Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 88
Auglýsing.
„Reynum að gera karlmönnum á
öllum aldri til hæfis“
Tískan í dag er „avant garde". Fötin
eru frjálslegri og yfirleitt þægilegri, en
þessi stíll hentar ef til vill ekki öllum.
„Við reynum að þræða meðalveginn
þannig að karlmenn á öllum aldri geti
vel við unað," sagði Ragnar Guð-
mundsson hjá Andersen & Lauth í
stuttu spjalli við Frjálsa verzlun.
Línan hjá Andersen & Lauth er að
mestu leyti í takt við Vestur-Evrópu.
Mikið er um einhneppta jakka, en vin-
sældir tvíhnepptra virðast þó vera að
aukast, sérstaklega hefur borið mikið
á þannig „blazer" jökkum, sem seljast
vel í dag. „Við notum aðallega efni frá
Englandi og Hollandi. Við leggjum
áherslu á gæði efnanna og höfum
reynt að nýta okkur allar þær framfarir
í tilleggi til fata, sem eru ekki síður
áríðandi til að fá fallega og góða flík.
Höfum við fengið leiðbeiningar þar að
lútandi frá erlendum fyrirtækjum.
Allur tllkostnaður hefur aukist gífur-
lega, og því stöndum við verr að vígi
gagnvart innflutningi en áður. Þessi
iðngrein er ekki vernduð sem skyldi og
nýtur ekki réttlætis til jafns við aðrar
iðngreinar."
Andersen & Lauth er eitt af fáum
fyrirtækjum með fjölbreytt úrval af
höttum, enda virðist höfuðfatnaður
aftur í tísku eftir nokkra lægð. Þá eru
peysur og skyrtur í fjölbreyttu úrvali í
báðum verslunum A & L á Laugavegi
39 og Vesturgötu 17.
„Islenskir karlmenn eru kröfuharðir
á fatnað og vilja vönduð föt. Við reyn-
um að gera okkar viðskiptavinum til
hæfis, og tel ég að okkur hafi tekist
það. Þetta er gamalt og gróið fyrirtæki
og viðskiptavinum fjölgar stöðugt,"
sagði Ragnar.
Mr. Roman
mæ Finnsk
wíi) úrvalsföt
SL
ERRA
GARDURINN
AQALSTRÆTI9
REYKdAVÍK-
SÍMI12234
88