Frjáls verslun - 01.09.1978, Side 16
Nokkur atriói
umhugsunar
fyrir þá sem auglýsa
á Noróurlandi
Akureyri 19. júlí 1978
Til þeirra sem ætla
aö auglýsa á Norðurlandi
Þegar auglýsandi ætlar að auglýsa
vöru sína, þá er það auðvitað hans
hagur að auglýsingin fari sem viðast,
með öðrum orðum, að uþþlag blaðs-
ins sem hann auglýsir í sé mikið og
komi fyrir margra augu.
Því miður er það svo á íslandi, að
upplagstölur blaðanna liggja yfirleitt
ekki á lausu, hvað þá upplýsingar um
útbreiðslu í einstökum landsfjórð-
ungum. Þetta gerir auglýsendum
óhægt um vik að gera sér grein fyrir
hvaða blað þjónar best markmiðum
þeirra. En auglýsendur vita sem er,
að landinu er skipt niður í afmörk-
uð markaðssvæði. Þannig er mjög
heppilegt fyrir þann sem ætlar að
auglýsa vöru eða þjónustu í einstök-
um landsfjórðungi að nota það blað
sem hefur mesta útbreiðslu á við-
komandi svæði.
Norðurland er annað stærsta
markaðssvæði landsins, með Akur-
eyri sem miðdepil. Vaxandi iðnaður
og traust atvinnulif gerir það að verk-
um, að á Norðurlandi er góður og
stöðugur markaður. Þess vegna sjá
auglýsendur sér hag af því að auglýsa
í norðlensku blaði.
Dagur hefur ætíð haldið því fram að
hann væri útbreiddastur allra blaða á
Norðurlandi og til þess að geta stutt
þá fullyrðingu rökum könnuðum við
málið, hringdum til allra blaðanna
sem Dagur á í samkeppni við og báð-
um þau aó gefa okkur upp útbreiðslu
á Norðurlandi. Aðeins Þjóðviljinn
treysti sér ekki til að gefa okkur upp
tölur.
Af þessu má vera Ijóst að viljir þú
auglýsa á Norðurlandi og ná umtals-
verðum árangri þá er ekki nema eitt
blað sem kemur til gréina, og það er
Dagur.
Þetta er umhugsunarefni fyrir þá
sem þurfa að auglýsa á Norðurlandi.
Niðurstaðan varð þessi:
Upplag
Tíminn ..................4000
Morgunblaöið ........... 2900
Vísir ................. 2500
Dagblaðið .............. 2500
Norðurland ..............1700
íslendingur ............3000
Dagur ................. 5500
Með bestu kveðju,
Jóhann Karl Sigurðsson,
auglýsingastjóri.
DAGUR
Símar: 24166 23207 24167
Pósthólf 58 602 Akureyri
16