Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 19
ingarhöftin og fjármagnsskömmt-
unin innanlands bjóða heldur ekki
upp á, að okkur nýtist magnaf-
sláttur, sem oft er á bilinu 5— 25%.
Þá má nefna pökkunarkostnað,
sem getur numið allt aö 20% af
verðinu, t. d. á hreinlaetistækjum.
Það er á allra vitorði, að pökkun-
arkostnaður er meiri á vörum til
íslands en annarra Norðurlanda,
sem iðulega eru fluttar heim í hlað
meö bílum eða járnbrautum. Þessi
atriöi og mörg önnur, sem væri of
langt að telja upp, geta haft veru-
leg áhrif á innkaupsverð til lands-
ins og gert það hærra en til ann-
arra landa."
F.V.: — Hver er þáttur um-
boðslauna í innkaupsverðinu?
„Umboðslaun eru mjög mis-
munandi eftir vörutegundum.
Vegna álagningarhaftanna erum
við í þeirri sérstöðu, að innkaups-
verð vara er ekki alltaf lækkað um
umboðslaunin, heldur eru þau og
ýmsir mögulegir afslættir teknir
heim sem tekjur til að standa undir
dreifingarkostnaði innanlands. Á
síðustu árum hafa þessar tekjur
farið vaxandi og gjaldeyrisskil
vegna umboöslauna numið um og
yfir 4% af verðmæti innflutnings
frá því að vera um 1.5% 1960.
Þessi þróun er hættuleg, því að
innflytjandi lendir strax í verri
samningsaöstöðu við erlenda
seljandann, þegar þessar tekjur
geta ekki gengið beint til lækkunar
á innkaupsverðinu, heldur er þörf
til að fjármagna innlendan dreif-
ingarkostnað."
F.V.: — Hvernig er hagur
verzlunarinnar um þessar mund-
ir?
„Ég held, að hagur allra, sem
nálægt verzlun koma sé verri en
veriö hefur lengi. Verzlunarálagn-
ing hefur tvívegis verið lækkuð á
árinu, fyrst um 9% í febrúar og
síðan um 10.5% í september.
Þessar lækkanir hafa bæöi bitnað
á kjörum verzlunarfólks og afkomu
verzlunar. Afkoma verzlunar er
verri en verið hefur áður, og afar
slæm þegar litið er til verðbólg-
unnar. Á síðustu 7 árum hefur
verzlunarfólk sífellt verið að drag-
ast aftur úr öðrum í verkalýðs-
hreyfingunni með kjör sín. Þau
12000 manns, sem starfa við
verzlun, eru nú orðin ein lægst
launaða stéttin í landinu, sem
jafnframt vinnur einna lengstan
vinnudag."
Árni var loks spurður að því,
hvort þær umræöur, sem fram
hafa farið í kjölfar könnunar verð-
lagsstjóra yrðu ekki til þess, að
einhverra umbóta mætti vænta í
málefnum verzlunarinnar?
„Það er mín skoðun, að um-
ræður um stööu verzlunarinnar
séu þarfar og endurskoðun á því
verðlagskerfi, sem við búum nú
við, hljóti að verða ein afleiðing
umræðnanna. Það rót, sem grein-
argerð verðlagsstjóra orsakaði í
fyrstu, er nú vonandi að víkja fyrir
málefnalegri umræðu, þar sem
flestum er Ijóst, að þessi könnun
reyndist ekki vera það, sem hún
var látin líta út fyrir að vera.
I 40 ár hefur verzlunin búið við
verðmyndunarhöft og starfsskil-
yrði, sem torvelda innkaup til
landsins, drepa í dróma tilraunir til
hagkvæmni í rekstri fyrirtækja og
skerða kjör verzlunarfólks og af-
komu verzlunar. Það er svo neyt-
andinn — viö öll — sem greiðir
kostnaðinn af þessu fyrirkomulagi
í hærra vöruveröi og verri verzlun-
arþjónustu. Þetta ástand er að
vissu leyti sök verzlunarinnar
sjálfrar. Hún hefur ekki nægilega
rætt málefni sín opinskátt og af
hreinskilni. Ég vil þó vona, að
þessar umræður nú, opni loks
augu bæði almennings og stjórn-
valda fyrir því, að frjáls verðmynd-
un er eina verzlunarfyrirkomulag-
ið, sem samrýmist bæði hags-
munum neytenda og verzlunar."
Verðlagsyfirvöld verða að svara mörgum spurnlngum
Verzlunarráð (slands og aörir f ulltrúar verzlunarinnar hafa að
undanförnu krafist nánari upplýsinga varðandi þá könnun sem
fram fór á vegum verðlagsskrifstofunnar á verði á innfluttum
vörum til íslands. Án þeirra upplýsinga verður ekkert ráðiö um
hve marktækar niðurstöður könnunarinnar geta talist.
Hér fara á eftir nokkrar þeirra spurninga sem verðlagsyfir-
völd munu þurfa að svara áður erv þau geta ætlast til þess að
mark verði tekið á niöurstöðum.
— Eru 31,39 eða fleiri vörutegundir með í könnun verölags-
stjóra?
— Hvaða vörutegundir er um að ræða?
— Er hægt að telja 40 vörutegundir samnefnara allra
neyzluvara sem fluttar eru inn?
— Er pökkunarkostnaður innifalinn í innkaupsverði erlendis?
— Er tekið tillit til staðgreiðsluafsláttar sem erlendir aöilar fá
við innkaup?
— Er tekiö tillit til magnafsláttar sem erlendir aðilar fá en ekki
íslendingar?
— Er það rétt að einungis ein vörutegund frá S(S hafi verið
með í könnuninni?
— Náði þessi könnun til vara sem ríkið kaupir 15— 20% dýr-
ara verði en nágrannaþjóðir, svo sem olíu og benzlns?
— Er það rétt að könnunín hafi sýnt að lægsta innkaupsverð
erlendis var á vörum sem eru með frjálsa álagningu á
íslandi og hvaða ályktanir draga verðlagsyfirvöld af því ef
svo er?
— Er það rétt að Ólafur Jóhannesson hafi krafizt þess að
niðurstöður yrðu reiknaðar út þrátt fyrir að verðlagsstjóra
hafi verið Ijóst að þær gætu ekki veriö marktækar?
— Er það rétt að upphaflega hafi vörutegundir könnunar-
innar verið helmingi fleiri en einungis hluti þeirra hafi verið
nothæfur?
19