Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 63
bíll framleiddur af fullum krafti í nýjum verk-
smiðjum fyrirtækisins í Pennsylvania.
I því skyni að mæta kröfum kaupenda sem
nú eru breyttar aö mörgu leyti frá því sem
áður var og til þess að mæta auknum kröfum
stjórnvalda um hagkvæmni, hafa bílafram-
leiðendur lagt höfuöáherzlu á straumlínulag,
afgasþjöppuvélar, dísilvélar og framhjóladrif.
Þeir hafa einnig hækkaö veró 1979 árgerð-
anna um 5% miðað viö árgerðir 1978 og gert
er ráð fyrir enn frekari hækkunum þegar líða
tekur á söluárið.
Söluhorfur á Bandaríkjamarkaði eru taldar
góðar og er gert ráð fyrir að framleiddir veröi
rúmlega 11 milljónir bíla af árgerð 1979.
Bandarískir framleiðendur eru nú sem óðast
að búa bíla sína halogenljósum, en þau eru
talin auka veglýsingu um 20% í næturakstri.
Þótt slík Ijós hafi verið notuð í áraraðir í Evr-
ópu er talið að enn muni líða 2— 3 ár áöur en
kvarts-halogen lampar verði komnir í alla bíla
sem framleiddir eru í Bandaríkjunum.
Straumlínan alls ráðandi
Vegna skerptra krafna um sparneytni hafa
framleiöendur í auknum mæli stílað upp á
hönnun með tilliti til loftmótstöðu. Hjá Ford
fóru 136 klst. í loftmótstöðutilraunir á Must-
ang bílnum og telja hönnuðir að á grundvelli
þeirra tilrauna sé bíllinn sá ,,rennilegasti“ í
Fordflotanum og minni loftmótstaða geri þaö
rra um vmud idrycruiriidr di inoudiðiuiuiii unum uumvuu
ar 1978 árgerðunum í útliti. Tæknilegar breytingar eru hinsvegar tals-
verðar.
Það er einungis með krómlistum og innréttingu sem
Dodge Omni skilur sig frá Chrysler Horizon. Bíllinn er
mjög fallegur og er honum ætlað að höfða til yngra
fólks og hagsýnna kvenna.
snemma á árinu 1979. Það er þó vitað að
smábílarnir eru framdrifnir.
Chrysler mun nú selja nýja bíla, þ. e. ný-
hannaða, af fullri stærð og eru það Chrysler
New Yorker og Newport og Dodge St. Regis.
Tveggja dyra smærri bílar frá Chrysler verða
Omni og Horizon.
American Motors kemur með spiunkunýjan
bíl sem tilheyrir flokki smábíla. Það er Sprint,
sem nú mun leysa Gremlin af hólmi.
Volkswagen mun framleiða eina gerð sem í
Bandaríkjunum kallast Rabbit (Golf) og er sá
63