Frjáls verslun - 01.07.1977, Side 49
í söludeildinni. Sölumenn við símann hafa sýnishorn af vöruframboðinu í hillum fyrir fram-
an sig.
til. Fyrir einu ári keypti Há-
skólinn af okkur tölvu og síðan
kom Vegagerðin og nokkrar
fleiri stofnanir. Iðnfyrirtæki
hafa keypt af okkur tölvur.
Notkun á þessum tækjum er
mikil og ég er sannfærður um
að markaðurinn verður mikill
á komandi árum. Við erum auk
þess með áform uppi um að
setja á stofn tölvumiðstöð og
vinna önnur tæknileg verkefni
á þessu sviði fyrir innlenda að-
ila. Nú er hér t.d. unnið að
gerð hugbúnaðar fyrir tölvu
hjá Landssímanum. Slík verk-
efni eru yfirleitt unnin utan-
lands en í ljós kom að við gát-
um boðið þessa vinnu á mun
lægra verði en þurft hefði að
greiða erlendis.
Því er ekki að leyna, að
samkeppnisaðstaða okkar er
erfið. Við keppum við alþjóð-
legt fyrirtæki, sem ekki þarf
að fara að íslenzkum lögum,
hefur ótakmarkað fjármagn og
borgar ekki aðflutningsgjöld á
sama hátt og innlent fyrir-
tæki yrði að gera.
F.V.: — Hvaða land eigið' þið
helzt viðskipti við?
Jón: — Milli 60 og 70% af
vörum okkar kemur frá Bret-
landi og höfum við umboð fyr-
ir mörg beztu framleiðslufyrir-
tæki í sinni grein. Við höfum
líka náð þeim árangri, sem
þekkist í engu öðru fyrirtæki
utan Bretlands að hér höfum
við selt brezkar vörur fyrir
andvirði meira en eins sterl-
ingspunds á íbúa. Þessi
Ingi Jóns-
son byrjaði
um leið og
Jón og
stjórnar nú
söludeild-
inni.
Bretlandsviðskipti okkar hafa
verið mjög hagstæð og verðið,
sem fengizt hefur í Bretlandi er
mun lægra en fáanlegt er ann-
ars staðar. Það er líka ákaflega
gott að skipta við Breta. Munn-
legt samkomulag er á við skrif-
legan samning.
Við verzlum einnig mikið við
Japan og eigum góð samskipti
við fyrirtæki þar. Þau eru þó öll
miklu formfastari en sámband-
ið við Breta og þar verður hvert
einasta atriði að vera fært nið-
ur á blað.
F.V.: — Hvaða áhrif hafa
landhelgisdeilur haft á þessi
umfangsmikl,u viðskipti ykkar
við Bretland?
Jón: — Sáralítil. Og besta
dæmið um það er að við seld-
um brezk veiðarfæri hér allan
tímann, sem síðustu átökin
stóðu yfir. Það eru gæði brezku
vörunnar, sem hafa ráðið úr-
slitum um þetta.
Hefði aftur á móti verið sett
bann við innflutningi frá Bret-
landi er ekki þar með sagt, að
þessi brezku vörumerki hefðu
horfið af íslenzkum markaði,
því að undir þeim er framleitt
víða um lönd eins og t.d. í Hol-
landi, Danmörku og Þýzkalandi.
Innflutningur hefði því flutzt
yfir á þessi lönd og breytingin
orðið lítt sem ekkert merkjan-
leg nema að því leyti að við
hefðum orðið að greiða talsvert
hærra verð fyrir vörur frá
þessum löndum.
F.V.: — Talsverðar umræður
urðu í vetur og vor ,um verð-
lagningu á innfluttum neyzlu-
vörum vegna samanburðar, sem
gerður var á verði út úr búð í
Bretlandi og á sömu vörum hér-
lendis. Er komið barna við við-
kvæman blett á íslenzkri heild-
FV 7 1977
49