Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1978, Page 24

Frjáls verslun - 01.09.1978, Page 24
Megum búast við landskjálfta á Suðurlandi hvenær sem er Viðbúnaður vegna væntanlegra jarðskjálfta á Suðurlandi er hafinn á vegum Almannavarna ríkisins. Sérstakur starfshópur hefur unniö að yfirgripsmikilli könnun á vænt- anlegum áhrifum þeirra náttúru- hamfara sem talið er að vænta megi á Suðurlandi hvað úr hverju, og hefur starfshópurinn lagt fram drög að áætlun um margvíslegar aögerðir sem gripiö veröur til ef neyðarástand skapast. Ekki er víst að allir geri sér grein fyrir því hvers konar náttúruham- farir hér getur orðið um að ræða en ritaðar heimildir greina frá því að meiri háttar skjálftar hafi átt sér stað á Suðurlandi á hverri öld allt frá landnámi. Meðaltími á milli jarðskjálftanna hefur verið um 20 ár. 82 ár eru nú liðin síöan miklir jarðskjálftar ollu gífurlegu tjóni fyrir austan fjall, en það var í ágústmánuði 1896. Gliðnun jarðskorpunnar á Suð- urlandi skeður í þrepum. Þegar langur tími líöur á milli þrepa hefur myndast mikil spenna í berginu og þegar brotmörkum þess er náð losnar gífurlegt afl úr læðingi. Því lengur sem spennan hefur safnast upp því meiri líkur eru á stórum jarðskjálftum. Allt bendir til að næsta glipnunarþrepi fylgi stórir landskjálftar. Hvað gerðist 1896? Skjálftinn 26. ágúst 1896 átti upptök sín á Landi og á ofanverð- um Rangárvöllum. Hann mun hafa verið nálægt 7 stigum á Richter— kvarða. Jarðskjálftar af þessari stærð leggja heilu borgirnar í rúst erlendis, enda varð tjón mikið á Rangárvöllum og víðar þar sem bæir og gripahús jöfnuðust við jörðu. Morguninn eftir varð álíka stór skjálfti á Landi en þá voru upptök hans noröar, eða í nánd við Skarðsfjall. Þá liðu 9 dagar án meiri háttar skjálfta, eða þar til tveir miklir jarðskjálftar urðu svo til samtímis. Annar þeirra átti upptök sín undir Selfossi og var styrkur hans um 6 stig, en hinn í nágrenni Hestfjalls í Grímsnesi og var styrk- ur hans 6.5 stig. Þremur klukku- stundum seinna varð mikill skjálfti, eða um 6 stig, í Ölfusi. Afleiðingar þessara skjálfta voru þær að varla stóð uppi bóndabær eða penings- hús nema stórskemmd, mikiö grjóthrun og skriðuföll urðu úr fjöllum og flóðbylgjur mynduöust í ám og vötnum. Þrátt fyrir þessar hamfarir létust einungis 4 í þess- um skjálftum 1896 en þá er rétt að hafa í huga aö byggð var mjög dreifð á svæðinu öllu. Einnig er rétt að benda á að styrkur þessara jarðskjálfta byggöist á því að þá voru liðin rúm 100 ár frá síöustu skjálftum ásvæðinu. Hver er hættan nú? í skýrslu starfshópsins er lýst áhyggjum vegna þeirrar þróunar sem oröið hefur á búsetu á Suð- urlandi, mesta hættusvæði lands- ins. ( stað strjálbýlis, sem áður varð til þess að slys á fólki í jarð- skjálftum urðu tiltölulega fá, eru nú risnir þéttbýliskjarnar hér og þar á mesta hættusvæðinu. Vél- væddur landbúnaður á svæðinu gerir það að verkum að hætta á tjóni er mjög mikil. Þá er bent á að stór hluti aðalorkuflutningskerfa stórvirkjana liggi um mestu hættusvæðin og í raun sé ekki vit- að hvað raflínumöstur þola mikla jarðskjálfta. Stór hluti bygginga á svæðinu sé ekki hannaður með tilliti til þess aö þola meiriháttar jarðskjálfta og því hætt viö að tjón á húsum yrði verulegt. Á Selfossi er aðaltengistöð símans á Suður- landi, þar er einnig fjórðungs- sjúkrahús landshlutans og sú mjólkurvinnslustöð, sem sér öllu Suðurlandsundirlendinu fyrir mjólkurvörum. í meiriháttar jarðskjálfta má gera ráð fyrir alvarlegum truflunum á orkuflutningi til Reykjavíkur þar sem 530 háspennumöstur Búr- fellslína I og II liggja í gegnum mestu hættusvæöin. Eyðileggingarmátturinn er hroll- vekjandi í skýrslu starfshóps Almanna- varna er gerð tilraun til þess að meta þann skaða, eða flokka hann, sem jarðskjálftar af mis- munandi stærðargráöu gætu valdið á Suðurlandi. í þessu augnamiði hefur jarðskjálftunum verið skipt í þrjá aðalflokka eftir eyðileggingarmætti. Samkvæmt Mercalli-kvarða eru þessir flokkar nr. IX, nr. X og nr. XI. Afleiðinga þeirra gætir á afmörkuðum áhrifa- svæðum þeirra. Efvið lítum áflokk nr. IX þá eru eftirfarandi þéttbýlis- kjarnar á áhrifasvæði hans: Hveragerði, Selfoss, Laugarás- Skálholt, Flúðir, Hella-Rauðilækur og Hvolsvöllur. Á áhrifasvæðinu búa nú um 9060 manns. Skjálfti sem reynist vera af þessum styrk- leika hefði þau áhrif að um helm- ingur hlaðinna steinhúsa eyði- leggjast og verða óhæf til íbúðar. Jarðleiðslur slitna og búast má við verulegum skemmdum á mann- virkjum, en á þessu áhrifasvæði eru margar stórar brýr svo sem ölfusárbrú, Sogsbrú, Iðubrú, Þjórsárbrú og brýrnar yfir Ytri- og Eystri-Rangár. Lýsing þessa jarð- skjálfta miöað við almennt mat á styrkleika mundi vera ,,Mjög harð- ur“. Næst er jarðskjálfti sem er enn harðari eða samkvæmt flokki nr. X. (Sambærilegur við skjálftann á Selfossi 1896). Ahrif þessa skjálfta gætu orðið aö 75% allra hlaðinna steinhúsa eyðilegðust og flest þeirra hryndu til grunna. Vel byggð timburhús og brýr myndu i stórskemmast og einstaka eyöi- leggjast. Leiðslur í jörðu slitna og sprungur myndast í malbikaðar 24

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.