Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 81
Þjónustan verður
að vera betri
Kóki hefur hltt naglann á höfuðið í tízkuverzlun á Akureyri.
„Viðtai? Ég hef varla tíma til
þess, enda er ég ekki neinn
kaupmaður í dag, ég er trésmiður,
pípulagningamaður, eða hvað þú
vilt hafa það,“ sagði Kóki í Sesar,
sem á skírnarvottorðinu sínu er
nefndur Herbert Sveinn, þegar við
læddum okkur inn fyrir dyrnar á
húsnæðinu, þar sem hann var að
innrétta fyrir verzlun sína. „Ef þið
endilega viljið, þá get ég náttúru-
lega spjallað eitthvað við ykkur á
meðan ég er að þessu (hann var
að negla fyrir glugga). Þú getur
kannski skrifað þarna á vélinni
(trésmíðavél á miðju gólfinu)."
Herbert hefur til þessa rekið
tvær verzlanir, sína á hvorum
staðnum, en hefur nú keypt húsið
Hamborg, í Hafnarstræti á Akur-
eyri og þegar þetta viðtal birtist
verða verzlanir hans komnar þar
undir eitt þak. Húsið er gamalt og
þarfnaðist því nokkuð viðamikilla
viógerða. Þegar viötalið var tekið
var ótrúlegt, aö þarna yrði komin
verzlun, með öllu tilheyrandi, að-
eins viku síðar, en hið ótrúlega
hefur gerzt.
Alhliða tízkuvara
,,Við ætlum að innrétta hér allt í
gömlum stíl, sem hæfir húsinu,"
sagði Herbert, „með panelum og
öllu því sem tilheyrir. Það þýðir
ekki annað en að gera þetta al-
mennilega, úr því verið er að því á
annaö borð. Hér ætlum við að
reyna að bjóöa Akureyringum upp
á verulega vandaða verzlun, með
vandaða vöru, enda er staðreynd-
in sú að ekki þýðir annað. örar
samgöngur við Reykjavík gera það
að verkum að hér má ekkert vera
síðra, verður raunar helzt að vera
ívið betra, ef við eigum að standast
samkeppnina.
Það er nokkuö útbreiddur mis-
skilningur að hér verzlum við að-
eins með táningafatnað. Þvert á
móti erum við hér með fatnað
handa öllum karlmönnum, kjóla og
kápur á alla aldursflokka kvenna
og yfirleitt með alhliða og vandaða
tízkuvöru.
Það kostar auðvitað sitt að
fylgjast nógu vel með hér. Til
dæmis hef ég í átta ár farið einu
sinni í viku suöur til Reykjavíkur til
þess að gera innkaup. Þannig er
ég alltaf með nýja vöru, enda þýðir
ekkert annaö. Það er auðvitað dýrt
fyrir verzlun af þessu tagi, einkum
þar sem ég hef ekki tekið þennan
ferða- og flutningskostnað sér-
staklega inn í endanlegt verð vör-
unnar, en það hefur líka sína kosti
aó fylgjast svona vel með línunni.“
Flytur tvær verzlanir saman
„Nú er ég að flytja tvær verzlanir
saman og auðvitað er það alltaf
álitamál hvort ég missi einhver
viðskipti við þá sameiningu. Ég
held þó að fólk komi til með að
kunna að meta það, þegar fram
líöa stundir, því það hefur oft
komið fyrir að við höfum þurft að
senda kúnnana milli búóanna, því
þær verzla ekki með sömu vöru.
Þetta kemur í Ijós.
Annars er ekkert um þetta að
segja annað en að það er ákaflega
erfitt að reka verzlun í dag. Það
vita allir hvað fjármagn kostar og
hversu þröngur álagningarstakkur
okkur er sniðinn. Það er erfitt að
viðhalda sömu þjónustu og verið
hefur, en það verður að takast.
Þjónustan er sá þáttur verzlunar-
innar sem ekki má minnka. Ég sé
fram á að eina svarið sem við eig-
um við vaxandi erfiðleikum er að
skipuleggja betur og það er ég nú
að reyna með þessari samein-
ingu."
81