóni, frumkvæði hans að stofnun Stiftisbókasafns Islands árið 1818 og
óbrigðulan stuðning við það, allt þar til er hann lézt 1864.
A sama hátt og Carl Christian Rafn safnaði á fyrri öld fé og bókum og sendi Stiftis-
bókasafni íslands að gjöf, hafa nú nær 30 einstaklingar gefið Landsbókasafninu fé,
er það hefur síðan varið til kaupa á ritmn í umrædda hókagjöf, en þau hefur safnið
að meiri hluta fengið frá íslenzkum bókaútgefendum með ríflegum afslætti. -
Þeir einstaklingar og útgáfufyrirtæki, er studdu Landsbókasafnið í þessu skyni, eru:
Aðalsteinn Jóhannsson tæknifræðingur, Baldur Möller ráðuneytisstjóri, Benedikt B.
Sigurðsson verkfræðingur, Birgir Einarsson lyfsali, Birgir Kjaran alþingismaður, Ein-
ar B. Guðmundsson hrl., Einar Magnússon rektor, Eirikur Einarsson arkitekt, Emil
Jónsson utanríkisráðherra, Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður, Finnur Sig-
mundsson, fyrrv. landsbókavörður, Gísli Halldórsson arkitekt, Guðmundur Arnlaugs-
son rektor, Gunnar Eggertsson stórkaupmaður, Gunnar Thoroddsen ambassador, Hilm-
ar Fenger forstjóri, Ingimar Brynjólfsson stórkaupmaður, Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri, Klemenz Tryggvason hagstofustj óri, Loftur Bjarnason útgerðarmaður,
Ludvig Storr stórkaupmaður, Magnús J. Brynjólfsson stórkaupmaður, Oddur Ólafsson
yfirlæknir, Ólafur Pálmason bókavörður, Óttarr Möller forstjóri, Sigurður Líndal
hæstaréttarritari, Stefán Jóhann Stefánsson, fyrrv. ráðherra, Torfi Hjartarson tollstjóri,
Viggó Maack verkfræðingur.
Almenna bókafélagið, Bókaforlag Odds Björnssonar, Bókaútgáfa Menningarsj óðs
og Þjóðvinafélagsins, Bókaútgáfan Þjóðsaga, Bókfellsútgáfan, Helgafell, Hið íslenzka
biblíufélag, Hið íslenzka bókmenntafélag, Hlaðbúð, Iðunn, Skálholt, ísafoldarprent-
smiðja, Kvöldvökuútgáfan, Leiftur, Mál og menning, Setberg, Skuggsjá, Snæbjörn
Jónsson og Co.
Bókagj öf þessa afhenti ég síðan við hátíðlega athöfn í Háskólabókasafninu í Odense