Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 50
Matvælaframleiðslan
í mikilli framför
Eins og margar aðrar iðngreinar
hér á landi á matvælaiðnaðurinn
við harða og vaxandi samkeppni
að etja. Engu að síður hefur þess-
ari atvinnugrein vaxið verulega
fiskur um hrygg og fjölbreytt úrval
og gæði kennt fólki að meta ís-
lenzka framleiðslu. Um 10 þúsund
manns starfa við matvælaiðnað-
inn hérlendis eða um 40% alls
vinnuafls í iðnaði. f könnunum,
sem gerðar hafa verið á verðsam-
anburði innlendra og innfluttra
matvæla hefur komið í Ijós að verð
íslenzku vörunnar er yfirleitt
lægra og líklega er svo að al-
menningur gerir sér ekki gerla
grein fyrir því mikla úrvali ís-
lenzkra matvæla, sem á boðstól-
um er.
í raun á þetta ekki að vera undr-
unarefni, því að íslendingar eru
fyrst og fremst matvælaframleið-
endur. Fiskiönaðurinn er að sjálf-
sögðu stærsta grein matvælaiön-
aðarins, en meginþorri þeirrar
framleiðslu fer til að afla þjóðinni
erlends gjaldeyris.
Gífurleg framför í framleiðslu
landbúnaðarvara
Það hefur orðið mörgum út-
lendingum og (slendingum einnig,
undrunarefni, að hérlendis skuli
ekki vera nein skipuleg dreifing
neyzlufisks. Fiskbúðir annast
þennan þátt að mestu leyti en það
eru einstakir fisksalar, sem sjá um
hráefniskaupin frá einstökum bát-
um, en engin fiskmiðstöð er hér
starfandi. Búa fisksalar sjálfir til
fars og aðra vöru, sem þeir bjóða
upp á í verzlunum sínum.
önnur stærsta greinin er svo
framleiðsla landbúnaöarafurða og
má segja að sú iðngrein hafi mikla
sérstöðu, því að hún á í engri er-
lendri samkeppni á innlendum
markaði. Þrátt fyrir þetta hefur
orðið gífurleg framför í þessari
grein, og það má þakka fyrst og
fremst breyttum hugmyndum um
þjónustu viö almenning, skilning
ráðamanna á nauðsyn fjölbreytni
og ekki sízt góðu og vel menntuðu
starfsfólki.
Á þessu ári er lauslega áætlað
að kjötvinnslustöðvar hérlendis
framleiði á fjórða þúsund tonn af
soðnum pylsum og öörum fars-
vörum, um 350 tonn af áleggsvöru,
1100 tonn haf hangikjöti og 150—
300 tonn af slátri og súrmat, sem
að nýju er orðinn vinsæll réttur hjá
mörgum íslendingum.
Heildarársneyzla 600 kg á mann
Ekki er sérlega langt síðan
hægt var að fara að tala um kjöt-
Pylsuframleiðsla hér á landl er um 3000 lestlr á ári.
50