Frjáls verslun - 01.09.1978, Blaðsíða 79
Sérhönnun á
framleiðsluvörum
Aðalstelnn Jónsson forstjórl SJafnar á Akureyrl
Lcsrj'’ P®RSIÍ 31 5C
1 mmW ,- yVKj. 1 T'Tsg l-flte
TíT'i - L T) jaB
Flestir munu vafalítið þekkja
framleiðslu verksmiðjunnar
Sjafnar á Akureyri að nokkru eða
öllu. Málning og málningarvörur,
hreinlætisvörur, snyrtivörur og
fleira, sem þar er framleitt ffyrir al-
mennan neytendamarkað og svo
sérvörur fyrir iðnað og aðra at-
vinnuvegi.
Forstjóri Sjafnar er Aðalsteinn
Jónsson og báðum við hann að
greina ofurlítið frá því hvernig það
er að reka fyrirtæki af þessu tagi á
íslandi.
Sérhannað fyrir íslenzkar að-
stæður
„Það hefur auðvitað bæði sína
kosti og sína galla,“ sagði Aðal-
steinn, ,,en kostirnir yfirgnæfa þó
gallana. Við höfum nokkra sér-
stöðu að því leyti að við getum
sérhannað allnokkuð af þeim
vörutegundum, sem við framleið-
um fyrir íslenzkar aðstæður. Þar á
ég til dæmis við málninguna, sem
verður að vera sérstökum eigin-
leikum gædd til að þola veðurfarið
hérlendis. Auk þess eru aðrar
málningarvenjur ríkjandi hér en
annars staðar. Það eru gerðar
miklu meiri kröfur til útlits, hvað
fegurð snertir, en t. d. í Skandi-
navíu og Evróþu.
Svo erum við með sérhannaðar
vörur fyrir frystihús, fyrir mjólkur-
iönað og í snyrtivörum, sem allar
miðast að nokkru við séríslenzkar
aöstæður. Hér eru aðstæður til
þvotta aðrar en í flestum öðrum
löndum. íslenzka vatnið er mjúkt
(inniheldur lítið af kalsíum og
magnesíum, sem víða gerir vatn
hart og nauðsynlegt er að þvotta-
efni og sáþur bindi eða fjarlægi úr
vatninu, áður en efnin geta unnið
hindrunarlaust) og því frábrugðið
vatni sem notað er til þvotta í Evr-
óþu. Hægt er að hanna þvottaefni
meö tilliti til þessa. Þegar fólk
kaupir erlend þvottaefni kaupir
það í þeim rándýr efni, sem ætlað
er að mýkja vatnið. Þess gerist
hins vegar ekki þörf hérlendis,
þannig að það er óþarfa kostnað-
ur."
Lægra verð en sömu gæði og á
erlendri vöru
„Með tilliti til þessa á þessi iðn-
aöur, hvort heldur er norðan lands
eöa sunnan, fyllilega rétt á sér.
Vegna sérstöðu í veðráttu, vegna
vatnsins og annarra aðstæðna og
þó einkum vegna þess að okkur
hefur tekizt að halda vörunni fylli-
lega jafnfætis erlendri vöru að
gæðum, en á mun lægra verði.
Hins vegar kemur þarna á móti,
að þessi sama sérstaða gerir allan
útflutning erfiðan, sérstaklega til
þeirra landa sem búa við hart vatn.
Við erum meö ofurlítinn útflutning
til Færeyja, aðallega í málningu
(gólf-tex). Hins vegar hafa Fær-
79