Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 21
söluskatti af öllu kaupverðinu,
þrátt fyrir að um afborgunarskil-
mála sé aö ræða. Útborgun við-
skiptavinarins nægir oft ekki fyrir
söluskattsgreiðslu. Þetta leiöir af
sér að þessar verzlanir fjármagna
ríkið löngu áður en verzlunin fær
söluskattinn inn, og ef um vanskil
af hálfu kaupenda er að ræða get-
ur verzlunin ekki aðeins tapað
vörunni, heldur einnig söluskatt-
inum.
Vilja fá endurgreiðslu frá ríkinu
Talað hefur verið um að kaup-
menn hafi viljað fá þóknun fyrir
innheimtu söluskatts og umstang
vegna hennar. Um það sagði
Gunnar Snorrason: — Ég vil
segja, að ég lít ekki á það sem
þóknun, þegar við höfum verið að
mótmæla þessari vinnu, heldur
viljum viö fá endurgreiðslu frá
hendi ríkisins til handa smásölum
vegna útlagöra peninga.
— Söluskatturinn hefur verið
einn stærsti póstur ríkissjóðs á
fjárlögum. Það eru ekki allir sem
geta státað af því að hafa fjölda
manns í vinnu, ólaunaða eins og
ríkið gerir hér.
Hafa ekki mótað sérstakar að-
gerðir
En finna neytendur verulega
fyrir auknum niðurgreiðslum á
landbúnaðarvörum og niðurfell-
ingu söluskatts af ýmsum matvæl-
um? Gunnar Snorrason sagði um
það: — Neytendur munar um
þetta í lækkuðu verði á landbún-
aðarvörum, og sér í lagi með
þessum fáu dilkaskrokkum, sem til
voru og voru á kostakjörum. Nýja
kjötið er u. þ. b. 100 kr. lægra hvert
kg en var á eldra kjötinu, að kjara-
bótakjötinu svokallaða undan-
skildu. Um þetta munar mest, og
auk þess um lækkað verö á mjólk
og mjólkurafurðum.
Gengisfellingin vinnur á móti
söluskattsniðurfellingunni á þeim
innfluttu vörum, sem voru með
söluskatti, og þegar upp er staðið
býst ég við að vörurnar standi
nokkuð í stað.
Kaupmenn hafa ekki mótað sér-
stakar aðgerðir, sagði Gunnar
Snorrason að lokum, en ef ekki
verða breytingar á innheimtunni
frá því sem verið hefur verða
kaupmenn að grípa til einhverra
aðgerða, en viö vonum í lengstu
lög, að farið verði að okkar óskum.
„Þetta háa vörugjald dregur eðli-
lega úr sölu“
Blaðið sneri sér einnig til Guð-
laugs Bergmann, forstjóra Karna-
bæjar, en hann selur vörur eins og
hljómflutningstæki og hljómplötur,
en með lögunum féll 30% vöru-
gjald á þessar vörur, eða svokall-
aðir lúxustollar eins og menn hafa
kallað það sín á meðal. Hann var
beðinn að gera stuttlega grein fyrir
skoðun sinni á þessum auknu
greiðslum til ríkisins.
— Ég hef ekkert gott um þær að
segja, sagði Guðlaugur, en ekki er
víst aö önnur aðferð hefði verið
betri. Þetta háa vörugjald á hljóm-
flutningstækjum og hljómplötum t.
d. dregur eðlilega úr sölu, þar til
fólk hefur vanið sig við þetta eins
og allt annað.
Ég vil að stjórnvöld komi hreint
til dyranna. Þetta er bara venjuleg
skattheimta, aöferð til að ná í pen-
inga í kassann. Það er enginn lúx-
us á íslandi að eiga hljómflutn-
ingstæki og hljómplötur, sagði
Guðlaugur Bergmann, forstjóri
Karnabæjarað lokum.
t |
T
21