Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 72
ureyri og Skipaútgerö ríkisins
hefur að sjálfsögðu Akureyrarhöfn
á skrá sinni yfir viðkomustaði. Hins
vegar virðist greinilegt að hlut-
fallsleg aukning í vöruflutningum,
þ. e. aukning í hlut af heildarvöru-
flutningum, hefur einna helzt orðiö
íflugi.
Þjónusta
Óþarfi er að fjölyrða um þjón-
ustu og þjónustufyrirtæki á Akur-
eyri. Bærinn er fyrir áratugum síð-
an orðinn það stór, að fyrir hendi
eru flestar eða allar tegundir
þeirrar þjónustu, sem nauðsynleg
þykir í borgum og stærri bæjum.
Vafasamt er að flokka Akureyri
með öðrum stöðum utan Reykja-
víkursvæðisins, með því að tiltaka
að þar séu fyrir hendi hárgreiðslu-
stofa, rakari, þvottahús o. s. frv.
Hitt segir nokkuð meir til um
umfang viöskipta- og atvinnulífs á
staðnum, að huga að fyrirtækjum,
sem hafa að starfssviði þjónustu
við önnur fyrirtæki. Að minnsta
kosti tvö fyrirtæki eru starfandi á
Akureyri í dag, sem veita bók-
halds- og skattskilaþjónustu. Þau
eru Bókhald sf. og Bókhaldsstofa
Þorsteins Kjartanssonar. Þá er
starfandi tölvuþjónusta, Tölvu-
þjónustan hf., sem hefur með
höndum tölvubókhald, launaúr-
vinnslu, bónusúrvinnslu, fjárhags-
bókhald, framlegðarúrvinnslu,
gjaldendabókhald sveitarfélaga
og fleira. Loks má svo geta þess að
ein af prentsmiðjum bæjarins, Ás-
prent, starfar einvörðungu við
prentun fyrir fyrirtæki, þaö er
reikninga, nótubækur, bréfsefni o.
s. frv. Loks er svo starfandi að
minnsta kosti ein endurskoðunar-
skrifstofa, sem sér um endurskoð-
un, bókhald og skattframtöl.
Þá starfa á Akureyri að minnsta
kosti tvær auglýsingastofur.
Hvað varðar önnur þjónustufyr-
irtæki, þá starfa einar þrjár Ijós-
myndastofur á Akureyri og virðast
allar hafa næg verkefni. Ferða-
skrifstofa Akureyrar er stöndugt
fyrirtæki, og útibú er rekið frá
verkfræðiskrifstofu í Reykjavík.
Prentþjónusta er nokkuð mikil á
Akureyri.
ÞAÐ
FÆST
HJÁ
Akureyrl
Þaö mætti vafalítið halda áfram
upptalningu á þessu sviði endalít-
ið. Einhvers staðar verður þó að
hætta. Þó verður ekki hjá því
komizt að lýsa þeirri skoðun, að
svo viröist sem vaxtarbroddurinn í
atvinnulífi Akureyrar sé hvað
mestur í þjónustugreinum. Akur-
eyri, svo sem nokkrir aðrir staðir á
landinu, hefur greinilega fyrir all-
nokkru áttað sig á að ekki væri
nauðsynlegt að sækja alla þjón-
ustu til Reykjavíkur og í samræmi
við það hafa þjónustufyrirtæki
skotið upp kollinum þar á staðn-
um. Þá kemur annað atriöi inn í
dæmið, sem ekki er verra fyrir Ak-
ureyringa. ( dag eru samgöngur
orðnar svo örar, milli Akureyrar og
Reykjavíkur, að það er hvorki jafn
dýrt, tímafrekt né fyrirhafnarmikiö
og það var að sækja verzlun og
þjónustu til höfuðborgarinnar. Því
verða þjónustufyrirtæki og verzl-
anir á Akureyri að fylgjast ákaflega
vel með og sjá til þess á hverjum
tíma að veita ekki slakari þjónustu
en samsvarandi fyrirtæki í Reykja-
vík, helzt ívið betri.
Tilkynning frá
Amaro hf.,
Akureyri:
Höfum oftast fyrirliggjandi fyrir hótel, veitingahús, félags-
heimili, mötuneyti, sjúkrahús o. fl.:
VATNSGLÖS og VÍNGLÖS, margar gerðir, HNÍFAPÖR
og annan stálborðbúnað, BOLLAPÖR og DISKA,
ÖSKUBAKKA, margar gerðir, HITAKÖNNUR, MJÓLKUR-
KÖNNUR og margt fleira.
•
Heildsölubirgðir.
Amaro hfv
AKUREYRI
72