Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 25
götur. Skriöuföll og grjóthrun úr
fjöllum gæti valdið miklum usla,
einnig fljóöbylgjur í ám og vötnum.
Verði jarðskjálfti samkvæmt
flokki XI, en þaö er sambærilegt
við skjálftann sem átti upptök sín í
nágrenni Hestfjalls 1896, verða
lírif hans ,,mjög eyöandi", sam-
kvæmt Mercalli-kvarðanum.
Hugsanleg áhrif yrðu þau að öll
hlaðin steinhús hryndu til grunna
en einstaka vel byggt timburhús
stæöi lítið skemmt. Best byggðu
brýr stórskemmast, stöplar brotna
sundur og stíflugarðar í ám og
vötnum mundu springa og stór-
skemmast. Jaröleiðslur myndu
eyðileggjast og gera mætti ráð
fyrir verulegum breytingum á yfir-
borði jarðar ásamt skriðuföllum og
grjóthruni úr fjöllum.
í skýrslu starfshópsins er talið
ósennilegt að raforkuflutningslín-
urnar frá Búrfelli myndi sleppa ó-
skemmdar ef til þessara hamfara
kæmi og því rétt að gera ráð fyrir
því að bregðast þurfi viö bilunum
sem tæki nokkra daga að lagfæra.
Þá telur hópurinn aö óvíst sé um
öryggi Búrfellsvirkjunar, en hún
liggur í jaðri áhrifasvæðis X og
Sogsvirkjanir við norðurjaðar
svæöis nr. IX.
Ekki er ráð nema í tíma sé tekið
Starfshópurinn á vegum Al-
mannavarna ríkisins leggur til að
eftirfarandi atriði yröu könnuö á
næstunni:
— Hver er hugsanleg mann-
tjóns- og slysahætta af völdum
jarðskjálfta á Suðurlandi og á
hvern hátt má draga úr henni?
— Hver er staða landbúnaðarins
gagnvart skjálftum, hvaða áfollum
yrði hann fyrir og hvernig mætti
draga úr áhrifum þeirra?
— Hvaða áhrif hefðu jarðskjálftar
á útgerð, verslun og þjónustu-
greinar á Suðurlandi?
— Hversu víðtækt gæti tjón
orðið á orkuverum, flutningslínum,
tengivirkjum og dreifikerfi raf-
magns vegna jarðskjálfta. Hverjar
yrðu afleiðingar slíkra áfalla, og
hve langan tíma tæki að gera við
slíkar skemmdir?
— Hverjar gætu afleiðingar
jarðskjálftanna orðið fyrir stíflu-
mannvirki og hvaöa hættu geta
stíflurof orsakað?
— Hver er styrkur símakerfisins
gagnvart jarðskjálftum?
Skipuleg áætlun um björgunar-
og hjálparstarf
Starfshópurinn leggur sérstaka
áherslu á að skipulögð verði viö-
brögð og hjálparstarf vegna jarö-
skjálfta á Suðurlandi sérstaklega,
og fellt að Almannavarnaskipulagi
Árnes- og Rangárvallasýslna, sem
þegar er til fullunnið. Er lagt til að
þetta skipulagsstarf verði unniö af
Almannavörnum ríkisins í samráði
við stjórnir Almannavarna í héruö-
um og aðra þá aöila sem hlut eiga
að máli.
í þessum vinnuhópi störfuöu
Guðjón Petersen (form.), Óttar B
Halldórsson, Sveinbjörn Björns-
son, Sigurður Thoroddsen og
Guömundur Gunnarsson.
HUGSANLEG ÁHRII
JAROSK JALFT A Á SUOUR
LANDI SAMKV4M
MERCALll KVAROA
BYGGT Á HEIMIl DUM FRÁ 1784, 1896 OG 1912
25