Frjáls verslun - 01.01.1974, Qupperneq 65
ar aka hjá stöðinni á eigin bif-
reiðum. Opið er virka daga frá
kl. 7 að morgni til miðnættis,
nema laugardaga þá er opið
allan sólarhringinn. Á sunnu-
dögum er opið frá kl. 7 að
morgni til kl. 4 að nóttu.
Nýja Bílstöðin h.f. þjónar
bæði Hafnarfirði og Garðar-
hreppi og hefur hún einn staur
með síma á Ásagarðssvæði í
Garðarhreppi. Allir bílstjórar
stöðvarinnar hafa ennfremur
talstöðvar í bifreiðum sínum.
BIFREIÐASTÖÐ
HAFNARFJARÐAR:
Opið er allan sólarhringinn
hjá Bifreiðastöð Hafnarfjarðar
en stöðin er til húsa aði Reykja-
víkurvegi 58. Símanúmerin eru
51666 og 51667. Bílstjórar á
leigubílastöðinni eru 22 og aka
þeir á eigin bifreiðum. Þjóna
þeir bæði Hafnarfirði og Garð-
arhreppi. Eru bílstjórarnir nær
allir með talstöðvar í bílum
sínum, en einnig er einn staur
með síma í Hafnarfirði.
AKRANES
Esso stöðin: Esso stöðin að
Kirkjubraut 39 á Akranesi
hefur símanúmerin 1718 og
1550. Hjá stöðinni eru starf-
andi 5 leigubílstjórar, sem hafa
akstur að aðalatvinnu, en tveir
stunda leigubílaakstur með
annarri vinnu. Opið er á leigu-
bílastöðinni frá ki. 8 að morgni
til kl. 11.30 alla virka daga,
nema laugardaga, þá er opið
til ki. 2 að nóttu. Á sunnu-
dögum og hátíðisdögum er opið
frá kl. 9-11.30.
AKUREYRI
Bifreiðastöð Oddeyrar: Bif-
reiðastöð Oddeyrar er við
Strandgötu á Akureyri og hef-
ur símanúmerið 22727. 36
leigubílstjórar aka hjá stöðinni
á eigin bifreiðum. Opið er alla
daga vikunnar frá kl. 7.30 að
morgni til kl. 2.30 að nóttu,
nema á laugardögum þá er op-
ið frá kl. 7.30 að morgni til
kl. 3.30 að nóttu. Nær allir
leigubílstjórarnir hafa talstöðv-
ar í bifreiðum sínum.
ÍSAFJÖRÐUR
Fólksbílastöðin hf.: Við Esso-
Nesti við Torfnesveg á ísafirði
er leigubílastöðin Fólksbíla-
stöðin hf. til húsa. Símanúmer
á fólksbílastöðinni er 3418. Op-
ið er frá kl. 8 að morgni til
kl. 11.30 að kveldi allt árið,
og aka um 15 leigubílstjórar
hjá stöðinni. Stundar um helm-
ingur þeirra leigubílaakstur
með annarri vinnu.
KEFLAVÍK
Bifreiðastöð Keflavíkur hf.:
Bifreiðastöð Keflavíkur er til
húsa að Vatnsnesvegi 16 og
hefur símanúmerið 2211. Opið
er allan sólarhringinn allt áriði
um kring. 29 leigubílstjórar
keyra hjá stöðinni á eigin bif-
reiðum. Hafa þeir allir tal-
stöðvar í bifreiðum sínum og
þjóna Keflavík og næsta ná-
grenni, þar á meðal Njarðvík-
um og flugvellinum.
Aðalstöðin hf.: Símanúmeriffi
á Aðalstöðinni hf. í Keflavík
er 1515. Heimilisfangið er
Hafnargata 86. Leigubílastöðin
er opin allan sólarhringinn allt
árið. Bílstjórar, sem aka hjá
stöðinni eru um 40 og hafa
þeir nær allir talstöðvar í bif-
reiðum sínum..
SELFOSS
Bifreiðastöð Selfoss: Bif-
reiðastöð Selfoss hefur aðsetur
sitt að Austurvegi 46 og sím-
inn er 1266. Þrír leigubílstjór-
ar eru starfandi við stöffdna,
sem hafa akstur sem aðalat-
vinnu, en 5 bílstjórar stunda
leigubílaakstur með annarri
vinnu.
Bifreiðastöð Selfoss hefur
opið alla daga vikunnar frá kl.
8 að morgni til kl. 11.30 alll
árið.
í öllum helztu kauptúnum
landsins eru ýmsir einkabíl-
stjórar sem taka að sér leigu-
bílaakstur.
ífirótta-
bbttiö
Eina íþróttablað
landsins.
Fjallar um íþrótti
og útilíf.
Áskriftasímar:
82300 ■ 82302
NATHAN & OLSEN HF.
Eftirlæti
f| allrar fjölskyldunnar
liocoa pnffo
með súkkulaóibragói I UIIU
FV 1 1974
65