Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 29
Háskólinn í Peklng. Áherzla er lögð á eflingu vísindastarfs og próf hafa verið tekin upp að nýju.
Kínverskir ráðamenn segja, að eftir að „fjögurra manna klíkan" var kveðin niður hafi mikið blómaskeið
hafizt í menntum og vísindum alþýðulýðveldisins.
og á annan tug nýrra verksmiðja til að smíða
landbúnaðartæki. Hua formaður segir, að
skipuleggjendur þessarar áætlunar ætli að
mynda „fjórtán nýjar og öflugar miðstöðvar í
iðnaði, sem verði hæfilega dreiföar til að binda
enda á það vanþróunarskeið, sem undirstöðu-
atvinnuvegir okkar hafa átt við aö stríða."
Veiku hlekkirnir
Síðast þegar meiriháttar fjárfestingar áttu sér
stað í kínversku efnahagslífi snemma á þessum
áratug kom í Ijós jafnvægisleysi, sem menn
hafa þegar dregið lærdóm af og vilja forðast nú.
Áætlunin fyrir 1978— 85 beinist sérstaklega að
„veiku hlekkjunum" í efnahagskerfi Kínverja
svo sem úreltu járnbrautarkerfi, skorti á kolum,
stáli og rafmagni, of fáum verksmiðjum til að
frumvinna járngrýti og lélegu þjóðvegakerfi.
En sú athygli, sem nú beinist að innviðum
efnahagskerfisins, er ekki nema einn liöur í
hinni nýju framsókn. Kaupgjald hefur verið fryst
í Kína í 10 ár. Þetta, ásamt stöðugum pólitískum
áróðursherferðum á vinnustöðvum, hefur
dregið þróttinn úr verkafólki. Til þess að auka
afköstin ákvað stjórnin í Peking að hækka laun
um 10—15% hjá þremur fimmtu af verkafólki í
borgunum. Til að hvetja menn til dáða hafa
verið teknar upp aðferðir, sem til skamms tíma
voru algjörlega forboönar, eins og til dæmis
bónusgreiðslur í verksmiðjum og meira launa-
bil milli stjórnenda og óbreyttra verkamanna.
Byltingarnefndir, sem einu sinni höfðu umsjón
með framleiðslu í verksmiðjum og námum, hafa
verið lagðar niður en stjórn hennar í þess stað
fengin í hendur sérþjálfuðum framkvæmda-
stjórum, sem flokksnefndir í viðkomandi
byggðarlögum skipa. Kínverskar sendinefndir
hafa farið í heimsóknir síðustu mánuðina til
Júgóslavíu og Vestur-Evrópu, þar sem þær
hafa kynnt sér stjórnun fyrirtækja.
Samkeppni í skólum
Próf hafa að nýju verið tekin upp í háskólum
og vísindastofnunum í Kína. Þar trúa menn nú á
kenninguna „færri en betri,“ sem til skamms
tíma hefði verið flokkuð undir leifar forrétt-
indalögmála keisarastjórnarinnar. Teng
Hsiao-Ping hvatti til þess á vísindaráðstefnu í
vor, að vísindastarfsemi í Kína yrði leyst úr
viðjum pólitískrar hugmyndafræði og hann hét
því jafnframt að stórauknum fjármunum yrði
varið til að byggja upp nýja aöstöóu og auka
vísindaiðkun þannig að Kínverjum tækist einn-
ig að ná Vesturlandaþjóðum á því sviði.
Flokksforustan vonast til að hafa vélvætt
landbúnaðinn að mestu leyti fyrir árið 1980 og
leyst af hólmi 70% mannafla sem nú starfar í
sumum greinum búreksturs, þegar vélar verða
teknar í notkun í auknum mæli. Það á að verja
stórauknum ríkisframlögum til fjárfestingar í
þágu landþúnaðarins. Stjórnin ætlar að auka
stálforðann til framleiðslu á landbúnaðartækj-
um um helming á næstu tveimur árum. Stjórn
og flokksdeildir vinna sameiginlega að því aö
29