Frjáls verslun - 01.12.1976, Blaðsíða 67
Sala á rækjum hefur
aukizt verulega eftir að EBE-
tollar voru lækkaðir
Sagl frá viðskiptum Agnars Samúelssonar sem starfrækir niðurlagningar-
verksmiðju fyrir íslenzkar sjávarvörur ■ Kaupmannahöfn
Innflutningur frá íslandi:
Við Dampfærgevej 3 í Kaupmannahöfn hefur fyrirtækið Geyser
Foods aðstöðu fyrir starfsemi. Eitthvað' hljómar nafnið kunnug-
lega og bendir til skyldleika við „land elds og ísa“ enda kemur
á daginn við nánari athugun að eigandinn er Islendingur, Agnar
Samúelsson, sem hefur stundað niðurlagningu á íslenzkum sjávar-
afurðum um alllangt árabil, fyrst í samvinnu við annan aðila en
sjálfstætt síðan 1965.
Agnar hefur aðstöðu fyrir
vinnslu, kæligeymslur og skrif-
stofur á þessum stað og hjá
honum vinna um 10 manns að
staðaldri og frystigeymslur eru
fyrir 40 tonn af vörum.
í stuttu máli sagt kvaðst
Agnar vera bjartsýnn á að hon-
um tækist að auka sölu á vör-
um sínum á danska markaðin-
um, en það eru einkanlega
rækjur, kavíar og síld, sem allt
er flutt inn frá íslandi. Við
talsverða erfiðleika hefur ver-
ið að etja í þessu sambandi
vegna aðildar Danmerkur að
Efnahagsbandalaginu og tolla
þess á íslenzkar sjávarafurðir
en eftir að samkomulag um
lækkun tolla hjá EBE tók gildi
í sumar hefur samkeppnisað-
staðan batnað mjög mikið.
Agnar nefndi sem dæmi, að
áður en tollalækkunin kom til
framkvæmda hefðu innflytj-
endur í Svíþjóð keypt íslenzka
rækju á 19 krónur danskar
kílóið en hann hefði á sama
tíma þurft að greiða 23,51 kr.
danska á kíló. Þrátt fyrir harða
samkeppni við rækjuinnflytj-
endur, sem verzluðu við Bret-
land eða Noreg og að sjálf-
sögðu danskar rækjuverksmiðj-
ur, tókst Agnari að stofna til
góðra viðskiptasambanda vegna
þess hve gæði íslenzku rækj-
unnar þóttu mikil, þannig að
kaupendur voru tilbúnir að
greiða þennan verðmún út á
þau. Enda þótt EBE tollar hafi
verið lækkaðir er þó enn mik-
ill munur á verði á íslenzkri
rækju og þeirri brezku t. d.
eða 23-24%. Agnar kaupir hér
heima aðallega af tveimur fyr-
irtækjum, íslenzku umboðssöl-
unni og Niðursuðuverksmiðju
Kristjáns Jónssonar. I Dan-
mörku eru það helzt fjögur fyr-
irtæki, sem kaupa af honum,
innkaupastofnanir fyrir stórar
keðjuverzlanir.
20% SÖLUAUKNING EFTIR
TOLLALÆKKUN
Agnar taldi, að söluaukning-
in eftir tollalækkun í sumar
hefði verið um 20%. Tollarnir
hafa verið felldir niður á rækju
og kavíar en voru áður 24% á
kavíar og 8 aurar á hvert kílo
en 16% á rækju og 4 aurar á
hvert kíló. Á sama tíma þurfti
að greiða 5% toll af rækju frá
Noregi, sem þó er utan EBE.
Enn er 8% tollur á sardínum
og kippers frá Islandi og sömu-
leiðis á síld í lokuðum um-
búðum.
HALVKONSERVES OPBEVARES K0LIGT
FREMSTILLET AF FINESTE
ISLANDSKE SILD
*4KKET I
Þannig merkir Geyser Foods umbúðir um niðurlögð síldarflök.
L i
FV 12 1976
67