Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 82

Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 82
„Gullsmíði er iðn — en einnig listgrein" Verzlunln Skart er snyrtllega innréttuð eins og sjá má. Flosl Jónsson (í miðið) ásamt samstarfsfólki. — segir Flosi Jóns- son í gullsmíðavinnu- stofunni og skart- gripaverzluninni Skart, sem starfað hefur í eitt ár í húsinu að Strandgötu 19 á Ak- ureyri er nú starfrækt skartgripa- verzlun og gullsmíðavinnustofa. Fyrirtækið ber nafnið Skart, var stofnsett á Akureyri fyrir um ári síðan, opnað þann 15. september þess árs, þá í Glerárgötu. Þann 4. ágúst síðastliðinn opnaði verzl- unin svo í nýja húsnæðinu. Blaðamaður Frjálsrar verzlunar náði sambandi við Flosa Jónsson, gullsmið, eiganda og annan af tveim gullsmiðum, sem starfa hjá Skart. Þjóna stóru svæði „Jú, við byrjuðum hérna fyrir um ári síðan og er ekki hægt að segja annað en að þetta virðist ætla aö ganga alveg ágætlega," sagði Flosi. „Viö höfum náttúrulega átt við nokkra byrjunarörðugleika að stríða og það er erfitt að kaupa gamalt hús, eins og þetta hérna, sem ég var að kaupa. Hér er verzl- unin og verkstæðið á neðri hæð- inni, en ég bý á þeirri efri. Hins vegar vantaði þessa þjónustu orð- ið ákaflega mikið hér á Akureyri, þannig að þetta gengur allt. Við þjónum hér mun stærra svæði en bara bænum sjálfum, allt niður á Austfirðina. Við leggjum ákaflega mikla áherzlu á að vera með íslenzka, handunna vöru í verzluninni og meiningin er sú að nota sem mest íslenzkt grjót. Sagað og slípaö býr þaö yfir ótrúlegri litfegurð og er ekki síðra en erlent. Við erum að byggja upp úrval af þessum munum; hringum, menum, arm- böndum, meira að segja eyrna- lokkum." Gullsmíði er líka list „Því er þó ekki að neita, að okk- ur finnst fólk ekki gera nógan greinarmun á handunninni vöru og steyptri. Erlend vara, fjölda- framleidd, er hreint að drepa okk- ur, því framleiðsla á handunnum gripum er mun dýrari. Það hefur ekki heldur tekizt að fá nóg tillit tekið til þessarar íslenzku vöru í verðlagningu. Þegar hugað er að verðlagningu á handunnum munum, verður að taka meö í reikninginn vinnuna, svo og tímann, sem fer í að fæða af sér hugmyndina og fínpússa hana, áður en smíðin sjálf hefst. Gull- smíði er vissulega iðn, en hún getur einnig talizt listgrein, að minnsta kosti ákveðnir þættir hennar. Hins vegar vantar allan skilning á því. Ekki man ég að minnsta kosti til þess að gullsmið- ur hafi verið orðaður við lista- mannalaun. Þó ættu menn eins og Leifur Kaldal, sem enginn neitar að er listamaður, þau vissulega skiliö. Hins vegar hafa gullsmiðir sjálf- ir, í hita peningabaráttunnar, ákaflega margir misst sjónar á listrænu gildi skartgripa. Það er einn og einn sem enn hefur þar rétt hugarfar og reynir þá að vekja þessa grein upp með skapandi framleiðslu." Með Flosa starfar Sveinn Guðnason, gullsmiður. Þeir lærðu saman í Reykjavík, en fluttust til Akureyrar, til að opna þar gull- smíðavinnustofu síðasta ár. 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.